Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Qupperneq 15
DV Fókus
LAUGARDAGUR 20. MARS 2004 15
SAMSETT MYND DV
sl
\'-Vv\\\x
»
******' yf W M v.- 'jp' Jgj'
þegar skoðanakannanir sýndu að það
væri áhugi á hans framboði og hélt
blaðamannafund heima á Barða-
strönd með Búbbu og dætrunum
Döllu og Tinnu. Fjölskyldan var kom-
in í framboð og það var ekki aftur snú-
ið. Ólafur hélt forystunni í skoðana-
könnunum og þótt dregið hafi saman
með honum og keppinautunum síð-
ustu dagana fyrir kosningar, þá varð
hann efstur með rúm 40 prósent at-
kvæða. Næstur kom Pétur Kr. Haf-
stein hæstaréttardómari og þar á eftir
Guðrún Agnarsdóttir læknir. Lestina
rak Ástþór Magnússon en Guðrún
Pétursdóttir hafði hætt nokkru fyrir
kosningarnar.
Ólafur og fjölskylda fluttu í nýupp-
gert íbúðarhúsið á Bessastöðum dag-
inn sem hann tók við embættinu.
Hjónin ferðuðust um landið og eyddu
verslunarmannahelginni á bindindis-
hátíðinni í Galtalæk. Mynd af þeim
inni í tjaldi um verslunarmannahelgi
birtist í blöðunum. Þetta þótti sætt.
En friðurinn um embættið var úti
þegar Ólafur var á ferð um Barða-
strandarsýslu og gagnrýndi vegina í
sýslunni. Strax þarna var hann gagn-
rýndur fyrir að fara út fyrir ramma og
hefðir embættisins. Það var Alþingis
að ákveða hvaða vegi ætti að laga og
forsetinn átti að margra mati að halda
kjafti um það. Hann hefur verið gagn-
rýndur fyrir að tala ógætilega um ut-
anríkisstefnu Islands, fyrir að hafa
tekið fram fyrir hendurnar á utanrík-
isráðherra, samgönguráðherra og for-
sætisráðherra, hann er gagnrýndur
fyrir samskipti við útlendinga, nú síð-
ast rússneska auðkýfinginn Roman
Abramovich sem hann flaug með í
737 Boeing einkaþotu frá Síberíu til
London til að fara á fótboltaleik með
Chelsea. Mynd frá þeim leik þar sem
Ólafur fagnar ógurlega, hefur verið
birt í breskum fjölmiðlum og hér í DV.
Stuðningsmenn Ólafs segja að hann
megi hvorki tala vel um kvótakerfið né
gagnrýna gagnagrunninn án þess að
andstæðingar hans hendi það á lofti
og gagnrýni hann fyrir að fara illa með
embættið.
Sérstakt samband við Davíð
Davíð Oddsson hefur verið for-
sætisráðherra allan þann tíma sem
Ólafur Ragnar hefur setið í embætti
og Halldór Ásgrímsson verið utan-
ríkisráðherra. Allir muna eftir senn-
um sem þeir Davíð og Ólafur tóku á
Alþingi og eru ummælin um skít-
lega eðlið oft rifjuð upp. Þá sagði
Davíð að hann myndi aldrei sitja
sem forsætisráðherra í skjóli Ólafs
Ragnars Grímssonar. Þetta vakti
umræðu um það hvernig Davíð
myndi líða þegar hann þyrfti að
hylla forsetann. Menn nánir Davíð
hafa gengið hart fram í að gagnrýna
Ólaf Ragnar og í látunum í kringum
heimastjórnarafmælið sagðist Dav-
íð ekki skilja upphlaupið í Ólafi
Ragnari, sagði að hann hefði sjálfur
valið að vera á skíðum í útlöndum.
„Ég er viss um að hann vilji ekki að
eina framlag hans til þessara hátíð-
arhalda sé að vera í hnút erlendis,
móðgaður út af engu.“ Þegar hann
var spurður um það hvort málið
korni til með að hafa áhrif á sam-
skipti forsetaembættisins og for-
sætisráðuneytisins sagði Davíð.
„Ekki nokkur áhrif." Þetta síðasta
lýsir sambandi þeirra nokkuð vel.
