Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Side 14
Ef svarið er „Já“ þá er næsta skref að
bera fram hinar svokölluðu „Hv“
spurningar eins og ég kýs að kalla
þær, en þær notum við til að átta
okkur á tíðni og magni neyslunnar.
Ef við gefum okkur að konan játi
því að hún hafi einhvern tímann
drukkið áfengi þá spyrjum við næst:
„Hvenær drakkstu áfengi síðast?“, en
slík spurning opnar konunni leið til
að ræða um núverandi neyslu ef
einhver er og fyrrverandi neyslu.
Flestar kvennana svara því eflaust til
að þær hafi ekki drukkið frá því fyrir
þungun og jafnvel löngu áður.
Sumar konur hafa drukkið áfengi
fyrstu vikur meðgöngunnar áður en
þær áttuðu sig eða fengu staðfestingu
á þunguninni en hætt því algjörlega
eftir það. Hins vegar sitja þessar
konur gjarnan uppi með mikið
samviskubit yfir því að hafa drukkið í
byrjun meðgöngunnar, jafnvel þótt
það hafi verið mjög lítið og þær eru
hræddar um að hafa skaðað fóstrið.
Þessi spurning er ég nefndi fyrr gefur
þeim færi á að ræða þessar áhyggjur
sínar og um leið ljósmóðurinni/
hjúkrunarfræðingnum tækifæri til að
róa konuna, því ósennilegt er að svo
lítil neysla og rétt í byrjun valdi
skaða.
Ef aftur á móti konan kveðst hafa
drukkið deginum áður eða síðast-
liðna helgi eða fyrir einhverjum
dögum síðan þá er næsta skref að átta
sig á því hversu mikil drykkja er á
14 -----------------------------
ferðinni og þá að bera upp spurn-
ingar eins og: „Hversu mikið
drekkurðu’“
„Hvað drekkurðu?“ „Hversu oft
drekkurðu?“
Ef svo virðist eftir þessar spurningar
að hér sé um einhverja drykkju að
ræða þá er næst að komast að því
hversu mikil áhrif drykkjan hefur á
líf konunnar og er mælt með því að
leggja þá fyrir konuna svokallaðar
CAGE spurningar:
1. Hefur þér einhvern tímann
fundist þú þurfa að minnka
drykkjuna?
2. Hefúr fólk verið með afsldptasemi
gagnvart drykkjunni hjá þér?
3. Hefúr þér einhvern tímann liðið
illa eða verið með slæma samvisku
út af drykkjunni?
4. Hefur þú einhvern tímann byrjað
daginn á því að fá þér drykk til
þess að róa taugarnar eða losna við
timburmenn?
Einnig getur verið hjálplegt að nota
eftirfarandi spurningu:
„Hvað þarftu marga drykki til að
finna á þér?“, en þessi spurning gefur
vísbendingu um áfengisþol. Ef konan
svarar því til að hún þurfi meira en
tvo drykki til að finna á sér, þá segir
það manni að þolið hefur aukist og
misnotkun væntanlega til staðar.
Sumar konur eru fúsari að viður-
_______________ LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