Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Qupperneq 15
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2004 15 Eivörtil Reykhóla Reykhólahreppur stendur fyrir menningardagskrá á Reykhólum í Austur-Barða- strandarsýslu á sumardaginn fyrsta, fimmtu- daginn í næstu viku. Á dagskránni er opnun myndlistarsýningar á efri hæð hjúkrunar- heimilisins Barmahlíðar þar sem Guðmund- ur Björgvinsson myndlistarmaður sýnir verl sín. Klukkan 14 hefst glæsileg dagskrá í íþróttasal Reykhólaskóla þar sem færeyska söngkonan Eivör Pálsdóttir syngur af al- kunnri snilld og Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræðingur ies úr verki sem hún vinnur að um Matthías Jochumson, sem einmitt fæddist í Reykhólasveit. Aðgangur er ókeypis. Þetta er í annað sinn sem Reykhólahreppur stendur fyrir menningaruppákomu á sumardaginn fyrsta. Sfldin á Sauðárkróki Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Síldin kemur og síldin fer, hinn sívinsæla gamanleik með söngvum eftir þær systur Iðunni og Kristínu Steinsdætur, sunnudaginn 25. apríl næstkomandi. Leikstjóri er Þröstur Guðbjartsson. Leikritið gerist í kauptúninu Fagrafirði þar sem segja má að síldin ráði ríkjum. Sýnt er í Bifröst á Sauðár- króki en sýningar verða alls fimm tals- ins. Upplýsingar og miðapantanir eru í síma 849-9434. Andrea syngur í FirðinumTónieikaröðin Kvöldin í Firðinum heldur áfram á veitingahúsinu Café Aroma í Hafnarfirði á sunnudagskvöldið. Söngkonan Kristjana Stefánsdóttir og Agnar Már Magn- ússon píanóleikari eru gestgjafar tón- leikaraðarinnar og syngja og leika með gestum á tónleikunum. Á sunnudags- kvöldið er komið að söngkonunni Andreu Gylfadóttur sem mætir með bassaleikaranum Pétri Sigurðssyni. Þau munu leika djass- og blús- skotna tónlist af fingrum fram. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 í veislusalnum Turninum og forsala miða fer fram á Café Aroma. Ragnheiður Gyða Jónsdóttir vaktar mannlíf og menningu. rgj@dv.is Á laugardaginn verður önnur laugardagsstefnan af fimm sem Listasafn fslands stendur fyrir á þessu ári hald in og er viðfangsefnið Mynd- listin og markaður- inn. Umræðan um stöðu og hlutverk myndlistar í samfé- laginu hefur orðið stöðugt háværari undanfarið og finnst mörgum hlutur myndlistarinnar lítill í markaðssamfélagi nútímans, segir í fréttatilkynningu. Edda Jóns- dóttir, listamaður og eigandi i8 gallerís, Kristinn E. Hrafns- son myndlistarmaður og Vil- hjálmur Bjarnason, aðjúnkt við Viðskipta- og hagfræði- deild Hf, ræða um myndlistina og markaðinn og velta meðal annars upp spurningum um stöðu myndlistar í verðmæta- sköpun fyrir samfélagið og skoða markaðinn eins og hann horfir við myndlistar- manninum. Stjórnandi pall- borðsumræðna er dr. Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns fslands. Umræður verða að loknum framsöguerindum. Málþingið fer fram í sal 1 í Listasafni fslands og aðgang- ur er ókeypis. „Ég fór núna fyrir stuttu á Þetta er allt að koma eftir Hallgrím Helggson og íþað er } klikkað. Ég skemmti mér hræðilega vel. Leikritið erævisaga ungrar islenskrar i konu sem ætlar \ að meika það og 'yerða frægur ■Ustamaður og allt mistekst. Ég mæli 100% með þessari sýningu. f Sviðsmyndin er f einföld og faiieg f og segir vel frá at- r burðarrásinni í leik- f ritinu. Þetta er ein af |f/'u bestu sýningum sem ég Hjörtur Skúlason I hefséð í Aðstodarverslun- 1 g^gnum arstjóri í Kaffítári. tfgjna" Gott í leikhúsi Eiríkur Guðmundsson er höfundur bók- arinnar 39 þrep á leið til glötunar sem Bjartur var að gefa út. Sögupersónan í bókinni gefst upp á landi og þjóð og fer til Mexíkó, rétt eins og Eiríkur sjálfur fyrir skemmstu. Hauskúpur og li „Þetta eru viðbrögð við íslenskum samtíma, viðbrögð við fjölmiðlum og ýmsu sem stjómvöld hafa staðið fyrir,“ segir Eiríkur Guðmundsson, en í gær kom skáldsaga hans 39 þrep á leið til glötunar út á vegum bókaútgáfúnnar Bjarts. En hvers vegna em þrepin 39. Tengist það eitthvað hinni klassísku Hitchcock-mynd The 39 Steps? „Það er bara aukabónus að geta tengt við hana, en það er engin bein tenging. Það er 39 kaflar í bókinni, en kafli nr. 37 varð að vera númer 37 og svo urðu að vera tveir kaflar þar á eftir. Ef fólk les bókina kemst það að hvers vegna.