Akranes - 01.07.1951, Blaðsíða 23

Akranes - 01.07.1951, Blaðsíða 23
fimm norrænu frændþjóða gafst tækifæri til að heilsast og spjalla saman og einstak- lingunum að virða hver annan fyrir sér og sjá, þar var enginn sérstakur munur , þeir hefðu eins vel getað allir tilheyrt einni og sömu þjóðinni- Ég hafði ekki við að svara spurningum um þennan nýjasta vinabæ, Akranes, hve stór hann væri, hverjir væru helztu atvinnuvegir ,hvernig byggingarnar væru, um skólamálin o. s. frv. Sátum við lengi kvöldsins í hinum vistlegu salarkynnum hótelsins, en það stendur í rnjög fögru umhverfi í útjaðri bæjarins, umvafið skógi og marglitum blómum, með útsýn yfir eyjum prýddan fjörð og ákjósanlega baðströnd. Hótelið getur tekið á móti i oo dvalargestum og er það oftast fullskipað, bæði sumar og vetur. Að morgni næsta dags, sem var fimmtudagurinn 5. júlí, skoðuðum við bæ- inn undir leiðsögn rektors Stenstad skóla- stjóra gagnfræðaskólans, bæði bæinn sjálf- an, svo og helztu byggingar, svo sem skóla- húsið, kirkjuna og ráðhúsið. Flest eru hús- in frekar smá timburhús en nokkur hlaðin úr múrsteini. Gangstéttir eru alls staðar meðfram húsunum og sums staðar eru göturnar steyptar eða asfalteraðar. Um- hverfis húsin eru yfirleitt trjá og aldin- garðar til mikillar prýði. Aðalhluti bæjar- ins liggur í nokkurri brekku upp frá firð- inum og hallar móti austri. Uppi á hæð- inni er dásamlega fagurt útsýni. Þar lief- ur Lund-Tangen meðal annarra byggt sér fallegt timburhús, en þau fara lang bezt í þessu umhverfi. Er heimili þeirra hjóna sérstaklega vistlegt og smekklegt, bæði ytra og innra og sá andi þar ríkjandi, að maður fullvissast við fyrstu sýn um það, að þau hjónin eru tilvaldir boðberar þeirra göfugu hugsjóna, sem þau starfa fyrir af miklum dugnaði og sérplægni, hinni nor- rænu samvinnu og samstarfi, sérstaklega á sviði menningar- og æskulýðsmála. Fólkið þar í Langesund sýdnist mér vin gjamlegt og gott og mikill jöfnuður virt- ist þar ríkjandi í efnahag og afkomu. — Bærinn telur 2100 íbúa og er sjávarút- vegur og iðnaður, sérstaklega skipa- og bátasmiði aðal atvinnuvegir. Eru þar smíðuð allt að 3000 tonna skip, en Norð- menn misstu sem kunnugt er mikinn hluta skipastóls síns á stríðsárunum, svo atvinna hefui- verið mikil við endurbygg- ingu flotans síðan, þó vera megi, að úr því fari nú að draga, en ekki heyrðist mér að menn kviðu þar atvinnuleysis eða verkefna skorti. Síðar þennan sama dag hittumst við nokkrir frá öllum vinabæjunum á heimili Lund-Tangens og var þar rætt um sam- starf þessara bæja í næstu framtíð. Var það aðallega um gagnkvæm skipti skóla- nemenda og kennara, sem þó virðist þvi miður lítt framkvæmanleg hvað Akranes snertir. Hins vegar eru slík skipti þegar komin til framkvæmda í hinum bæjun- um, til mikillar ánægju og gagns fyrir hlutaðeigendur. Rætt var einnig um gagn- kvæm skipti dagblaða þessara bæja, en einnig þar var um sérstaka örðugleika að ræða, hvað Akranes snertir, þar sem rit- stjórar hinna bæjanna eigi gætu hagnýtt sér blöð héðan, er skrifuð væru á íslenzku. Virtist mönnum tiltækilegust sú lausn þess máls, er við höfum rætt um hér, að skrifaðar yrðu greinar um ýms mál, er Akranes varða og þeim snúið á eitthvert hinna Norðurlandamálanna og blöðum þessara bæja sendar þær til birtingar. Um kvöldið var svo samkoma í kvikmynda- húsi bæjarins og var öllum fulltrúunum boðið þangað. Meðal skemmiatriða var, að Langesundskvikmyndin var sýnd og útskýrði Lund-Tangen hana og rakti nokk- uð sögu bæjarins og viðgang. Sennilega verður mér send þessi mynd til sýningar hér á komandi vetri. Föstud. 