Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2004, Síða 34
>S4 LAUOARDAGUR 20. MARS 2004
Sport UV
1 í SJÓNVARPINU
r t
Arsenal-Bolton
Sammi sopi gegn Arsene Wenger.
Eina von Samma um að stela
stigi, eða stigum, er að lauma úr
viskípelanum í te Arsenal-
manna. Sammi er nú vanur að
gæta pelans eins og barns og
áfengisníska hans á eftir að verða
honum að falli á Highbury. Lau.
Stöð2kl. 15.00
Hef duldar KR-
tilfinningar
Það er óhætt að segja að gamla
markamaskínan, Heimir Karlsson,
bindi bagga sína ekki sömu hnútum
Newcastle-Charlton
Það hafa fáir á Englandi fagnað
eins mikið og Carlton Cole þegar
leikmenn Leicester lentu í vanda.
Hann nýtur þess að vera laus frá
kastljósi fjölmiðlanna og mun
hreinlega ríða röftum á St.
James's Park í dag. Tapar svo
glórunni eftir leik. Lau. Sýn ki. 17.30
Portsmouth-Southampton
„Rólyndismaðurinn" Eyal Berko-
vic hefur lofað að bryðja prósakið
sitt áður en hann mætir sínum
gömlu félögum. Ef hann lýgur þá
verða læti. Sun. Sýn kl. iö.oo
Aston Villa-Blackburn
Það reynir á Souness og bringuhárin
í dag. Souness verður seint sakaður
um að reyna ekki að hleypa lífi í sína
menn því hann slóst við Yorke á
æfingu enda glaumgosinn verið
meðvitundarlaus í vetur. Ef það
dugar ekki má alltaf prófa að safna
hormottu á nýjan leik.
Chelsea-Fulham
Blindir og heyrnarlausir vita að
Ranieri verður rekinn í sumar. Abra-
movich er búinn að niðurlægja hann
á allan hátt í vetur án þess að Ranieri
bregðist við. Karakter Italans er slíkur
BOLTINN EFTIRVINNU
að hann myndi vart kippa sér upp við
að Roman mygi á hann - í beinni
útsendingu.
Leicester-Everton
Þrjótamir þrír eru eflaust sárir í
bossanum eftir setuna í spænska
steininum. Duncan Ferguson
verður upp á sitt besta í
kyndingunum og ef eitthvað er að
marka fyrri „afrek“ Stóra Dunc þá
verður Frank Sinclair skotmark
dagsins.
Liverpool-Wolves
Enn og aftur eru Liverpool-menn
sannfærðir um það að þeir séu
Sinclair er saklaus
LiÐIÐ MITT
og samferðarmennirnir. Flestir láta
#ér nægja að eiga eitt uppáhaldslið í
enska boltanum en slíkt á ekki upp á
pallborðið hjá Heimi því hann á sér
uppáhaldslið í öllum deildum enska
boltans.
„Það eru eiginlega samt tvö lið sem
eru í mestu uppáhaldi hjá mér. Fyrst
er það Derby County og svo hef ég
alltaf borið sterkar tilfinningar til
Newcastle," sagði morgunhaninn
ljúfi. „Ástæðan fyrir því að ég held
með Derby er að þeir urðu Englands-
meistarar 1971-72 og ef ég man rétt þá
unnu þeir tvö ár í röð. Það er skelfilegt
að fylgjast með þessu liði í dag og
maður er eiginlega orðinn úrkula
vonar um að þeir komist upp í úrvals-
deildina," sagði Heimir en Derby
stefnir reyndar hraðbyri í 2. deildina
eins og staðan er í dag. Heimir hefur
engar sérstakar skýringu á því af
hverju hann haldi með Newcastle.
„Eg held að ástæðan fyrir því að ég
haldi með Newcastle sé sú að ég hafi
duldar tilfinningar til KR. Ég held það
blundi í öllum íslendingum," sagði
Heimir sem reyndar lék í röndóttum
búningum til margra ára með Víkingi.
„Ég var litblindur og spilaði þess
vegna með Víkingi en ég hélt alltaf að
ég væri að spila með KR. Það var
passað vel upp á að ég vissi ekki með
Ívaða liði ég spilaði," sagði Heimir og
ló dátt. Hann á líka lið í næstu
deildum Englands.
„Það er náttúrulega Newcastle í
efstu deild. Svo á ég Derby County í 1.
deild. Mitt lið í 2. deild
er síðan QPR en ég
hef lengi haldið
upp á þá. 1 3.
deildinni held ég
síðan mikið upp
á Hull City. Ég bjó
rétt fýrir útan Hull
í mörg ár. Þeir
eiga nýjan 25
þúsund manna völl
og þeir fá svona 13
þúsund á leik.
