Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Page 9

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Page 9
TlMARIT VPl 1960 3 3. — Hinn 14.4. 1959, þar flutti erindi sivil. ingeniör Rolf Wattne frá Statens Teknologisk Institut i Osló, er hann nefndi: „Ingeniören og ar- beidsledelse". 4. — Hinn 17.9. 1959. Erindi flutti prófessor Þor- bergur Þorvaldsson frá Saskatchewan í Kanada, er hann nefndi: „Vísindalegar rann- sóknir í Saskatchewan", 5. — Hinn 27.10. 1959 var haldinn auka-aðalfund- ur. Fundarefnið var: 1) Staðfesting á lögum Efnaverkfræðideildar VFl. 2) Staðfesting á samningi við Húsnæðismála- stjórn rikisins. 3) Gjaldskrárbreytingar. 4) Erindi „Miklabraut í Reykjavik", er Ein- ar B. Pálsson yfirverkfræðingur flutti. 6. — Hinn 26.11. 1959. Erindi, er nefnist „Flug- mál“, flutti þar Agnar Kofoed Hansen, flug- málastjóri. 7. Hinn 29. janúar 1960 var hinn árlegi skemmti- fundur félagsins haldinn í ,,LIDO“. Fundarsókn var frekar dræm á öllum þessum fundum, þegar tillit er tekið til félagatölunnar. Um fundarsókn og fundahöld mætti ræða langt mál. Eins og um var getið virðist enn vera mikil deyfð yfir fundahöldum sérgreinadeildanna, og fundarsókn á fundi félagsins er allt of dræm. Þó skal þess getið, að tala félagsmanna á fundum RVFl er hlutfallslega góð, en um fundarsókn í öðrum deildum er mér ekki kunnugt. Eins og menn rekur minni til, var þetta mál ýtarlega rætt á síðasta aðalfundi, og benti Einar B. Pálsson á nauðsyn á nánara samstarfi milli félagsstjórnar og deild- anna og bar fram ályktunartillögu þess efnis til félags- stjórnarinnar, er hlaut einróma samþykki fundarins. Af þessu tilefni var mál þetta rætt á stjórnarfundum VFl fyrst í marz s. 1. og var m. a. samþykkt að rita for- manni VVFl bréf um að halda aðalfund í deildinni hið fyrsta og koma starfseminni í sæmandi horf. Síðar átti stjórnin fund með formönnum deildanna, og var sam- þykkt að gera tilraun til þess að gera fyrirfram funda- skrá fyrir vetrarstarfsemina i heild og hvetja menn til fundarsóknar. Formenn sérdeilda skyldu hafa samband við framkv.stj. um fundarskrána. Árangur virðist því miður hafa orðið lítill eins og ljóst er af skýrslu þessari. Stjórnir deildanna verða að gera sér ljóst, að enda þótt formanni deildanna beri að eiga frumkvæði að því að kalla saman stjórnarfundi og undir- búa félagsfundi, að þá ber öll stjórnin ábyrgð á því, að starfsemin falli ekki niður með öllu, og í fjarveru eða forföllum formanna verða aðrir að taka að sér þeirra verk á meðan. Á því leikur enginn vafi, og hefur reynsl- an sýnt það ótvírætt, að það veltur fyrst og fremst á því, að vanda valið sem bezt, þegar deildirnar kjósa sér stjórnir og þá sérstaklega formenn. Við skulum gera okkur það ljóst, að á sama hátt og við getum ekki án félagsins verið, þá er og verður félagið ekki neitt án okkar, hverf1 og eins. Fastanefndir félagsins eru þessar: 1) Gjaldskrárnefnd VFl er skipuð þessum mönnum: Frá byggingaverkfræðingum: Sigurður Thoroddsen Valgeir Björnsson og til vara ögmundur Jónsson. Frá efnaverkfræðingum: Ásgeir Þorsteinsson Trausti Ólafsson og til vara Björn Jóhannesson. Frá rafmagnsverkfræðingum: Jakob Gíslason Jakob Guðjohnsen og til vara Guðmundur Marteinsson. Frá vélaverkfræðingum: Gunnar Böðvarsson Jóhannes Zöega og til vara Guðmundur Björnsson. Formaður VFl er sjálfkjörinn 1 nefndina, og er hann jafnframt formaður hennar. Eitt mál hefur verið lagt fyrir nefndina á s. 1. ári og verður frá því skýrt síðar á þessum fundi. 2) Húsráð VFÍ var í öndverðu þannig skipað: Finnbogi R. Þorvaldsson, form. Geir G. Zöega Helgi H. Eiríksson Jakob Gislason, Jón E. Vestdal. Sem kunnugt er andaðist Geir G. Zöega í byrjun s. 1. árs, en Jón E. Vestdal sagði af sér störfum í Húsráði, svo að nú er það aðeins skipað 3 mönnum. Stjórn félags- ins er sammála um að full þörf sé á því, að Húsráð starfi áfram, en telur þó ekki ástæðu til að bæta 1 það mönnum. 3) Gerðardóniur VFl. Dómsstjóri er prófessor Ólafur Lárusson. Þremur málum hefur verið skotið til dómsins á ár- inu og tvö þeirra verið afgreidd. Mun ég vikja að þeirn síðar. 4) Ritnefnd Timarits VFl. Baldur Líndal Guðmundur Björnsson Helgi Árnason Magnús Reynir Jónsson. Ritstjóri Tímaritsins er Hinrik Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri, og mun hann skýra frá útgáfunni og þeim örðugleikum, sem ritið á helzt við að stríða. 5) Orðanefnd VFl. Halldór Halldórsson, prófessor, ráðinn af stjórn VFl Gunnlaugur Briem, fulltrúi orðanefndar RVFl Sigurður B. Magnússon, — — VVFl Steingrimur Arason, — — BVFl Trausti Ólafsson, — — EVFl Til þess er ætlast, að fulltrúar orðanefnda sérdeild- anna gefi hér skýrslu um störf þeirra á árinu.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.