Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Side 11
talað um að FAE komi fram í mun
fleiri tilvikum (Bartek 1990)
Börn er fæðast með FAS eru mjög
auðkennandi í útliti. I raun líkjast
þau hvert öðru, frekar en að þau
líkist foreldrum sínum, líkt og börn
er fæðast með heilkenni (down
syndrom). Fæðingagallar koma helst
fram á höfði og andliti. Höfuð-
ummál er lítið, það er langt á milli
augnanna, augun eru lítil og op milli
efra og neðra augnloks er þröngt.
Nefrót er lítil, nef stutt, þunn efri vör
og vantar grófina milli nefs og efri
varar og andlitið er flatt. Hluti
þessara fæðingagalla á höfði og and-
liti þarf að vera til staðar svo hægt sé
að greina FAS hjá börnum (Autti-
Ramö og Granström 1992). Jafn-
framt eru þessi börn oftast með
minni fæðingarþyngd, lélegt sog-
viðbragð er einkennandi fyrir þau,
vansköpun á útlimum er þekkt og
rannsókn er gerð var í Þýskalandi
sýndi fram á aukna tíðni van-
sköpunar á handleggjum hjá börnum
mæðra er drukku áfengi á með-
göngunni (Froster og Baird 1992).
Börn með FAS eiga við andlegan
seinþroska að stríða og er greindar-
vísitala þeirra að meðaltali 68-70
(Bartek 1990).
Vægari afleiðingar áfengis eru mun
algengari, engu að síður geta af-
leiðingar þessar haft alvarleg áhrif á
barnið og er hér um að ræða FAE, en
það getur gerst hjá mæðrum er
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ ___________________
drekka meira og minna alla með-
gönguna en þó ekki í það miklu mæli
að þær geta leynt því út á við og
finnst sjálfum jafnvel að aðeins sé um
svokallaða „social drykkju* að ræða.
Við fæðingu eru þessi börn ekki með
þessi auðkenni á höfði og andliti líkt
og hjá FAS börnum en algengustu
vandamál er koma upp hjá þessum
börnum eru m.a.: Fyrirburafæðingar,
fæðingarþyngd í minna lagi miðað
við meðgöngulengd, óróleiki eftir
fæðingu og það sem er hvað alvar-
legast er að síðar á ævinni er mikil
hætta á ofvirkni og þau lenda gjarnan
í erfiðleikum með nám (Bartek
1990).
FAE getur komið fram hjá börnum
mæðra sem jafnvel drekka ekki svo
ýkja mikið en eru þó að drekka
eitthvað alla meðgönguna. Það eru
einmitt þessar konur sem hætta er á
að komist í gegnum mæðraeftirlit án
þess að drykkjan uppgötvist.
Kókaín - Amfetamín
Amfetamín er það örvandi efni sem
mest er notað hér á Islandi í dag.
Ymist er því sprautað í æð eða sogið f
nös. Skv. ársskýrslu SÁÁ hefur
amfetamínneytendum farið fjölgandi
og ef litið er til aldurs þeirra kvenna
sem eru í amfetamínneyslu þá eru
það nánast eingöngu konur á barn-
eignaraldri. Því miður er erfitt að
finna rannsóknir er gerðar hafa verið
um áhrif amfetamíns á fóstur en hins
------------------------------ 11