6. júlí var öllum gestunum boð- ið í iferðalag um Þelamörk og slógust nokkr- ir bæjarbúa með i förina, svo fylltir voru tveir stórir langferðabílar. Veðrið var hið ákjósanlegasta, sólskin og heiðríkja. Var lagt af stað kl. 8 að morgni. Voru allir í reglulegu sólskinsskapi og fullh- eftirvænt- ingar, þvi Þelamörkin er talin eitt með fegurstu héruðum Noregs, þar sem sjá megi flest það, er norska náttúru prýðir, svo sem skógivaxnar sléttur og dali, há fjöll og brattar hlíðar, lygn stöðuvötn og straumharðar, fossóttar ár, auk fallegra iðnaðarborga, sveitaþorpa og bændabýla. Hygg ég að enginn hafi orðið fyrir von- brigðum, eða öllu heldur, að fáir hafi gert sér svo glæstar hugmyndir um þá fegurð, er þar væri að finna, að raunveruleikinn hafi ekki orðið þeim fremri. Vegir eru þarna góðir, eftir því sem við hér eigum að venjast, en víða krókóttir og krappar beygjur og sneiðingar, því landið er all mishæðótt og hækkar ört, því lengra sem dregur inn að hálendinu. Sums staðar eru vegirnir steyptir eða asfalteraðir en alls staðar voru þeir sléttir og lausir við holur og virtist ofaníburðurinn mjög góður, þar sem malbornir vegir voru. Víða mátti sjá stóra timburfleka á ám og vötnum og sums stóra tiinburfleka á ám og vötnum og sums- Vrangfoss sáum við timburflekum fleytt niður fyrir fossinn eftir skipastiga, en þá stundina var þar engirm bátur á ferð, svo við sáum ekki, hvemig þeir komast leiðar sinnar, en sáum hins vegar með hverju móti það er gert. Meðal annars skoðuðum við 800 ára gamla stafakirkju, stórt og veglegt guðshús, byggt af fádæma sverum bjálkum. Landið er allt vaxið fögrum nytjaskógi, mest barrskógum, nema þar sem mörkin hefur verið rudd Ifyrir akra og graslendur. Sláttur stóð sem hæst og var allt hey þar þmrkað á hesjum. Eigi sýndust mér akrar þar jafn blómlegir og i Danmörku, enda hafði síðasti vetur verið óvenju harður í Noregi, Hæstu fjöll þarna voru um 1400 m. og voru þau skógi vaxin upp að efstu brúnum. Sýndist manni viða furan vaxa upp úr beru grjótinu utan í snarbröttum hliðum fjallanna. Eru það ómetanleg auðæfi, sem Norðmenn eiga í skógunum og hörmulegt til þess að hugsa, að svona hefði einnig getað verið hér á landi, hefði hin íslenzka þjóð kunnað að umgangast skógana, sem ef til vill hefði þurft að gera af enn meiri nærgætni hér. Er i þeim efnum greinilegt, að syndir feðranna koma niður á börnun- um. Veitingahús og hótel eru hvarvetna og nutum við í ferðinni mikillar gestrisni : þeim efnum. Komið var heim til Lange- sund seint um kvöldið og var það sam- mæli allra, að ferð sú yrði ógleymanleg og hnigu að þvi mörk rök, ákjósanlegt veður, óviðjafnanleg náttúrufegurð og sér- staklega skemmtilegt samferðafólk auk góðra farartækja og öruggra bílstjóra. — Ákveðið var, að næsta dag, laugardaginn 7. júlí skyldi farinn skerjagarðstúr, það er sigling meðfram ströndimii innan skerja, en því miður gat ekki orðið af því, sökum strekkingskalda og rigningar, er var fyrri hluta þess dags. Var dagurinn því af mörgum notaður til heimsókna og kynningar við bæjarbúa, sem eru gest- risnir mjög og alúðlegir. Ég gat til dæmis ekki komizt yfir að þiggja öll þau heim- boð, er mér bárust. Um kvöldið kl. 8 efndi bæjarstjórnin til veizlu fyrir fulltrúana í Langesunds-Bað, auk margra bæjarbúa, svo hinn stóri salur var þéttskipaður. Hófst samkoman með því, að blásturshljóðfæra-orkester frá Osló, skipaður miðskólanemendum þaðan, svo- nefndu Bjölsen orkester lék nokkur lög við mikla hrifningu áheyrenda. Var þá setzt að glæsilegu veizluborði og bauð bæj- arstjórinn, sem þar kallast Ordförer, Markus Olsen kaupmaður, drengilegur maður og dugnaðarlegur, gesti velkomna og ræddi nokkuð um tilefni þessara hátíða halda og tilgang. Er menn höfðu gert hin- um lostætu kræsingum nokkur skil, kvaddi Lund-Tangen sér hljóðs, en mér hafði verið valið sæti hið næsta honum. Flutti hann prýðilega ræðu, þar sem hann bauð Akranes velkomið í Vinabæjasambandið og minntist mjög hlýlega þessa fyrsta sendimanns þess á hið sameiginlega mót. Þá afhenti hann mér norska fánann sem gjöf til Akraness og bað mig að flytja heim beztu kveðjur og ámaðaróskir frá Langesund til þessa nýja vinabæjar. Þakk- aði ég gjöfina og þau vingjarnlegu orð, er ræðumaður hefði látið falla í minn garð og Akraness. Þá minntist ég með nokkmm orðum hinna vinabæjanna og íflutti þeim þakkir Akraness fyrir að hafa valið það sem fulltrúa Islands í þetta samband hinna fimm norrænu bæjarfélaga, og lét í ljós AKRANES 95

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.