Lið á
uppleið."
Það verður væntanlega mikið
fjölmiðlafár á Walker's Stadium í
dag þegar Leicester City leikur sinn
fyrsta heimaleik eftir skandalinn á
La Manga. KR-ingurinn Arnar
Gunnlaugsson lék með Leicester
fyrir nokkrum árum síðan og þekkir
því vel til félagsins sem og nokkurra
þeirra leikmanna sem voru
bendlaðir við málið. Við spurðum
Arnar fyrst að því hvaða móttökum
leikmennimir mættu eiga von á
þegar þeir ganga út á völlinn.
„Þeir mega búast við mjög góðum
móttökum. Stuðningsmenn
Leicester eru mjög öflugir og þeir
styðja sína menn. Þeir mega aftur á
móti eiga von á ýmsu þegar þeir spila
á útivelli," sagði Arnar sem telur að
þeir fái stuðning frá fólkinu í
Leicester þar til sekt þeirra er
sönnuð.
Þegar Arnar var í herbúðum
Leicester voru einnig í liðinu Matt
Elliott og James Scowcroft, sem voru
handteknir í upphafi en sleppt
fljótlega, sem og Frank Sinclair sem
er einn þremenninganna sem þurftu
að dúsa í spænska steininum í viku.
„Ég þekki þessa stráka mjög vel.
Þegar Bretarnir fara í æfingaferð þá
er smá vitleysa alltaf í gangi en ekkert
í líkingu við það sem þeir eru sakaðir
um. Það er aðallega bara fyllerí og
svona. Það er í eðli Bretanna að
vinna mikið og skemmta sér mikið,“
sagði Arnar sem náði að kynnast
áðurnefndum Frank Sinclair
ágætlega.
„Ég veit ekki hvernig Dickov og
Gillespie eru en ég get vottað að það
„Ég trúi því ekki í eina
mínútu að Sinclair
hafi staðið í þeirri
vitleysu sem hann er
sakaður um. Það væri
alveg út úr karakter
hjá honum."
er mjög ólíkt Sinclair að standa í
einhverri svona vitleysu. Þetta er
hress og góður drengur. Ég trúi því
ekki í eina mínútu að hann hafi
staðið í þeirri vitleysu sem hann er
sakaður um. Það væri alveg út úr
karakter hjá honum. Ég kynntist
Elliott líka vel og það er frábær
strákur sem myndi aldrei gera slíka
hluti,“ sagði Arnar um þessa fyrrum
félaga sína en það kom honum
ekkert á óvart að liðið skyldi vinna
fyrsta leikinn eftir að þeir komu
heim frá Spáni.
„Það er alveg dæmigert fyrir
Leicester að sýna andlegan styrk og
klára dæmið. Ég held líka að Micky
Adams hafi verið dauðfeginn að geta
farið að einbeita sér að fótbolta á
nýjan leik,“ sagði Arnar sem á von á
hagstæðum úrslitum hjá Leicester í
dag en þess má geta að þremenn-
ingarnir verða væntanlega allir í
hópnum í dag.
„Ég held þeir haldi uppteknum
hætti. Ég á ekki von á því að Everton
vinni. Leicester tekur annað hvort
þennan leik eða hann endar með
jafntefli. Tilfinningin er þó meira í þá
átt að Leicester þjappi sér saman og
vinni leikinn."
Stendur með sínum mönnum Arnar Gunnlaugsson á erfitt með trúa þviað fyrrum félagar
hans hafi hagað sér eins og villimenn á Spáni. Hann sést hér í leik með Leicester fyrir nokkrum
árum siðan og það er fyrirliði Arsenal, Patrick Vieira, sem sést hér tækla Arnar.
Souness í stríði við Dwight Yorke og Andy Cole
Graeme Souness, stjóri Black-
burn, á ekki sjö dagana sæla í starfi
nú um stundir. Stjörnusenterarnir
hans, Andy Cole og Dwight Yorke,
virðast hafa snúið bökum saman og
gegn Souness.
Fyrst lenti Yorke og Souness saman
á æfingavellinum þar sem þeir
tækluðu hvor annan miskunnarlaust.
Það endaði með heiftarlegu rifrildi þar
sem stór orð voru látin falla. Souness
sagði að slíkt. gerist í hita leiksins og
málið væri gleymt og grafið af hans
hálfu.
