Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Qupperneq 10
4
TlMARIT VFl 1960
Aðrar nefndir.
1) Nefnd til þess að setja reglur um skiptingu hita-
kostnaðar i fjölbýlishúsum:
Sigurður Thoroddsen, form.
Einar Ámason
Jóhannes Zöega
Jón Sigurðsson
Ólafur Jensson.
Nefnd þessi mun væntanlega hafa lokið störfum sín-
um, því að búið mun nú að samþykkja á Alþingi lög um
sameign fjölbýlishúsa, en í þeim bálki er að finna nefnd-
ar reglur. Formaður nefndarinnar mun skýra nánar frá
þessu síðar á þessum fundi og þá jafnframt þvi, hvort
ekki væri ráðlegt að ieysa nefndina frá störfum.
2) Nefnd til rannsókna á einangrunargildi vikur-
holsteins:
Einar Sveinsson, formaður
Finnbogi R. Þorvaldsson
Trausti Ólafsson.
Fyrir síðasta aðalfund fyrir ári síðan, skýrði for-
maður nefndarinnar stjórninni frá þvi, að nefndin hefði
lokið störfum, og lofaði hann þá jafnframt að skila
áliti innan nokkurra daga. Þetta álit er enn ókomið, og
eftir viðtal við formann nefndarinnar nú nýverið, var
svo að skilja, að svo mikið verk væri að gera þessu
máli skil, að ekki væri hægt að lofa neinu áliti fyrst
um sinn. Þannig hefur þetta gengið mörg undanfarin
ár, verið slegið úr og i, og vildi ég því leggja til að
nefndin yrði leyst frá störfum,
3) Nefnd til að safna gögnum og gera tillögur um
rétt verkfræðinga til að starfa, með sérstöku tilliti til
lögverndaðra iðngreina:
Gústaf E. Pálsson, formaður
Jóhannes Zöega
Stefán Bjamason.
Á siðasta aðalfundi gaf formaður ýtarlega skýrslu
um störf nefndarinnar og benti á þá erfiðleika, sem við
væri að stríða vegna iðnlöggjafarinnar.
Formaður nefndarinnar mun gefa skýrslu um störf-
in á liðnu ári.
4) í stöðlunarnefnd fyrir steinsteypu eiga þessir sæti:
Gunnar Sigurðsson, formaður
ögmundur Jónsson
Bragi Þorsteinsson
Stefán Ólafsson
Leifur Hannesson
og til vara Snæbjörn Jónasson.
Nefnd þessi er skipuð skv. tilmælum frá IMSl og
hagar störfum skv. fyrirmælum hennar.
5) Nefnd til undirbúnings íslenzkrar verkfræðinga-
ráðstefnu, skipa þessir menn:
Steingrímur Jónsson, form.
Jakob Gíslason
Jón E. Vestdal
Sigurður Thoroddsen
Sveinn S. Einarsson.
Steingrímur Jónsson sat fund með stjórn félagsins í
marzmánuði s. 1. og skýrði þá frá störfum nefndarinnar
og lagði fram kostnaðaráætlun fyrir fyrirhugaða ráð-
stefnu, sem haldin yrði á þessu ári. Ennfremur var síð-
ar lagt fram uppkast að boðsbréfi ásamt skýrslu um ráð-
stefnuna. Nefndin hefur unnið mjög vel að máli þessu
og eiga nefndarmenn þakkir skilið fyrir störf sín. Stein-
grímur Jónsson, formaður undirbúningsnefndar, mun
gera grein fyrir störfum nefndarinnar.
6) 1 fulltrúaráði Bandalags háskólamenntaðra manna
eru:
Einar B. Pálsson
Sveinn Björnsson
Sveinn S. Einarsson
og til vara Björn Jóhannesson
Guttormur Þormar
Sverrir Norland.
7) 1 endurskoðunarnefnd gjaldskrár voru kjömir á
siðasta ári þessir menn:
Ögmundur Jónsson, formaður
Einar Þorkelsson
Eyvindur Valdimarsson
Jón Á. Bjarnason
Pétur Pálsson.
Nefndin skilaði tillögum um gjaldskrárbreytingar til
stjórnarinnar, og voru þær samþykktar á auka-aðalfundi
27. október s. 1. Ennfremur gerði nefndin tillögu til
stjórnarinnar um hvernig haga skyldi vali manna, er
til allsherjar endurskoðunar á gjaldskránni kæmi, og
mun fyrrverandi formaður nefndarinnar geta skýrt frá
þeim, ef þess er óskað.
Fulltrúar VFÍ í öðrum samtökiun:
1) Fulltrúi VFl í Nordisk Bygnadsdag: Skúli Guð-
mundsson.
2) — — - alþjóðaorkumálaráðstefnunni AOR:
Guðmundur Marteinsson og til vara
Jón Á. Bjarnason.
3) — — - Iðnbókasafni: Eðvarð Árnason.
4) — — - Nordisk Betonforb.: BVFl (Gústaf E.
Pálsson).
5) — — - Kjamfræðanefnd: Guðmundur
Pálmason.
6) — — - Náttúruvemdarráði: Sigurður Thor-
oddsen og til vara Ólafur Jensson.
7) — — - nefnd á vegum iðnaðarmálaráðu-
neytisins til þess að setja reglur um
útboð og tilboð: Sig. Thoroddsen.
8) — — - Samvinnunefnd norrænu verkfræð-
ingafélaganna eru formaður og rit-
ari VFl. Fundur í nefndinni var hald-
inn I Kaupmannahöfn 28.—30. ágúst
s. 1., og mætti þar Aðalsteinn Júlíus-
son, vitamálastj. fyrir hönd félagsins.
9) — — - Byggingatækniráði IMSl: Helgi H.
Árnason.
10) — — - Stöðlunarnefnd IMSI, er vinni að
verkefninu: „Mátkerfi ■—- ákveðin
hæðamál í íbúðabyggingum“, Sveinn
K. Sveinsson.
önnur mál, sem tekin hafa verið til
afgreiðslu á starfsárinu.
Gerðardómur VFl kvað upp úrskurð í 2 málum á ár-
inu.
A) Fyrra málið var um ágreining, er risið hafði milli
málsaðila, Sölumiðstöðvar Hraðfrystihúsanna og
Landssmiðjunnar, um túlkun á verksamningi, er
þessir aðilar höfðu gert vegna byggingar stál-
grindahúss. Gerðardóminn skipuðu í þessu máli, auk
formanns dómsins Ólafs Lárussonar, prófessors,
verkfræðingarnir Gústaf E. Pálsson og Steinn Stein-
sen. tJrskurður var upp kveðinn í máli þessu hinn
25. maí s. 1. og verður frá honum skýrt í Tímariti