Ljósmæðrablaðið - 01.09.1997, Side 34
Úriráttur frá félagfsfundi kjá L.M.F.Í
Félagsfundur haldin í sal B.S.R.B 26.
feb. ‘97 kl. 17,50
Fundarefni almenn félagsstörf og
heimaþjónusta ljósmæðra.
Mjög vel var mætt og voru fyrir 80
ljósmæður sem sátu fundinn.
Formaðurinn greindi ffá starfsemi
stjórnar og því helsta sem er að gerast í
félagsmálum.
Það sem bar hæðst voru umræður um
stöðu ljósmæðra innan B.S.R.B og þá
hvort við værum betur settar í B.H.M
einnig kom upp sú umræða hvort við
gætum staðið utan félagasamtaka, þessa
hluti þarf að kanna mjög vel áður en
ákvörðun er tekin.
Ljósmæður voru hvattar dl að kynna sér
breytingar á lífeyrissjóðsmálum, fjöldi
fúnda hefúr verið auglýstur, einnig er
hægt að fá persónulega þjónustu um
þessi mál.
Rætt var um stöðu ljósmæðra innan
heilsugæslunnar og mikilvægi þessa að
það séu sem sjái um mæðrvernd.
Ljósmæðraráð er að vinna í því að
skipuleggja störf ljósmæðra í framtíðinni.
Þar sem mestu og heitustu umræðurnar
urðu um var heimaþjónustan. Og þá
aðallega nýgerður samningur F.I.H við
Tryggingastofúun ríkisins. Þótti
ljósmæðrum að sér veigið og var mikil
óánægja með þetta, þar sem samningur
L.M.F.f er fyrir allar
ljósmæður sama í hvaða félagi þær eru.
Verður þetta mál kannað ffekar af
stjórninni.
Ákveðið hefúr verið að hafa ffæðsludag
og aðalfúnd daganna 2-3 maí. Nánara
auglýst síðar.
Eftir félagsfúndinn var boðið upp á
veitingar og síðan tók við fræðslufúndur
um Meðgöngueitrun og fyrirlesarar voru
Hildur Harðardóttir læknir, Sigríður
Haraldsdóttir, Sólveig Jóhannsdóttir og
Álfheiður Árnadóttir ljósmæður. Þá var
einnig þétt setið í salnum og er mjög
ánægjulegt að sjá hvað vel var mætt.
Kveíja, stjóm L.M.F.f.
Auglýsing frá skrifstofu LMFI
Skrifstofa LMFI auglýsir effir Ijósmæðrum sem vilja sinna
heimaþjónustu. Einnig þeim sem vilja leysa af einhvern tíma
út á landi. Ljósmæðrafélagið langar að útbúa lista um ljósmæður
sem vilja taka þetta að sér til að auðveldara sé fyrir atvinnurekendur
að leita sér að ljósmæðrum sem vilja leysa af öðru hvoru.
Skrifstofa Ljósmæðrafélags Islands er opin mánudaga frá kl. 13-17 og á
fimmtudögum frá kl. 13.30-16.
34
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