Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Blaðsíða 28
bréf til ljósmæára
Akureyri 23. jan '97
Kæru ljósmæður,
I dag er í blöðunum auglýst andlát
einnar okkar ljósmæðranna, blessuð sé
minning hennar. Þessi dánar-
tilkynning varð til þess að ég settist
við tölvuna til að skrifa ykkur þetta
opna bréf, eitthvað sem mig hefur
lengi þótt ástæða til.
í þessari dánartilkynning sem og í svo
mörgum öðrum þegar einhver úr
stéttinni okkar hefur hvatt þetta líf,
stendur að hún sé FYRRVERANDI
LJÓSMÓÐIR. Þetta er það sem
veldur mér hugarangri. Allt of al-
gengt er að sjá þetta þegar auglýst er
lát ljósmóður, sem starfar ekki lengur
við Ijósmæðrastörf. Mig langar að
benda ykkur á þá staðreynd að við
getum ekki orðið FYRRVERANDI
LJÓSMÆÐUR nema við missum
ljósmæðraleyfið fyrir einhver mistök í
starfi, það væntanlega alvarleg.
Þó ég hafi engar opinberar tölur í
höndunum, um hvað margar ljós-
mæður hafi misst leyfið sitt, er ég viss
um að það sé miklu fátíðari en
dánartilkynningar ljósmæðra gefa til
kynna. Ég leyfi mér að fullyrða það!
Auðvitað veit ég ekki um ykkur, en ég
væri að minnsta kosti heldur ekkert að
flíka því ef svo væri komið fyrir mér,
þ.e. ef ég hefði misst ljósmæðraleyfið!
í öllu námi öðlast einstaklingurinn
sérþekkingu og verður fyrir ákveðinni
mótun sem breytir þessari manneskju
ævilangt. Þetta á einnig við um
ljósmæðranámið, við verðum því
alltaf ljósmæður, hvort sem við
störfum sem ljósmæður eða ekki.
Einu sinni ljósmóðir, ávalt ljósmóðir á
því við um okkur.
Af hverju á þessi ruglingur sér stað,
hjá stéttinni okkar?
Ég tel svarið felast í hógværð
stéttarinnar eða kvenna yfirleitt, eða
hvenær hafið þið séð dánartilkynningu
fyrrverandi læknis, fyrrverandi
lögfræðings, fyrrverandi prests eða
fyrrverandi sálfræðings? Astæðan fyrir
því að þetta veldur mér hugarangri er
sú að mér finnst þetta vera vanvirðing
við stéttina okkar og þá kunnáttu sem
við fengum í námi og höfum lang
flestar haldið við og bætt við á
mislangri starfsævi.
Ljósmóðir hættir einungis að gegna
ákveðinni stöðu t.d. getum við titlað
okkur sem fyrrverandi yfirljósmæður,
fyrrverandi deilarljósmæður, fyrr-
verandi héraðsljósmæður o.s.fr.
Ég skora því á ykkur, ljósmæður bæði
starfandi og ekki, brýnið fyrir ætt-
ingjum ykkar að þegar að dánar-
tilkynningunni komi, skuli standa þar
skýrum stöfum: LJÓSMÓÐIR.
Kær kveðja frá Akureyri,
Sía Jónsdóttir, Ijósmóðir
28
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