“ íslendingar vöknuðu upp við vondan draum eftir írak Eiríkur hefur stjómað þáttunum Víðsjá á Rás eitt þar sem hann hefur flallað um málefni líðandi stundar. „Bókin er nátengd þættinum, það er ákveðin rödd sem hefur mótast þar. Við látum það þó liggja á milli hfuta hvort söguhetja sé málpípa höfund- ar.“ Sögupersónan gefst að sögn höf- undar upp á landi og þjóð og fer til Mexíkó, en Eiríkur var einmitt staddur þar fyrir rúmu ári síðan þegar umræð- Da Vinci lykillinn selst og selst Dan Brown ætíar sér greinilega að komast í hóp metsöluhöfunda hérlendis. Bók hans, Da Vinci fykillinn, var gefm út í kilju hér á landi fyrir tveimur vikum og á þeim stutta tíma hafa selst á þriðja þúsund eintaka, að því er segir í tilkynn- ingu frá útgefanda. Það ætti að gleðja aðdáend- ur Dans Brown að hann er þessa dagana að __ ganga frá handriti að Da v'nc' fykillinn Met- næstu bóksinni um Ro- Sr°,°1'Bandaríkjunumogd hert Tanedon ne mun lslandl °9 ^lhr bíða eftir Dert Langaon og mun næstu bók höfundarins hun vera væntanleg næsta vor í Bandaríkjun- um. Sögusviðið er Wash- ington og viðfangsefnið að þessu sinni er banda- ríska frímúraraklíkan, en eins og kunnugt er hafa forsetar Bandaríkjanna og fleiri stórir kallar verið frímúrarar. Rúmt ár er liðið frá útkomu Da Vinci lykilsins í Bandaríkjunum og situr bókin enn við topp metsölulista New York Times. Það er því ekki að ósekju að margir eru farnir að bíða ansi spenntir eftir næstu bók höfundarins. an um innrásina í frak stóð sem hæst. „Umræðan þar var miklu kraftmeiri, hér var þessu ýtt ofan í okkur og við vöknuðum svo upp við vondan draum.“ Taugaveiklunarviðbrögð við iíf- inu í Reykjavík En hvers vegna Mexíkó? „Það er nógu langt í burtu og nógu heillandi. Ég var þama að drekka meskal og skoða hauskúpur og bíla sem hanga niður úr trjánum, eftir smá tíma hætta hlutimir þama að koma manni á óvart. Kárahnjúkar og stuðn- ingurinn við stríðið í írak er það sem endanlega fyllir mælinn hjá honum. Hann er eirðarlaus sál sem er alltaf á forum, en þetta er það sem gerir það að verkum að hann tekur loksins af skarið. Þetta em taugaveiklunarvið- brögð við lífinu í Reykjavík. En einnig er þarna dýrðaróður um Vestfirði. Sól- in er bjartari þar.“ Bókaútgáfan Bjartur er einnig að gefa út Opnun kryppunnar eftir Odd- nýju EirÆvarsdóttír. Báðar bækurnar koma út í bókaröðinni Svarta línan sem er helguð verkum sem em á mörkum tveggja eða fleiri bók- menntagreina. Hölt hðra á Gauknum Rokkhljómsveitin Hölt hóra ætlar að leika fyrir gesti á Gauki á Stöng f kvöld ásamt sveit- inni Stoneslinger. Tónleikarnir eru liðurí tónleikaröð sveitanna sem kallast Fimmtu- dagsfjör og að þessu sinni hefur sveitunum Coral og Lokbrá verið boðið að spila með. Fyrsta sveitin mun stíga á sviöiö upp úr kl. 221 kvöld og aðgangseyrir er enginn. Húsbréf Utdráttur húsbréfa Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í eftirtöldum flokkum: 4. flokki 1992 - 42. útdráttur 4. flokki 1994 - 35. útdráttur 2. flokki 1995 - 33. útdráttur Koma þessi bréf til innlausnar 15. júní 2004. Öll númerin verða birt i Lögbirtingablaðinu. Auk þess liggja upplýsingar frammi hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum. íbúðalánasjóður Borgartúni 21 | 105 Reykjavík I Sími 569 6900 | Fax 569 6800 | www.ils.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.