Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2004, Side 19
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 2004 7 9 & Í - ' V. : } ''-xj INVITAÝ! \ \ r Bandaríski kylfingurinn John Daly hefur þurft að glíma við alls kyns vandamál á þrettán ára ferli sínum sem atvinnukylfingur. Hann hefur undanfarin tíu ár barist við áfengi og offitu en yfirleitt mátt lúta í lægra haldi fyrir þessum sjúk- dómum sem gefa engum, sem lenda í klóm þeirra, grið. Daly, sem hefur Iöngum verið með vinsælustu kylfingum vestanhafs, hafði ekki unnið mót síðan 1995 þegar hann mætti á Buick-boðsmótið um helgina. Þá vann hann Opna breska meistara- mótið en síðan hefur líf þessa geðþekka kylfings verið þyrnum stráð. Hann kom hins vegar, sá og sigraði á boðsmóti Buick um helgina en það er mót er hluti af PGA- mótaröðinni. Daly var í fantaformi og hafði að lokum sigur eftir bráðabana við landa sinn Chris Riley og Englendinginn Luke Donald. Daly leiddi eftir þrjá hringi en missti aðeins fótana á síðasta hring. Hann tók hins vegar til sinna ráða þegar bráðabaninn byrjaði og tryggði sér sigur strax á fyrstu holu þegar hann fór holuna á fugli en Riley og Donald fóru holuna á pari. Fyrsti sigur hans á móti síðan 1995 var þvf staðreynd og ekki skemmdi fyrir að fá verðlaunafé upp á tæpa 900 þúsund dollara. Yndisleg tilfinning Daly var í skýjunum eftir sigurinn og lýsti tilfinngunni sem yndislegri. „Það er yndisleg tilfinning að vinna mót á nýjan leik. Ég held að þetta sé sætasti sigurinn á ferlinum. Ég er búinn að bíða lengi, lengi eftir þessum sigri og þótt ég hafi unnið mót áður þá hef ég aldrei unnið mót þar sem Tiger Woods hefur verið á meðai keppenda. Það er góð til- finning, sérstaklega í ljósi þess að allir bestu kylfingar mótaraðarinnar voru mættir til leiks," sagði Daly. Woods náði sér ekki á strik, lauk keppni á þremur höggum á eftir Daiy og hafnaði í tíunda sæti mótsins sem er lélegasti árangur hans á mótinu í þau sjö skipti sem hann hefur verið með. Fjögur hjónabönd Persónulegt líf John Daly hefur ávalit verið til umfjöllunar hjá bandarískum íjöimiðlum enda af nægu að taka í skrautlegu lífi kappans. Fyrir utan vandamál með áfengi og offitu þá er Daly spilasjúklingur og hefur sem slíkum tekist að eyða stórum hluta þess verðlaunafés sem hann hefur unnið sér inn á ferlinum. Hann hefur kvænst fjórum sinnum, síðast konu að nafni Sherrie en hún og foreldrar hennar voru ákærð fyrir sölu eiturlyfja og peningaþvætti á árunum 1996-2002. Daly var ekki ákærður en þessar ákærur urðu ekki til að hjálpa honum. Nú virðist honum hins vegar hafa tekist að snúa við blaðinu og það verður fróðlegt að fylgjast með því hvort þessi 37 ára gamli kylfingur nær að fylgja eftir árangrinum á síðasta móti og uppfylla þær væntingar sem golfáhugamenn hafa gert til hans síðan hann vann sitt „Það eryndisleg til- finning að vinna mót á nýjan leik. Ég held að þetta sé sætasti sigurinn á ferlinum. Ég er búinn að bíða lengi, lengi eftir þess- um sigri." fyrsta mót á PGA-mótaröðinni árið 1991 og var kjörinn nýliði ársins á mótaröðinni sama ár. Ef hann heldur sér grönnum og þurrum og frá spilavítunum þá eru honum allir vegir færir. oskar@dvJs I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.