Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Síða 21
um lengri eða skemmri tíma og eru á
einhvern hátt háðir hver öðrum um
uppfyllingu ýmissa grundvallarþarfa
(Guðrún Marteinsdóttir, 1984 ).
Móðurhlutverkið er mjög krefjandi
og krefst mikillar aðlögunar. Á það
sérstaklega við um fyrsta barn. Hér
áður fyrr var talið að móður-
umhyggja væri eðlishvöt sem móðir-
in sýndi með því að umvefja barnið
og sýna því umhyggju (Myles, 1977).
Oakley (1987) telur að samband
konu við barn sitt hefjist áður enn
barn verður til. Það á rætur sínar að
rekja til barnæsku konunnar, þeirri
móðurumhyggju sem hún upplifði
sjálf.
Eftir fæðinguna kvarta margar konur
yfir því að hafa ekki þessa tilfinningu
og verða mjög leiðar. Er því mikil-
vægt að styðja þær sérstaklega, sýna
þeim umhyggju og útskýra fyrir þeim
að móðurtilfmningin komi smátt og
smátt (Salariya, 1991).
Hér á landi leggja flestar mæður sig
fram um að undirbúa sig undir fæð-
ingu barnsins á meðgöngutímanum.
Á seinni árum hefur verið lögð sífellt
meiri áhersla á að feðurnir séu með í
öllum undirbúningi, komi með kon-
unni í mæðraeftirlitið, taki þátt í
námskeiðum fyrir fæðinguna og séu
með konunni í fæðingunni. Faðirinn
er talinn hennar besti stuðningsaðili
og veitir henni stuðning sem eykur á
vellíðan hennar.
Tengsl sem móðir finnur milli sín og
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ _________________
barns síns skömmu eftir fæðinguna
eru venjulega talin vera á einn veg.
Hins vegar er talið að aðdráttarafl
milli móður og barns séu gagnkvæm
sem annarra einstaklinga sem barnið
umgengst mest, eins og föður (Klaus
og Kennell, 1976). Greenberg og
Morris (1974) nefna tengsl milli
ungbarns og foreldra hughrif. Þeir
töldu að hughrif lýsti sér í sjálfs-
virðingu föður ef hann væri við-
staddur fæðingu barns síns.
Mikilvægt er fyrir verðandi foreldra að
undir búa sig af kostgæfni undir
foreldrahlutverkið. Foreldrahlutverkið
hefur verið skilgreint þannig að það
skuli þjóna öllum þörfum barnsins.
Þessar þarfir eru:
(1) Líkamleg vernd og umhyggja.
(2) Næring.
(3) Ást og að fá tækifæri til að
tengjast öðrum.
(4) Fá að vaxa og þroskast líkamlega,
andlega og félagslega.
(5) Fá tækifæri til að læra á umhverfi
sitt.
Foreldrarnir þurfa að vera vel undir
það búnir að mæta þessum kröfum
(Kempe og Kempe, 1978). Stungið
hefur verið upp á því að umönnun
ungbarns liggi utan meðvitaðrar
hugsunar og ákveðins ásetnings.
Talið er að þessi umönnun sé aðeins
möguleg með ást (Winnicott, 1957).
Mikilvægi brjóstagjafar
Brjóstamjólkin er besta næringin
--------------------------------- 21