Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Blaðsíða 11
TÍMARIT VPl 1960
5
VFl og því ekki ástœða til að ræða það mál nánar
á þessum vettvangi.
B) Síðara málið var um ágreining, er risið hafði milli
Haraldar Einarssonar og Kristjáns Jónssonar ann-
ars vegar og Njarðvíkurhrepps hins vegar, vegna
byggingar á holræsi á Innri-Njarðvík. Dóminn sátu
að þessu sinni verkfræðingarnir Steinn Steinsen og
Ingi TjT. Magnússon, tilnefndir af stjórn VPl, ásamt
formanni dómsins Ólafi Lárussyni, prófessor. tJr-
skurður var upp kveðinn i máli þessu 16. september
s. 1., og er niðurstaða dómsins birt í 4. hefti Tíma-
rits VFl 1959.
C) 1 maímánuði s. 1. barst stjórn VFÍ bréf, dags. 10.5.
’59, frá lögfræðingi Rafgeislahitunar h.f., Inga R.
Helgasyni hdl., ásamt afriti af verksamningi milli
fyrirtækisins og Reykjavíkurbæjar um raflagnir í
sambýlishúsi við Gnoðarvog. Samkvæmt 12. gr.
verksamningsins var óskað eftir skipun gerðardóms,
þar sem ágreiningur hafði risið um framkvæmd
verksins, en engar sættir tekizt.
1 dóminn voru tilnefndir: Jakob Gíslason og Magn-
ús Magnússon. Ennþá hefur mál þetta ekki verið
tekið til úrskurðar.
a) Þrjú bréf bárust félaginu á árinu frá Iðnfræðinga-
félagi Islands, þar sem óskað var viðræðna við
stjóm VFl, 1) um rétt iðnfræðinga til starfa með
tilliti til sérréttinda verkfræðinga skv. lögum, 2)
um breytingar á lögum varðandi iðnfræðinga og
loks 3) að VFl tilnefni 1—2 menn til viðræðna við
Iðnfræðingafélag Islands um breytingar á lögum nr.
24/1937.
Tilnefndir voru til viðræðnanna þeir Einar B.
Pálsson og Hallgiimur Björnsson, enda þótt stjórn-
in væri sammála um, að ástæðulaust væri að gera
nokkrar breytingar á nefndum lögum, enda kynni
slíkt að vera varhugavert.
b) Þá barst félaginu bréf dags. 6/4. ’59 frá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur um löggildingarskilyrði fyrir raf-
virkja ásamt fylgiskjölum. Eftirtaldir félagar voru
skipaðir í nefnd til þess að athuga mál þetta og
gera breytingartillögur, ef þurfa þætti:
Ólafur Tryggvason, formaður
Eggert Steinsen
Steingrímur Hermannsson.
Nefndin hefur skilað áliti, og var það sent Raf-
magnsveitu Reykjavikur.
c) Hinn 20/4. óskaði Vatnsveita Reykjavíkur þess, að
félagið tilnefndi mann í dómnefnd til að dæma I
hugmyndasamkeppni um gerð vatnsgeyma á Litlu-
Hlíð í grennd við Golfskálann. Var Sigurður Jó-
hannsson, vegamálastjóri, tilnefndur í dómnefndina
af félagsins hálfu. Samkeppninni er lokið og verður
niðurstaðan birt í Timariti VFl.
d) Lagt var fram uppkast að bréfi VFl, Félags isl.
búfræðikandidata, Dýralæknafélags Islands og
læknafélaganna, þar sem skorað er á heilbrigðis-
málaráðherra að láta nú þegar fara fram nauð-
synlegar breytingar á mjólkureftirliti rikisins, þann-
ig að það verði i framtíðinni í höndum kunnáttu-
manna. Ekki náðist þó samstaða framangreindra
aðila um málefni varðandi mjólkureftirlitið, og var
því ákveðið að senda málið ásamt öllum gögnum
til Bandalags háskólamanna og þess óskað, að
Bandalagið tæki málið til meðferðar.
e) Frá Félagi löggiltra rafvirkjameistara i Reykja-
vík barst félaginu í maí-mánuði s. 1. greinargerð
varðandi útboð raflagna og tilboð í þær, og var
óskað umsagnar um tillögur rafvirkjameistaranna
1 þessum málum.