Þótt þeir hafi tekist hressilega á,
fullyrðir fólk sem er nákomið Ólafi
að hann tali aldrei illa um Davíð, á
milli þeirra sé sérstakt traust. Þeir
hittast mánaðarlega og fara yfir mál
og er það allt með kurteislegum
hætti og þannig að þeir geti treyst
hvor öðrum. Þeir virðast einnig
geta gert snyrtilega út um deilumál.
Vitað er að Ólafi þótti vænt um það
hvernig Davíð kom fram í tengslum
Þótt þeir hafi tekist
hressilega á, fullyrðir
fólk sem er nákomið
Ólafi að hann tali
aldrei itla um Davið, á
milli þeirrasé sérstakt
traust.
við veikindi og andlát Guðrúnar
Katrínar.
Mörgum þykir forsetaembættið
valdalaust og dýrt. Kosmaðurinn er
rúmlega 150 milljónir króna á ári og
oft eru útgjöldin umfram áætlanir.
Það er í andstöðu við það sem Ólafur
Ragnar boðaði þegar hann tók við
embættinu. Starfsfólki hefur þó ekki
fjölgað á skrifstofu forsetans. Hann
skrifar ailar ræður sjálfur sem eru á
milli 50-70 á ári. Gagnrýnendur Ólafs
telja hann hafa gert embættið að
tignarstöðu sem sæmi ekki íslending-
um og forsetinn sé oft á tíðum líkari
kóngi en lýðkjömum manni. Þessu er
Ólafur Ragnar algjörlega ósammála
og ítrekaði á blaðamannafundinum í
vöamni að íslenska forsetaembættið
væri hefðarembætti.
Dorrit kemur til skjalanna
Gamansagan er lífseig um að
Ólafur hafi kynnst Dorrit Moussaieff
þegar hann var að máta kórónu í
gimsteinabúð föður hennar. Hún
hefur reyndar greint frá því sjálf
hvernig þau kynntust í matarboði og
að henni hafi í upphafi ekkert litist á
þennan mann sem talaði endalaust
um ísland. Þegar þau hittust daginn
eftir mundi hún ekkert eftir hon-
um. Hann var seigur, hún varð ást-
fangin af fslandi á undan honum.
„Hann var enn spurningamerki þeg-
ar ég var orðin ástfangin af landinu,"
sagði hún í viðtali við Haaretz í ísra-
el. Þau fóm saman á skíði og henni
þótti stíllinn hjá honum klaufalegur
þó komst hann á undan henni niður
brekkurnar og það líkaði henni.
Braut öxl en ekki af baki
dottinn
Á íslandi fóru af stað vangaveltur
um það hvort forsetinn væri kominn
með kærustu og hver þessi dularfulla
vinkona forsetans væri sem sæist
stundum með honum. Þegar hann var
á yfirreið um Austfirði spurði frétta-
maður Stöðvar 2 á Austurlandi hann
hvort hann ætti vinkonu, hann játti
því og bað um tilfinningalegt svigrúm
sem var að mati vina hans nauðsyn-
legt. Gunnar V. Andrésson ljósmynd-
ari DV hitti Ólaf og spurði hann um
málið þar sem hann játaði að kona
væri í spilinu. Breska blaðið Times
birti svo grein um það að milljóna-
mærin Dorrit Moussaieff væri komin
með íslenskan bónda upp á arminn og
hafði eftir einhverjum vinum hennar
og íyrrverandi kærasta að það myndi
nú varla endast. Þegar hér var komið
sögu var Dorrit á íslandi og Ólafur
bauð henni á hestbak. Á Leimbakka í
Landsveit settu þeir Sveinn R. Eyjólfs-
son og Haraldur í Andra hesta undir
kæmstuparið. Fyrst fengu allir sér
pönnukökur. Dorrit sýndi það í rétt-
inni að hún var vön hestum en Ólafur
var ekki eins vanur. Eftir kortersreið,
þegar hestur hans hnaut síðan ákvað
Ólafur, eins og hann orðaði það í við-
tali, að detta frekar á öxlina en höfuð-
ið. Gunnar tók ógleymanlegar myndir
af því hvernig Dorrit stumraði yfir hin-
um særða forseta. Þegar þau gengu
saman út af Borgarspítalanum vissi
þjóðin öll um ástarsamband hins
axlarbrotna forseta og hinnar útlendu
konu sem síðan átti eftir að dansa sig
inn í hjörtu íslensku þjóðarinnar.
kgb@dv.is