Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Qupperneq 21
TlMARIT VFl 1960
10
á móti getur verið hættulegt að fullyrða, að engin rann-
sóknastarfsemi eigi rétt á sér, án þess að þessi skii-
greining sé höfð vel i huga.
Rannsók)iahverfi.
Þá vii ég minnast aðeins á áætlanir um rannsókna-
hverfi hér í útjaðri Reykjavíkur. Rannsóknastarfsemin
hefur fengið 48 ha lands til umráða og nú er verið að
skipuleggja það með rannsóknahverfi framtíðarinnar i
huga. Rannsóknastofnunum hefur verið boðið að hafa að-
setur sitt þai'. Er nú þegar gert ráð fyrir að þar verði
þrjár af þeim fjórum stofnunum, sem gert er ráð fyrir
í fyrrnefndu frumvarpi, þ. e. allar nema Rannsóknastofn-
un sjávarútvegsins, sem hefur sín eigin nýju húsakynni,
rannsóknir Háskólans og rannsóknir raforkumálaskrif-
stofunnar og vonandi fleiri í framtíðinni. Við eigum þetta
landssvæði að þakka framsýni Jakobs Gíslasonar, raf-
orkumálastjóra, og hefur rafoikumálaskrifstofan þegar
hafið byggingar rannsóknahúsakynna á svæðinu. Við
vonumst til þess að bygging Rannsóknastofnunar land-
búnaðaiins hefjist þar á þessu ári og fleiri munu fljót-
lega fylgja í kjölfarið.
Ef þessar áætlanir eiga að bera tilætlaðan árangur,
þarf verulega aukið fjármagn til rannsóknastarfseminn-
ar. En fleira þarf, ef vel á að vera. Við þurfum stórlega
að efla og endurbæta tæknimenntun okkar. Við þurfum
fleiri sérfræðinga og sérstaklega fleiri aðstoðarmenn
og síðan en ekki sizt verður að auka skipulag og efla
hagnýta þekkingu innan allra greina atvinnulífsins,
þannig að grundvöllur skapist fyrir betri nýtingu hrá-
efnisins, fyrir tæknilegri þróun.
Ég vil leyfa mér að gera lokaorð norska hagfræðings-
ins Aukrust að mínum. Hann segir svo: ,,Við höfum
reynt að hraða framfaiaþróuninni með þvi að auka fjár-
festinguna. Við ættum að endurskoða áætlanir okkar og
stefnur og athuga möguleika þess að skapa enn aukna
framþróun með átaki á sviði rannsókna og tæknimennt-
unar“.
Guðinundur Pálmason, verkfraeðinsur:
Um starfsemi Kjarnfræðanefndar Islands
Skýrsla flutt á aðalfundi VFÍ 25. febrúar 1960.
Kjarnfræðanefnd Islands var stofnuð í ársbyrjun 1956
og hefur því starfað í 4 ár. Að henni standa 27 stofn-
anir, félög og fyrirtæki, þ. á. m. Verkfræðingafélagið, og
á hvert þeirra sinn fulltrúa í henni. Tilgangur og verk-
efni nefndarinnar eru að fylgjast með nýjungum varð-
andi hagnýtingu kjarnorku og geislavirkra efna á ýms-
um sviðum og stuðla að fræðslu þar að lútandi hér á
landi. Þá á hún að gera tillögur um rannsóknastarf-
semi og notkun kjarnorku og geislavirkra efna, vera rík-
isstjórninni og öðrum til ráðuneytis í kjarnfræðamálum
og hafa samband og samstarf við hliðstæðar stofnanir
eilendis. Starfsemi nefndarinnar er að um það bil hálfu
kostuð af framlögum meðlimanna og að hálfu með beinu
framlagi úr ríkissjóði.
Hin einstöku verkefni Kjarnfræðanefndar eru í höndum
undirnefnda, og eru nú 8 slíkar starfandi, þ. e. þunga-
vatnsnefnd, orkumálanefnd, heilbrigðisnefnd, landbún-
aðarnefnd, iðnaðarmálanefnd, orðanefnd, nefnd til að
gera tillögur um almennar rannsóknir á sviði kjarnfræða
og nefnd til að undirbúa lagasetningu um geislavernd.
Þau verkefni, sem Kjarnfræðanefndin hefur einkum
látið sig skipta undanfarið, eru notkun geislavirltra efna
á sviði iðnaðar, læknisfræði og landbúnaðar, athugun
á möguleikum til framleiðslu þungs vatns hér á landi,
og fræðslustarfsemi um kjarnfræðamál.
Sá þáttur kjarnfræða, sem sennilega kemur til með að
hafa einna mesta þýðingu fyrir Islendinga, er hag-
nýting geislaviikra efna á ýmsum sviðum. Kjarnfræða-
nefndin hefur leitazt við að fylgjast með nýjungum i
notkun geislavirkra efna og kynna þær hér á landi og
aðstoða þá aðila, sem hafa viljað færa sér þær í nyt
Hefur nefndin beitt sér fyrir, að komið yrði upp rann-
sóknarstofu, sem yrði búin nauðsynlegum tækjum til
að framkvæma mælingar á geislavirkum efnum. Hefur
nú skapazt aðstaða til að gera slíkar mælingar við
Eðlisfræðistofnun Háskólans. Er verið að koma þar
upp tækjum til geislamælinga, og standa vonir til, að
hún geti í framtíðinni tekið að sér slíkar mælingar fyrir
þá, er þess óska, t. d. lækna, sjúkrahús, iðnfyrirtæki,
rannsóknastofur o. fl. Tilvera slíkrar geislamælingastofu
er að sjálfsögðu frumskilyrði fyrir notkun geislavirkra
efna. Auk þess sem þar eru nú gerðar reglulegar mæl-
ingar á geislavirkni regnvatns og ryks í andrúmsloftinu,
hefur hún tekið að sér mælingar fyrir eða í samvinnu
við aðrar stofnanir. Má þar nefna, að gerðar hafa verið
rennslismælingar með íblöndun geislavirks joðs í ám og
lokuðum pipum í samvinnu við Vatnamælingadeild Raf-
orkumálaskrifstofunnar og Vatnsveitu Reykjavikur, og
einnig hafa verið gerðar geislamælingar fyrir Fiskideild
og Búnaðardeild Atvinnudeildar Háskólans vegna rann-
sókna á svifi í sjónum og áburðarrannsókna.
I sambandi við notkun geislavirkra efna má geta þess,
að fyrir frumkvæði Kjarnfræðanefndar sendi Iðnaðardeild
Atvinnudeildar Háskólans nokkurt magn af íslenzkum
kartöflum til geislunar í Danmörku í tilraunaskyni. Var
þetta gext í haust og eru þessar kartöflur nú i gevmslu