„Meistarasamband byggingamanna" sendi félaginu
afrit af tillögum rafvirkjameistaranna og óskaði
viðræðna við VFl um þessi mál, er sambandið taldi
að varðaði fleiri en rafvirkjameistara eina. Máli
þessu var vísað til RVFl, er skipaði nefnd í málinu
og skilaði hún áliti hinn 10. þ. m.
f) Hinn 19/6. s. 1. fékk félagið bréf frá einum félags-
manni, þar sem hann ásakar verkfræðifirma hér í
bæ fyrir að hafa gengið inn í verk, er hann hafði
haft með höndum, og notað í heimildarleysi járna-
teikningar, er hann hafði gert af undirstöðum að
byggingu, er firmað tók svo að sér að reikna járn-
ið í. Með þessu framferði taldi hann, að firmað hefði
gerzt brotlegt við 5. gr. stéttarreglna VFl, þar sem
firmað hafði aldrei haft samráð við hann um verk
þetta. Stjórnin kvaddi málsaðila á sinn fund ásamt
formanni BVFÍ, þar sem hér var um byggingaverk-
fræðilegt atriði að ræða. Sem betur fór leystist
málið með sætt milli aðila, en hér er á þetta drepið,
til þess að vara félagsmenn við því að ganga inn
í verk annara, án samráðs við þá.
g) Hinn 25/6. var haldinn sameiginlegur fundur stjóma
Arkitektafélags Islands, Iðnfræðingafélags Islands
og VFl. Lagt var fram uppkast að samningi milli
félaganna annars vegar og Húsnæðismálastofnimar
ríkisins hins vegar um húsagerðir fyrir dreifbýlið
(þ. e. týputeikningar). Eftir að gerðar höfðu verið
smávægilegar breytingar á samningsuppkastinu, var
samþykkt, að félagsstjórnirnar skrifuðu undir það
að tilskildu samþykki félagsfunda.
Á auka-aðalfundi 27/10. var samningsuppkastið
samþykkt, með þeim fyrirvara, að það yrði einnig
samþykkt af A. I. og 1.1.
Ennþá hefur A. I. þó ekki samþykkt samnings-
uppkastið, þrátt fyrir það, að arkitektar unnu þó
af mestu kappi við að koma því saman, en stjórn
VFl maldaði hvað mest i móinn, er á samningum
þess stóð.
h) Hinn 29/7. óskaði Áburðarverksmiðjan eftir þvi, að
félagið tilnefndi mann i nefnd til þess að dæma í
hugmyndasamkeppni um fyrirkomulag geymslu-
rýmis fyrir verksmiðjuna. Var Hallgrimur Björnsson
framkv.stj., tilnefndur í dómnefndina. Samkeppn-
inni er lokið.
i) Hinn 6/10. ’59 var iagt fram uppkast að samningi
um meðferð Iðnbókasafnsins, sem Helgi H. Eiríks-
son hafði afhent skrifstofu félagsins hinn 24/8. ’59,
og þá jafnframt frá þvi skýrt, að Iðnaðarmanna-
félagið og Vélstjórafélagið væru samþykk uppkast-
inu, þar sem gert var ráð fyrir, að safnið verði látið
í vörzlu Iðnskólans um ótiltekinn tíma. Ákveðið var
að tilkynna bókasafnsnefnd, að VFl leggi til að
safnið verði afhent Tæknibókasafni IMSI, með öll-
um þess gögnum og gæðum, eða verði að öðrum
kosti afhent Landsbókasafninu i Reykjavík til eign-
ar og umráða skv. 13. grein reglna um Iðnbókasafnið.
j) Bréf dags. 23/9. ’59 frá Atvinnumálanefnd ríkisins
ásamt frumdrögum að frumvarpi til laga um rann-
sóknir í þágu atvinnuveganna.