Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 15. APRlL 2004 Fréttir DV Landi á nuddstofu Kona á flmmtugsaldri og þrítugur sonur hennar hafa verið ákærð fyrir að hafa undir höndum 14 lrtra af landa. Mál- ið var þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á þriðjudag. Landinn var41% til 49% að styrkleika. Þau geymdu landann á veitingastað sonar- ins en sonurinn er þó ekki grunaður um að hafa selt hann á barnum. Móðirin rekur hinsvegar nuddstofu í sama húsi og er talin hafa notað landann þegar við- skiptavinir voru nuddaðir. Útvequrí erfiðleikum Alkoma sjávarútvegs- fyrirtækja hefur versnað á síðustu misserum. Sam- kvæmt afkomuspá grein- ingardeildar KB banka var hagnaður sjávarút- vegsfyrirtækjanna 7.753 milljónir króna árið 2002. í fyrra minnkaði hagnað- urinn um meira en helm- ing, fór í 3.010 milljónir kr. og á þessu ári er enn spáð helmings lækkun hagnaðar, að hann verði 1.516 milljónir. Hald lagt á hasspípu Lögreglan í Keflavík handtók tvo menn sem grunaðir voru um fíkni- efnamisferli um kvöldmat- arleytið í fyrrakvöld. Lög- reglan stöðvaði bifreið mannanna og voru þeir handteknir og færðir til yfirheyrslu á lögreglu- stöð. Við leit í bflnum fannst hasspípa sem lagt var hald á. Hinum hand- teknu var síðan sleppt að yfirheyrslum loknum. Skatturinnl Jón Trausti Sigurðarson Blaðamaöur á Grapevine „Ætli skatturirm sé ekki versti vinur litla mannsins og besti óvinur stóra mannsins. I tón- listarútgáfu getur skatturinn klóraö manni fast á bak viö eyraö en sjálfur hefég hins vegar ekki lent illa í honum." Hann segir / Hún segir „Skatturinn er náttúrlega hluti af okkar samfélag og ég borga hann bara með glöðu geöi. Hefaldrei hugsað mjög neikvætt um hann og finnst að fólk eigi bara að borga sitt til samfélagsins því öll fáum viðþetta tilbaka." Guðrún Ögmundsdóttir Alþingiskona Irena Juceviciene, móðir Vaidasar Jucevicius, staðfestir að sonur hennar hafi feng- ið magasár og lungnabólgu eftir 6 mánaða vistun í litháísku fangelsi. Telur að Vai- das hafi verið þvingaður til fíkniefnaflutnings til íslands. Vaidas grunaður um að vera meðlimur bílþjófagengis. Vaidas var alvar- lega veikur fyrir ■ I U/inn /lotirl' alr feigöarforina Hann getur ekkihafa farið sjálfviljugur. Hann varð al- varlega veikur í fangeisinu, fékk bæði magasár og lungnabólgu. Vaidas Jucevicius, hinn ungi, látni Lithái í Iíkfundarmálinu svo- kallaða, var alvarlega veikur af magasári og og hafði verið undir læknishöndum vegna lungnabólgu áður en hann hélt til íslands með magann fullan af amfetamíni. Alvarleg veikindi hans hófust er hann sat um 6 mánaða skeið í fangelsi vegna gruns um aðild að glæpagengi sem sérhæfði sig í að ræna bflum og krefjast lausnargjalds fyrir þá. Vaidas átti einnig fyrr að baki fangavist í Þýskalandi vegna aðildar að bflþjófnaði. í viðtali sem Lina Navickaite, blaðamaður við dagblaðið „Kauno diena" í Litháen og samstarfsmaður DV, tók fyrir sitt blað og DV við Irenu Juceviciene, móður Vaidasar, full- yrðir hún að Vaidas hafi aldrei neytt fíkniefna og segir fullum fetum að miðað við hin alvarlegu veikindi sonar síns komi sér ekki til hugar að hann hafi farið sjálfviljugur til ís- lands með fíkniefni. „Hann hlýtur að hafa verið neyddur til þess,“ segir Irena og bætir við að undir eðlileg- um kringumstæðum hefði hún fengið að vita af ferð sonar síns til útlanda. f viðtalinu kvartaði hún undan því að fá ekki upplýsingar um afdrif sonar síns. 650.000 króna trygging Irena viðurkennir að Vaidas hafi verið gmnaður um aðild að bflarán- um og segir að hann hafi setið í fangelsi um 6 mánaða skeið frá febr- úar 2003, en lög í Litháen leyfa slflca fangelsun án dóms ef meint afbrot