Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.2004, Síða 19
TJV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 2004 7 9
mmm
Real freistar
Ljungbergs
Svíinn Freddie Ljung-
berg, einn af lykilmönnum
Arsenal-liðsins, sagði við
enska íjölmiðla um helgina
að Real Madrid freistaði
hans en orðrómur er uppi
um að bæði Real Madrid og
Inter Milan hafi áhuga á
kappanum, „Real Madrid er
stórkostlegt félag og það er
heiður fyrir mig ef þeir hafa
áhuga á mér. I dag er ég
hins vegar að spila fyrir Ars-
enal og er ánægður en ég
ætla ekki að loka neinum
dyrum í framtíðinni," sagði
Ljungberg, sem er metinn á
tuttugu milljónir punda.
Ekki þykir líídegt að for-
ráðamenn Arsenal hafi
áhuga á því að selja hann
enda yfirlýst stefna þeirra
að selja ekki lykilmenn
liðsins.
Neitaði að
koma af
bekknum
Allen Iverson, helsta
stjarna Philadelphia 76ers í
NBA-deildinni, spilaði ekki
með si'nu liði gegn Detroit
Pistóns á sunnudagskvöldið
þar sem hann vildi ekki
koma af bekknum. Iverson
hafði misst af þremur leikj-
um á undan vegna meiðsla
og Chris Ford, þjálfari
liðsins, var ekki viss um að
hann væri í formi til að
byrja leikinn. „Ég byrja
alltaf og ef ég er ekki nógu
góður til að byrja er eins
gott að sleppa því að spila,"
sagði Iverson.
Öllliðfáleyfi
í Landsbanka-
deildinni
DV Sport hefur áreið-
anlegar heimildir fyrir því
að öll lið Landsbankadeild-
ar karla í knattspyrnu hafi
fullnægt skilyrðum Leyfis-
ráðs KSÍ og muni fá leyfi til
þátttöku í Landsbanka-
deUdinni á komandi tíma-
bUi. Leyfisráðið kom til
fundar í gær og verður til-
kynnt um úrskurð þess í
dag.
verkefni landsliosins
íslenska landsliðið í knattspyrnu mun ekki njóta krafta Rúnars
Kristinssonar í næstu fjórum vináttuleikjum; gegn Albönum, Lettum,
Japönum og Englendingum. Rúnar, sem leikið hefur flesta Iandsleiki allra
íslenskra knattspyrnumanna, vill gefa öðrum leikmönnum færi á að sanna
sig og segist vera kominn á þann aldur að hann þurfi á almennilegu
sumarfríi að halda - með fjölskyldunni.
„Ég hef ákveðið að gefa ekki kost
á mér í næstu verkefni landsliðsins,
leikina gegn Albönum og Lettum og
síðan leikina tvo gegn Japan og
Englandi íjúní. Éghef þegar tilkynnt
Ásgeiri og Loga ákvörðun mína og
þeir skildu hana fullkomlega,“ sagði
Rúnar Kristinsson þegar DV Sport
spurði hann hvort hann gæfi ennþá
kost á sér í íslenska landsliðið í
knattspyrnu fyrir komandi verkefni
liðsins.
Of mikið álag
Rúnar gaf út þá yfirlýsingu fýrir
leikina gegn Þjóðverjum síðasta
haust að hann ætlaði að hætta með
landsliðinu eftir þá leiki en gaf þó
kost á sér í vináttuleik gegn Mexí-
kóum í nóvember. Hann þurfti að
draga sig út úr hópnum fyrir þann
leik vegna meiðsla og persónulegra
mála og því má leiða líkur að þvf að
hann hafi spilað sinn síðasta
landsleik gegn Þjóðverjum í Ham-
borg 11. október á síðasta ári.
„Ég finn það núna að ég þarf á
hvíld að halda. Ég er farinn að stífna
upp eftir leiki og miðað við þá leiki
sem við eigum eftir f belgísku deild-
inni eigum við leik í deildinni
tveimur dögum eftir leikinn gegn
Lettum. Það er einfaldlega orðið of
mikið álag fyrir mig að spila tvo leiki
með svo stuttu millibili og ég er ekki
tilbúinn í slíkt núna.“
Verð að fá langt frí
Rúnar sagði að auðvitað hefði
það verið draumur fyrir hvern knatt-
spyrnumann að spila gegn Eng-
lendingum en það þýddi lítið fyrir
hann að hugsa um það.
„Ég er kominn á þann aldur að ég
þarf að fá hvfld. Ég þarf mitt frí eftir
tímabil, sem ég myndi ekki fá ef ég
væri valinn í hópinn fyrir mótið í
Englandi. Ég fann það í fyrra þegar
við spiluðum gegn Færeyingum og
Litháum í byrjun júní hversu erfitt
það var fyrir mig að halda mér í
formi frá því að tímabilinu lauk þar
til kom að landsleikjunum og ég get
það ekki aftur. Tímabilinu lýkur 15.
maí og það þýddi að ég þurfti að
halda mér í formi í tvær vikur.
Mótinu lýkur síðan ekki fyrr en 6.
júní og þá á ég ekki nema tvær vikur
eftir af sumarfríinu mínu. Það er
bara of lítið fyrir mann á mínum
aldri. Auk þess finnst mér fjöl-
skyldan mín eiga það inni hjá mér
að við förum í almennilegt sumarfrí.
Við erum komin með þrjú börn og
íjölskyldan þarf einhvern tíma að
vera í forgangi."
Þarf að finna arftaka
Rúnar sagði líka að með fjarveru
hans gæfist tækifæri til að skoða
aðra leikmenn sem ella hefðu ekki
fengið tækifæri.
„Ég held að það sé nauðsynlegt
fyrir landsliðsþjálfarana að fá tæki-
færi til að prófa fleiri leikmenn. Ég
hef spilað yfir hundrað landsleiki og
því skipta þessir vináttulandsleikir
ekki jafn miklu máli fyrir mig og þeir
gera fyrir unga leikmenn sem eru að
„Auk þess finnst mér
fjölskyldan mín eiga
það inni hjá mér að
við förum í almenni-
legt sumarfrí. Við
erurn komin með þrjú
börn og fjölskyldan
þarf einhvern tíma að
vera í forgangi."
stíga sín fyrstu skref með lands-
liðinu. Það þarf að finna menn sem
geta tekið við af okkur gömlu
mönnunum og þessir leikir eru
tilvaldir í það.
Eins og staðan er í dag hef ég
spilað minn síðasta landsleik en ég
hef lært það að maður á aldrei að
segja aldrei. Ef það verður talað við
mig í sumar og ég beðinn að vera
með mun ég að sjálfsögðu skoða
málið vandlega. Þá hef ég fengið
mitt frí og verð væntanlega kominn í
toppform fyrir næsta tímabil. Ég hef
hug á að spila næstu tvö til þrjú ár en
til þess verð ég að hugsa vel um mig.
Ég er að verða 35 ára gamall og held
að ég hafi skilað mínu til íslenska
landsliðsins. Þetta er búinn að vera
frábær tími en ég held að það sé rétt
að hleypa öðrum að á þessum
tímapunkti.11 oskar@dv.is
Rúnar Kristinsson, landsleikjahæsti íslenski knattspyrnumaðurinn, hefur ákveðið
að setja punkt fyrir aftan landsliðsferilinn - í bili að minnsta kosti
Gelur ekki kost á sér í næstu
Bless í bili Rúiuu Kristins-
son gefur ekki kost áser I
komondi verkefni íslenska
landsliðsins.
DV-myndHári
■ '
.ÍvS'hÍJ
.
*
•mí
mm
'
&
__