Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Page 18
I. Naflastrengur um háls:
Biðja konuna um að standa upp í
vatninu og hafa fæturnar vel í
sundur, þannig að hægt sé að skoða
hvort naflastrengur sé um háls.
Setja tangir á naflastreng, klippa
hann og láta barnið fæðast í næstu
hríð. Þá má konan eftir fæðingu
aftur setjast í vatnið í e.u. mínútur ef
hún vill eða þá fara upp úr vatninu.
Það er ekki æskilegt að klippa á
naflastrenginn í vatninu. Barnið er
talið líklegra til að taka andkaf í
vatninu ef búið er að klippa á streng.
II. Grænt legvatn:
Er frábending íýrir vatnsfæðingu.
1) Ef fóstrið er aðþrengt getur það
tekið andkaf „in utero“.
2) Slappt barn gæti tekið andkaf í
vatninu.
3) Ekki möguleiki á síritun í vatni.
III. Blæðing:
Ef blæðing á 1. stigi fæðingar, konan
ekki í vatni.
Ef smá rauð teikn. blæðing-má
konan vera í vatni.
Ef fer að blæða í baðinu þá á konan
að koma upp úr strax, til að reyna að
finna orsök. Konan á að vera í
síritun-monitor.
Blæðing á öðru stigi fæðingar er
oftast vegna áverka (e.t.v. ástæða til
að klippa episiotomiu).
Það verður að vera ljósmóðurinnar að
18 ---------------------------------
vega og meta hvort konan á að koma
strax upp úr vatninu eða ekki. Kona
sem er alveg komin að fæðingu finnst
e.t.v. mjög erfitt að koma upp úr.
IV. Petihidín.
Ef Petihidín er gefið verður konan að
koma upp úr strax og ekki fara í
vatnið í 2-3 ldst. eða þar til virkni
lyfsins minnkar en sá tími ræðst af
því hversu sterkt lyfið verkar á
konuna.
V. Axlaklemma:
Axlaklemma í venjulegum fæðingum
er skelfileg reynsla fyrir alla sem það
varðar. I vatnsfæðingu getur sú staða
verið ógnvekjandi. Alltaf þarf að
hafa aðstoðarmanneskju við vatns-
fæðingu.
Ljósmóðirin sem stjórnar fæðingunni
lætur konuna strax standa upp í
vatninu og reynir samt að halda öllu í
ró. Á meðan sækir aðstoðar-
manneskjan hjálp ef þarf. Konan er
beðin um að standa og halla sér
framá við t.d. á axlir eiginmanns og
hafa fætur eins mikið í sundur og
hún getur (eykur pláss í grindinni).
E.t.v. er gott að konan haldi um
baðkarsbrúnina eða hinn verðandi
faðir haldi undir handleggi konunnar
til að styðja hana. Hún missir síður
jafnvægið þannig.
Ljósmóðir stendur aftan við konuna
(þarf e.t.v. að fara upp í baðið). Við
næstu hríð, biður ljósmóðir konuna
_________________ LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