Ljósmæðrablaðið - 15.07.1999, Blaðsíða 4
Frcttir frá stjóm LFTFI
Alþj óðasiðaregluv Ij ósmeeðra
Stjórn LMFÍ hefur látið þýða alþjóðasiðareglur ljósmæðra, sem samþykktar hafa verið af íslenskum ljós-
mæðrum, og gefið út á veggspjaldi sem hægt er að kaupa á skrifstofu félagsins. Siðareglurnar eru í samræmi
við það meginmarkmið að ljósmóðir skuli stuðla að bættri heilsu kvenna og eru þær hafðar til leiðbeiningar
við menntun, störf og rannsóknir ljósmæðra. Siðareglur þessar virða konur sem persónur, stuðla að réttlæti fy-
rir alla og sanngjarnri dreifingu gæða í heilbrigðisþjónustu. Siðareglurnar byggja á gagnkvæmu trausti og
virðingu og á þeirri meginhugsun að sérhvern einstakling beri að virða sem manneskju. Siðareglunum er skipt
í fjóra meginkafla: Samskipti 1 jósmæðra, Starf ljósmæðra, Faglegar skyldur ljósmæðra og Endurmenntun ljós-
mæðra.
Stýrkir tir minningasjóði tjósmeeðra
Minningasjóður ljósmæðra var stofnaður árið 1967. Aðdragandi sjóðs þessa var tvíþættur: Árið 1966 barst fé-
laginu 1200kr. í minningargjöf um Ingibjörgu Jónsdóttur ljósmóður og á aðalfundi ljósmæðra lagði Kristín I.
Tómasdóttir þáverandi formaður til að stofnaður skyldi minningasjóður Ljósmæðrafélags íslands.
Sjóðurinn veitir viðtöku gjöfum og áheitum. Minningaspjöld eru gefin út til ágóða fyrir sjóðinn. Stjórn
sjóðsins skipa þrír fulltrúar og ber stjórn sjóðsins að halda bókhald fyrir sjóðinn, sem er lagt fram á aðalfundi
ljósmæðra.
1. Tilgangur sjóðsins er að styðja ljósmæður til framhaldsnáms sem er 5 einingar eða 1 ár og einnig má veita
fé til hverra þeirra líkarmála sem ljósmæðrastéttin hefur hug á að styðja.
2. Höfuðstóll sjóðsins nemi aldrei minni upphæð en 75.000kr. og skal stjórn sjóðsins heimil ráðstöfun vaxta
og tekna sjóðsins eftir því sem þörf krefur, en aldrei skerða höfuðstól.
3. Kvittanir fyrir skólagjöldum þurfa að liggja fyrir þegar úthlutað er úr sjóðnum.
4. Umsóknum um styrki úr sjóðnum skal skila á þar til gerðum eyðublöðum og skulu sendast sjóðnum fyrir 1.
júní ár hvert. Umsóknum er svarað og úthlutun styrkja fer fram einu sinni á ári — í júlí. Stjórn sjóðsins
ákveður styrkveitingu samkvæmt 1. grein. Stjórn sjóðsins ákveður upphæð styrkja hverju sinni og nemur
upphæð allt að 50.000kr.
5. Ársreikningar skulu vera skoðaðir af löggiltum endurskoðanda.
Endurskoðað í apríl 1997.
UppVjsingar frá Alþjóða Heilbrigðisinálastofmininni
Vakin skal athygli á að á skrifstofu LMFÍ liggja frammi ýmsir bæklingar og skýrslur frá Alþjóða Heilbrigðis-
málastofnuninni. Þar má nefna skýrslur um stöðu brjóstagjafar í heiminum, næringu og heilbrigði kvenna og
barna, brjóstagjöf og heilbrigðar matarvenjur í meðgöngu og við mjólkun, og bæklinga um áhersluþætti í
tengslum við heilbrigði kvenna og barna. Þær ljósmæður sem áhuga hafa geta skoðað þessi rit nánar á skrif-
stofu LMFÍ.
Rit Alþjóðasambands ljósmæðra eru einnig til á skrifstofu LMFÍ
Lokað óegna sumarieýfa
Skrifstofa Ljósmæðrafélags íslands verður lokuð vegna sumarleyfa 21. júní til og með 9. ágúst 1999. Einungis
verður opið á mánudögum frá 9. - 30. ágúst 1999.
4
LJÓSMÆPRABLAPIP