þykir mjög alvarlegt. Hún viður- kennir hins vegar ekki að Vaidas hafi verið afbrotamaður og telur að hann hljóti að hafa verið þvingaður af öðr- um. „Sonur minn var aldrei í fflcni- efnum. Hann var grunaður um bfl- þjófnað og sat inni í marga mánuði eða þar til ég borgaði himinhátt tryggingargjald eða 25 þúsund Litas (um 650 þúsund krónur). Lögregluyfirvöld í Telsai, heima- Netabryggjan (Neskaupsstað Þarna fannst llk Vaidasar i febrúar síðastliðnum. borg Vaidasar, Tomasar Mala- kauskas og Kestutis Eidintas (sem Tomas hringdi margoft í meðan Vai- das lá fyrir dauðanum), segir að hvorki Malakauskas né Eidintas hafi dóma á bakinu - ekki einu sinni sektir. Hins vegar fékkst staðfest að fylgst hafi verið með þeim vegna gruns um aðild að afbrotum, án þess þó að það hafi verið talið í tengslum við meinta rússneska eða litháíska mafi'u. stunda „bflþjófagengi" þá iðju að krefjast lausnargjalds fyrir hina stolnu bfla. Auk þess bjóða gengi þessi upp á „vernd" fyrir bfla- þjófhaði gegn gjaldi. Mál það sem Vaidas var gmnaður um aðild að er á leiðinni fyrir dómstóla og þykir mjög alvarlegt mál. Sem fyrr segir hafði Vaidas setið í fangelsi í Þýskalandi um skeið fyrir bflþjófnað, en ekki er vitað til þess að hann hafi nokkum tímann verið bendlaður við fflcni- efnamál. Meðlimur í bílaþjófagengi? Irena segir að sér hafi á sín um tíma verið sýndar myndir af bæði Malakauskas og Ei- dintas, en hafi þekkt hvorugan. „Ég hugsa stöðugt um það hverjir geti hafa þvingað son minn til fflcniefna- flutnings til útlanda. Hann getur ekki hafa farið sjálfviljugur. Hann varð alvarlega veikur í fangelsinu, fékk bæði magasár og lungnabólgu. Eftir að hann losnaði út var hann stöðugt undir læknishöndum *’ og dvaldi lengi á sjúkrahúsi. Hann var með magasár og lungna- bólgu og ég einfaldlega trúi því ekki að hann hafi svona veikur farið til fslands sjálfvilj ugur,“ segir Irena. Samkæmt upplýsingum lögreglunnar í Litháen eru bflaþjófnaðir algengir þar í landi og fridrik@dv.is Niðrúr innfrarauðum himni hangir slýgræn sól Stjamvísindamenn um allan heim standa gapandi yfir nýjum myndum sem þeim hafa borist frá hinni innfrarauðu Spizer-myndavél og sýna fjöldann allan af stjörnum sem eru að verða til í gríðarlegum átökum í um 10 þúsund ljósára fjar- íægð. Átökin hafa hingað til verið hulin geimryki en með nýju mynda- vélinni hafa náðst skýrar myndir af risastórum sólstjörnum sem aug- ljóslega eru nýorðnar til og snúast á miklum hraða um tiltölulega lítið svæði í geimnum. Sumar sólirnar em allt að 100.000 sinnum bjartari en sólin okkar. Þær eru nú í óða önn að rífa og tæta sundur hið gríðar- mikla gasský sem ól þær. Grænar og rauðar slikjur þeytast um geiminn í ofsafengnum leik sem sýnir að þótt DR21 Á þessum dularfulla stað eru að verða til gríðarstórar sólir. Fyrirsögnin á fréttinni er fengin úr Ijóði eftir Megas. almennt hafi hægt svolítið á ný- enn til öflugar útungunarstöðvar myndun sólstjarna í alheimnum em fyrir nýjar sólir. Stúlku leyft að skipta um kyn Dómstólar íÁstralíu hafa úr- skurðað að 13 ára stúlka fái að fara í kynskiptiaðgerð. Stúlkan ber naihið Álex.og er líf&æðilega kven- kyns en vill vera álitin karlkyns. Faðir hennar ól hana upp sem dreng og klæðist hún drengjafatn- aði, auk þess sem hún einbeitir sér að leikjum drengja. Hún hefur unnið drengi í sjómanni og hefur áhuga á stelpum. Ákvörðun dóm- stóla var bæði tekið fagnandi og hún fordæmd. Hormónagjöf mun hefjast á næstunni og við 16 ára aldur verður henni gefið testó- sterón tfl að auka vöðvauppbygg- ingu, lflcamshár og dýpka rödd hennar. Við 18 ára aldur verður skipt um kynfæri á henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.