í lið með Yorke
. Það var klárlega ekki raunin því
Ýorke virðist hafa fengið sinn besta
vin, Andy Cole, í lið með sér
því degi eftir slagsmálin
lagði Cole inn kæru á
hendur Souness til
samtaka atvinnu-
knattspyrnumanna
þar sem hann ásakar
Souness um að leggja
sig í einelti. Það kom
Souness algjörlega í
opna skjöldu.
Souness hissa
„Það kom mér mjög á
óvart að Andy skyldi
kvarta yfir því
hvernig ég
kem
fram
við hann. Þegar hann var rekinn
af velli gegn Southampton
„refsaði" ég honum með
því að leyfa honum að fara
í frí með fjölskyldunni til
Dubai. Þetta er ótrúleg
framkoma hjá Andy,“
sagði Souness sem átti
greinilega ekki von á
þessu útspili Coles.
Samtök átvinnu-
knattspyrnumanna eru
farin í málið af fullum
krafti og vonast
til þess að
leysa
það
sem fyrst þar sem enginn græði á því
að hafa hlutina svona.
Spila þeir?
Souness er því mikill vandi á
höndum um helgina því hans lið er
ekki í það góðum málum að það geti
leyft sér að vera án Coles og Yorkes en
að sama skapi er honum vart stætt á
því að tefla fram mönnum sem
klárlega hafa enga virðingu fyrir
honum eða hans störfum.
Blackburn mætir Aston Villa á Villa
Park í dag og BBC hafði heimildir fyrir
því í gær að þeir félagar yrðu í hópnum
þrátt fyrir allt. Jon Stead er klár í
slaginn og verður væntanlega í liðinu
og svo er spurning hvort Souness tefli
öðrum hvorum þeirra fram.
komnir á beinu brautina. Fá
harkalega lendingu og Owen verður
settur á sjálfsmorðsvakt eftir að hafa
skotið í stöng úr víti.
Man Utd-Tottenham
Það verður markaveisla þegar tvær
af slökustu vörnum deildarinnar
reyna að hemja spræka sóknarmenn
beggja liða.. Fergie allur annar og
betri eftir að hafa fengið gangráðinn
og hann storkar örlögunum með því
að setja Wes Brown í liðið.
Middlesbrough-Birmingham
Savage í banni þýðir bara eitt -
bbboooorrrrriiiinnnngggg...
REMBINGURINN
Eitt heitasta
umræðuefnið í enska
boltanum þessa
dagana er hvort
Michael
Owen eigi að
halda áfram að
taka víti fyrir
Liverpool. Síðustu
tvær spyrnur hans
hafa farið í súginn
og reyndar hefur
hann ldúðrað 10
af þeim 23 vítaspyrnum sem hann
hefur tekið fyrir félagið. Við
ræddum við tvo glerharða
Liverpool-menn um málið og þeir
eru algjörlega á öndverðum meiði í
málinu.
Bara fyrir stórstjörnur
að sparka innan fótar
„Nei, Owen á ekki að taka víti.
Þegar maður er búinn að klikka
einu sinni eða tvisvar þá á að láta
næsta mann taka vítið," sagði einn
kunnasti dómari landsins, Magnús
Pétursson, sem einmitt er staddur á
Englandi þar sem hann ætlar að sjá
leik Liverpool og Wolves. „Ég myndi
ekki láta hann taka víti. Það er fullt
af mönnum sem geta tekið víti í
liðinu. Til að mynda Hamann. Svo
er einkennilegt að sjá hvernig hann
tekur vítin. Hann tekur þau innan
fótar. Það er bara fyrir stórstjörnur
eins og Henry að taka
slík víti því. Owen
horfir aldrei á
markvörðinn.
Hann bara
\ sparkar og horfir
eitthvað út í
loftið. Henry aftur
á móti horfir á
markvörðinn og
sér hvað
hann
gerir."
Kemurað þvíað hann
skorar úrvítunum
„Auðvitað á Owen að taka vítin.
Það myndi endanlega rústa sjálfs-
traustinu hjá stráknum ef hann fær
ekki að taka vítin," sagði stór-
söngvarinn og íþróttafrétta-
maðurinn Guðjón Guðmundsson.
„Það kemur að því að hann skorar
úr þessum vítum. Svo verður að
segja í þessu sambandi að
frammistaða hans á punktinum
endurspeglar frammistöðu liðsins
og framkvæmdastjórans. Það er allt
í tómu tjóni þarna og liðið að spila
leiðinlegan fótbolta. Svo er
árangurinn langt undir væntingum
því þeir ætluðu sér meistaratitilinn.
Staðan er
bara sú að
þeir eru
ekki með
lið til þess.
Þetta er
mín
skoðun og
aðrir eru
með öðru-
vísi skoð-
anir og
þeir verða
að fá að
hafa þær.“