Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Page 7
mæðraskoðun þar til fyrir 2-3 árum,
þannig að konur þaðan koma nú í
skoðun til Patreksfjarðar, svo og
konur af Barðaströnd og Rauðasandi.
Síðastliðið sumar var mjög lagt að
Patreksfirðingum að spara í heilsu-
gæslu. Kom þá upp m.a. sú tillaga að
leggja niður stöðu ljósmóður á staðn-
um, þannig að hjúkrunarfræðingur
tæki við mæðraeftirlitinu, og allar
konur fæddu annarsstaðar. Ymsum
þótti þetta þó ómögulegt, þar sem
allir voru vanir því að ljósmóðir væri
ætíð til taks jafnt á nóttu sem degi til
hjálpar ófrískum konum hvað sem
fyrir kæmi, og fór svo að lokum að
sjúkrahússtjórnin samþykkti ekki
tillöguna.
Þannig standa málin til febrúarloka,
og erfitt er að vita hvort tillagan er úr
sögunni, eða hvort aftur verði „ráðist
að“ ljósmæðrastöðunni á Patreksfirði.
Byggt á símtali við Ástu Gísladóttur
í jan. 1997.
S.P.
Frá skrifstofu LMFÍ
Ljósmæður athugið. Þær ljósmæður
sem sinna heimaþjónustu þurfa nú
að framvísa ljósriti af leyfisbréfi ykkar
frá heilbrigðisráðuneytinu þegar þið
fáið greitt frá Tryggingastofnun
ríkisins. Afritið er geymt hjá TR
þannig að þeir geta alltaf flett því
upp og athugað hvort viðkomandi
hefur tilskilin réttindi.
SjÁLFSTÆTT STARFANDI LJÓSMÆÐUR.
Undanfarið hefur verið þó noklcuð
um að ljósmæður tilkynntu til
embættis Héraðslæknis að þær
hyggðust starfa sjálfstætt í Reykja-
víkurlæknishéraði. Héraðslæknisem-
bættið leyfir sér að minna ljósmæður
á lög nr. 67/1984 um ljósmæður þar
sem skylt er að leggja fram starfsleyfi
og skilríki.
Starfsmenntunarsjóður.
Að gefnu tilefni vekur stjórn
starfsmenntunarsjóðs athygli á að
ekki er hægt að greiða fyrir veitta
styrki úr sjóðnum nema frumrit af
nótum fylgi umsókninni. Ef nótur
fylgja ekki umsókninni og koma
seinna er styrkurinn greiddur á næsta
fundi sem er þrem mánuðum seinna.
Minnincakort ljósmæðra.
Þau eru til sölu hjá Ljósmæðrafélagi
Islands og á mörgum sjúkrahúsum
landsins. Upplýsingar fást hjá
Dýrfinnu Sigurjónsdóttur ljósmóður
í símum: hs. 367-4364 vs.560-1130.
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
7