Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Page 15
kenna aukið áfengisþol, heldur en
vandamál er hljótast af drykkjunni.
Þessar spurningar geta gefið manni
vísbendingu um það, hvort um
áfengisvandamál sé að ræða hjá
konunni eða ekki. Fræða þarf þessar
konur um skaðsemi neyslunnar og
hversu alvarlegar afleiðingar þær geta
haft á barnið. Það hefur sýnt sig að
fræðsla í mæðraeftirliti til kvenna
hefur skilað góðum árangri og
margar látið af allri neyslu á
meðgöngunni. Þeim konum sem
ekki geta hætt neyslu án frekari
aðstoðar þarf að liðsinna, benda þeim
á þau meðferðarúrræði sem í boði
eru, hvetja þær til að leita sér
meðferðar og fylgja því eftir.
Þó svo að konan hafi fengið þá
fræðslu sem þurfa þykir hjá sinni
ljósmóður/hjúkrunarfræðingi í mæðra-
eftirlitinu má ekki láta þar við sitja.
Þó svo hún taki fræðslunni vel og tali
um að hætta allri neyslu, verður að
spyrja hana aftur um neyslu næst er
hún kemur í skoðun: „Hefurðu
drukkið nokkurn bjór, léttvín eða
sterkt vín frá því síðast er þú varst í
skoðun?“ Vænlegast er að orða
spurninguna á þennan hátt því
mörgum finnst bjór eða léttvín varla
vera áfengi og líta ekki alvarlegum
augum á slíka neyslu.
Ef hins vegar kona neitar allri neyslu
á meðgöngunni en okkur grunar
annað þá ber að spyrja hana aftur
næst þegar hún kemur í skoðun.
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ ------------------
Henni gæti liðið betur þá og verið
öruggari með sig þegar hún fer að
kynnast sinni ljósmóður/ hjúkrunar-
fræðingi og á þá auðveldara með að
opna sig. En því miður er það nú
svo að ávallt munu einhverjar
þungaðar konur neita neyslu alla
meðgönguna þó svo þær séu í
einhverri neyslu. Ef allar konur fá
fræðslu um skaðsemi áfengis -og
vímuefnaneyslu munu þær þó altént
verða einhvers vísari og kannski
verður hægt að ná til þeirra seinna
eða jafnvel í næstu meðgöngu.
LOKAORÐ
Eins og fram hefur komið þá hefur
áfengis- og vímuefnaneysla á með-
göngu viðtæk áhrif á fóstrið bæði
andlega og líkamlega, en það er aldrei
of seint að reyna að stöðva neysluna
eins og kemur fram í rannsókn er
Korkman, Autti-Ramö ofl. gerðu á
vegum Háskólans í Helsinki 1994.
Rannsóknin var um andlegan sein-
þroska tveggja ára barna eftir
áfengisneyslu móður á meðgöngu.
Kom í ljós að greinileg fylgni var á
milli seinþroska hjá börnum og þess
hvort móðirin drakk áfengi í byrjun
meðgöngunnar eða út alla með-
gönguna. Seinkaður málþroski og
sjónhreyfiþroski kom fram hjá
börnum mæðra er drukku alla
meðgönguna. Eingöngu var um
athyglisskort að ræða hjá börnum
þeirra mæðra er drukku fram að 3.
------------------------------ 15