Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Side 22
fyrir barnið og brjóstagjöf er eðlilegur
líffræðilegur þáttur við barnsfæðingu.
Á síðustu 30 árum hafa ljósmæður,
heilsuverndarhjúkrunarfræðingar og
barnahjúkrunarfræðingar á Islandi
lagt meiri og meiri áherslu á fræðslu
og stuðning við mæður varðandi
brjóstagjöf. Brjóstagjöf má skoða sem
hvert annað handverk sem þarf að
læra. Á síðustu 20 árum hafa
íslenskar konur fylgt öðrum konum á
Norðurlöndum varðandi tíðni og
tímalengd brjóstagjafar. Samkvæmt
könnun á næringu ungbarna á
fslandi voru 75,5 % þeirra á brjósti
við 3ja mán. aldur, 56,1 % fengu
brjóstagjöf eingöngu, 19,4 % fengu
brjóstamjólk og ábót, 10,3% fengu
pela eingöngu og grauta og mauk
fengu 14 % (Marga Thome,1993).
JÁKVÆÐIR ÞÆTTIR SEM HAFA ÁHRIF Á
BRJÓSTAGJÖF
Mikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk og
stofnanir, sem vinna með foreldra
ungra barna, hafi að leiðarljósi
markmið WHO og UNICEF (Robak,
1992), en þar er lýst tíu þrepum sem
eiga að auka líkur á vel heppnaðri
brjóstagjöf.
Fræðslunámskeið, sem haldin voru á
síðustu tveim mánuðum meðgöngu,
höfðu þau áhrif að konur, sem hölðu
þá þegar tekið ákvörðun um að hafa
barnið á brjósti, gekk betur með
brjóstagjöf og alla umhugsun um sig og
barnið í sængurlegunni (Wiles, 1984).
22 ----------------------------------
Talið er mikilvægt að ljósmæður séu
vakandi yfir því við fæðingu barns að
móðirinn leggi barnið á brjóst, helst
innan 2ja tíma frá fæðingunni ef
mögulegt er (DeChateau, 1980).
Mikilvægt er að leiðbeina konum um
hvernig eigi að leggja á brjóst og
hvernig eigi að viðhalda mjólkur-
myndun, að hún þekki sog og
leitarviðbrögðin og kunni að örva
þau, jafnvel þó að móðir og barn séu
aðskilin.
Margar konur hafa aldrei séð börn á
brjósti. Þótt brjóstagjöf sé náttúrulegt
fyrirbæri, þá er hún ekki meðfædd
(Gunther, 1955). Því þarf móðir og
barn að tileinka sér brjóstagjöfina og
læra hana. Ábyrgð ljósmæðra og
hjúkrunarfræðinga að kenna móður
hvernig eigi að leggja barnið á brjóst
er mikilvæg strax eftir fæðinguna og
einnig þegar heim er komið.
Margir þættir hafa áhrif á hversu
lengi móðir er með barn á brjósti svo
_______________ LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