Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Síða 9
T
Kirkjubæjarklaustur ibúar slegnir
óhug og furðu lostniryfir fréttum af
framferði prestsins.
Sveit í sorta
„Þetta er sjokk,“ segir Stella
Kristjánsdóttir, skólastjóri í
Kirkjubæjarskóla, þar sem séra
Baldur Gautur Baldursson stund-
aði forfallakennslu þegar eftir var
leitað. Viðbrögð skólastjórans
lýsa vel hug fólks í Skaftárhreppi;
það er slegið. „Mér bregður hvað
heimurinn er spilltur og vondur.
Ég hefði aldrei leyft þessum
manni að kenna hér hefði ég haft
hugmynd um þetta,“ segir Stella
skólastjóri.
Séra Baldur Gautur leysti
sóknarprestinn og eiginkonu
sína, séra Bryndísi Möllu
Eiísdóttur, af sem sóknarprestur
á meðan hún var í bameignar-
leyfi frá því í mars 2002 og fram
til sama tíma ári síðar. Fermdi
hann þá bömin í sveitinni í fyrra-
vor en meðal þeirra var sonur
hjónanna á Ytri Steinsmýri:
„Ég á ekki til orð og vont er ef
satt er,“ segir Margrét Ólafsdótt-
ir, húsfreyja á Ytri Steinsmýri,
sem hélt syni sínum fermingar-
veislu samkvæmt hefð og þangað
mætti séra Baldur Gautur að lok-
inni athöfii: „Hann stoppaði
stutt við en ég man það eitt að
hann kom vel fyrir og bauð af sér
góðan þokka," segir húsfreyjan.
.Annars hef ég lítið af prests-
hjónunum að segja. Sjálf fer ég
helst aldrei í kirkju því bekkimir
þar em svo harðir og ég slæm í
baki."
Stelia Kristjánsdóttir skóia-
stjóri segir að aldrei hafi verið
kvartað yfir séra Baldri Gauti í
tengslum við forfallakennslu
hans. Prestshjónin hafi verið vel
liðin á Klaustri. Þau eiga 6 ára
stúlku sem er í fyrsta bekk skól-
ans og svo annað yngra sem fyrr
greindi.
Biskupsstofa harmar
„Biskupsstofu hafa borist upplýs-
ingar þess efnis að rannsókn standi
yfir á máli prests vegna meintra
kynferðisafbrota. Maðurinn er ekki í
stöðu sem þjónandi prestur. Bisk-
upsstofa harmar að mál þetta skuli
hafa komið upp en itrekar að málið
er í rannsókn og engin ákæra hefur
verið birt. Biskupsstofa mun fylgjast
náið með framvindu mála."
Adda Steina Björnsdóttir, verkefnis-
stjóri á Biskupsstofu, segist ekki vilja
tjá sig um efnisatriði málsins. Hún
segir þóaðum presta gildi almenn-
ar reglur um réttindi pg skyldur
starfsmanna auk þess sem gerðar
séu enn frekari kröfur vegna em-
bættisgengis presta. Þar segi meðal
annars að kandidat megi ekki hafa
gerstsekur um athæfí sem ætla
megi að rýri álit á honum og sé
ósamboðið manni í preststarfí.
m
SMAHUNDA-
SÝNING
GARÐHEIMA
20. og 21. mars frá kl. 12.00-17.00.
£? Wðd
á SjjNWguNN' verður w.a.:
Ótrúlegambreyttflóra
STYláhU'VldQ'
er é íslartdi í dag!
• Fjölbreytt úrval smáhunda til sýnis
• Fatatíska smáhunda sýnd
• Hundasnyrtir verður með sýnikennslu
• Dýralaeknir til skrafs og ráðagerða
• Kynníst smáhundadeild Hundaraektarfélags fislands
• Nýja hundabókin kynnt
• Kynning á Royal Canin, Proplan og Hills hundaföðri
V >
ROY/4L CKNIN
m «
£* A' - um
Purina
PROPIAN
■ ’WAgriaa
Dýravernd l
TILBOD TILBOÐ
TILBOÐ TILBOÐ
Opið alla daga
til klukkan 21!
GARÐHEIMAR
Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta
Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00 • www.gardheimar.is
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
1540 33 20
Ú,;,,
LAUGARDAGUR 20. MARS 2004
DV Fréttir
Söguleg stund í blaðaútgáfu á íslandi
Fyrsti blaðasjálfsalinn
í gær var söguleg stund í blaðaút-
gáfu á íslandi. Þá var fyrsti blaða-
sjálfsalinn settur upp. Hann er stað-
settur í Kringlunni skammt frá
Kringlubíó. Nú er handhægt að
snara fram smámynt og fá sjóðheit-
ar fréttir í hendur. Fyrirhugað er að
koma upp fleiri slíkum sjálfsölum til
dæmis í Smáralind og víðar. Þeir
sem ferðast hafa erlendis þekkja
þetta fyrirkomulag vel en hingað til
hafa blaðasjálfsalar ekki þekkst hér á
landi.
„Þetta er stór stund og tii marks
um stórsókn DV á öllum vígstöðv-
um. Við erum með aðrar áherslur -
annað fréttamat - en Mogginn og
Fréttablaðið og þetta undirstrikar
það. Blað um fólk fyrir fólk,“ segir
Mikael Torfason, annar ritstjóra DV.
Að sögn Mikaels hefur lausasala
blaðsins þrefaldast frá því nýir eig-
endur komu að blaðinu og endur-
reisnin hófst.
Fréttir ávallt innan seilingar
Fyrsti blaðasjálfsalinn á Islandi hef-
urnú verið settur upp. Hann er stað-
settur í Kringlunni skammt frá
Kringlubió.