Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Page 30

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1960, Page 30
24 TlMARIT VFl 1960 7. mynd. KrísuvíkurbjarK. Staðurinn, þar sc;m sjösýnishorn voru tckin, er merktur á myndinni. ekki reyndist unnt að skýra fyllilega. Síðar var aflað nánari vitneskju um seltuna við land af svæðinu frá Þorlákshöfn til Akraness, eins og greint er frá hér að framan, og reglulegar mælingar voru jafnframt teknar upp við Krísuvikurbjarg árin 1958—1959. Söfnun vikulegra sjósýnishorna hófst síðast í október 1958 og stóð til byrjun nóvember 1959. Á þeim tíma var ennfremur þrisvar aflað sýnishorna á klukkustund- ar fresti allan sólarhringinn, þ. e. 24. nóvember, 5. maí og 22. september. Valinn var staður austarlega á Krísuvíkurbjargi, þar sem það er næstum lóðrétt og djúpur bás gengur upp að því. 1 þessum bás er um 2 m dýpi við stórstraumsfjöru. Hæð bjargsins á mælistað er 43 m. Staðurinn er sýndur á 7. mynd en afstaða hans á 10. mynd. Reist var 4 m hátt mastur á bjargbrúninni og á því var 8,5 m löng bóma, sem hægt var að sveifla til lá- rétt um 180°. Fremst á þessari bómu var lítil blökk, sem stálvír var látinn leika í. Við hann var festur 4 1 brúsi til sjótöku. Bóman náði um 4 m út fyrir bjargbrúnina. Með þessum útbúnaði reyndist auðvelt að ná í sýnis- hornin, þar sem brúsinn kom niður í sjávaryfirborðið 4—5 m frá bjarginu. Tækin eru sýnd á 8. mynd. Sjótökubrúsinn var látinn síga niður tvisvar sinnum í hvert skipti. Fyrst til þess að skola hann úr sjó og síðan voru sjósýnishornin tekin úr honum. Til öryggis voru tekin tvö sýnishorn og þau bæði efnagreind. Niðurstöður þessara mælinga eru sýndar á 5. og 6. mynd. Seltan var áberandi misjöfn, þar sem sú mesta var um 35%r, en sú minnsta rúmlega 23%c. Sveiflurnar voru þó fremur litlar mánuðina desem- ber—apríl. Þá var meðalseltan 34,0%c, en minnst var hún um 33%„. I maí var mesta sveiflan og komst seltan þá niður I rúmlega 23%c en meðalseltan var þá 29,1%. Yfir sumarmánuðina og fram í nóvember var meðalseltan 32,6%r og var seltan þá lægst um 29c/,r. Meðalselta alls ársins var 32,9%c. Sem að líkum lætur er náið samband milli regns og snjóbráðnunar á landi og seltunnar. Þegar athuganir þessar hófust 31. október, var suðaustan kaldi og skúr- ir, en seltan lág. Hinn 7. nóvember var komin snjókoma og seltan var há. Síðan dró aftur til rigninga og seltan lækkaði. Hinn 9. nóvember voru að byrja frost og seltan hafði hækkað. Frostin héldust til loka janúar og var seltan mjög jöfn þann tíma. Siðan hófst kafli með hvassri suðaustan- og suðvestan-átt. Hinn 10. marz var farið að hlýna í veðri og seltan hafði lækkað nokkuð. Hinn 7. apríl var kalt og seltan há. Síðan lækkaði seltan nokkuð og hlýtt var í veðri þangað til 5. maí að kólnaði á ný og reyndist seltan þá í hærra lagi. Hinn 12. maí var kominn 9,4° hiti, sem hélzt enn hinn 19. maí, og var þá seltan komin niður í 23,5%r. Yfir sumartimann kemur fram há selta í norðan og norðvestanátt, enda er þá úrkomuminnst. Sólarhringsathuganir þær, sem sýndar eru á 6. mynd

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.