Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Qupperneq 9
DV Fréttlr
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004 9
Berjast gegn
ofdrykkju
Bretar ætla að skera upp
herör gegn áfengisdrykkju
landsmanna en þeir segja
að áfengisneyslan kosti
þjóðfélagið 20 milljarða
punda á ári. Sjónum verður
meðal annars beint að
krám og börum sem af-
greiða fólk undir 18 ára
aldri. Lögreglumönnum
verður fjölgað á viðkvæm-
um tímum, svo sem þegar
hleypt er út af börunum við
lokun og fólk getur átt von
á háum sektum fyrir
drykkjulæti. Þá verða vín-
flöskur merktar betur áður
og forvarnarstarf í skólum
aukið. Talið er að sex millj-
ónir manna helli í sig
áfengi í hverri viku og
áfengisdrykkja hafi aukist
almennt í landinu. Á hverju
ári eru 33 þúsund dauðsföll
rakin til misnotkunar á
áfengi.
Slor á akbraut
Lögreglan á ísafirði
hafði afskipti af tveimur ök-
mönnum vöruflutningabif-
reiða í bænum í liðinni
viku. I öðru tilvikinu var
ekki aðeins um að ræða að
farmur bílsins var of þung-
ur og ökuritaskífa í ólestri
heldur lak slor úr farminum
yfir alla akbrautina. I hinu
tilvikinu var aðeins um að
ræða að farmurinn var of
þungur. Annars var tiltölu-
lega rólegt yfir öllu á ísa-
firði í síðustu viku og að-
eins einn ökumaður tekinn
fyrir ölvun við akstur.
Fyrsta banaslysið við Kárahnjúka er 25 ára gamall starfsmaður Arnarfells varð fyr-
ir grjóthruni í Hafrahvammsgili
Rétt fyrir kl. 03:00 í fyrrinótt lést
25 ára íslenskur starfsmaður Arnar-
fells eftir vinnuslys við Kárahnjúka.
Maðurinn hafði, við annan mann,
unnið að undirbúningi fyrir borun í
bergið í Lfafrahvammsgili þar sem
verið er að reisa stíflu. Svo virðist
sem grjót hafi losnað fyrir ofan
staðinn sem mennirnir voru að
vinna á og fallið á annan þeirra.
Talið er að þyngd þess hafi numið
fleiri tugum kílóa. Sérfræðingur frá
Vinnueftirlitinu er væntanlegur til
Kárahnjúka snemma í dag til að
rannsaka slysið. Meðan á rannsókn
stendur mun umrætt vinnusvæði
verða lokað.
Samkvæmt upplýsingum frá að-
alverktakanum í Kárahnjúkum
Impregilo átti slysið sér stað kl.
02:47 og var þá strax brugðist við í
samræmi við viðbragðsáædun
vinnustaðarins. örfáum mínútum
síðar kemur sjúkraflutningafólk og
læknir frá öryggisteymi Impregilo á
staðinn. Kölluð var út þyrla Land-
helgisgæslunnar en hún var síðar
afturkölluð.
í tilkynningu sem Impregilo hef-
ur sent frá sér segir m.a. „Þegar
sjúkraflutningafólk kom á staðinn
var ekki lífsmark með manninum
og hófust því strax endurlífgunar-
tilraunir. Því miður báru þessar til-
raunir ekki árangur. Engin orð fá
lýst hversu sár forsvarsmönnum
Impregilo þykir þessi hörmulegi at-
burður. Hugur okkar er hjá fjöl-
skyldu, vinum og samstarfsmönn-
um þessa unga manns.“
Öryggisráð
Á virkjunarstað starfar sérstakt ör-
yggisráð allra sem að verkinu standa.
Það verður kallað saman og farið
verður í saumana á tildrögum slyss-
ins. Hið sama mun lögreglan gera og
sérfræðingur Vinnueftirlitsins.
Aðalverktakinn Impregilo tek-
ur fram í tilkynningu sinni að
maðurinn var klæddur í allan
þann hlífðarbúnað sem lög gera
ráð fyrir.
wnnusvæöi Inknö meöan
á rannsókn stendur
Málstofa um íslenkunám Niðurstaðan var að þá skorti bæði fé og skilningur Islendinga á vandmálum þeirra væri ekki fyrir hendi.
Útlendingar og íslenskunám
Hafa ekki efni á að læra
Einn helsti þröskuldurinn í vegi
fyrir að útlendingar læri íslensku er
mikið vinnuálag og dýrt nám. Stór
hluti innflytjenda sinnir láglauna-
störfum og þarf það fólk því að vinna
langan vinnudag til að sjá fyrir sér og
sínum. Fyrir vikið verður lítill tími til
að sinna formlegu íslenskunámi auk
þess sem fjárráð leyfa slflct nám alls
ekki. Þetta kom fram á málstofu um
íslenskukunnáttu útlendinga: „Já takk
íslenska", sem haldin var um helgina.
Þar kom einnig ffam að auka þarf
skilning almennings á íslandi á þeim
aðstæðum sem innflytjendur standa
iðulega ffammi fyrir. Viljann til að
læra málið vantaryfirleitt ekki, en að-
stæður geta verið svo erfiðar að þær
útiloka nám. Til að mynda er ís-
lenskunám alls ekki í boði alls staðar á
landinu. Auk þess er hæfni fólks til
tungumálanáms mismunandi eins og
gengur og gerist í öllu námi. Bak-
grunnur fólks hefur lfka mikið að
segja, fólk ffá löndum Norður-Evrópu
á að öllu jöfnu auðveldar með að læra
íslensku en fólk sem kemur ffá öðmm
málsvæðum. Því er nauðsynlegt að
bjóða upp á íslenskunám á mismun-
andi stigum. En fyrst og fremst skort-
ir markvissa stefnu stjómvalda í
þessu mikilvæga máli, segir í niður-
stöðum málstofunnar.
habil.is
■fasieignir á nexinu