Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Page 19
r*V Sport FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2004 19 Klitschko ekki hættur Úkraínumaðurinn Vladimir Klitschko, sem Lamom Brewster lamdi í harðfisk á laugardaginn síðasta, segist ekki vera hættur þrátt fyrir þetta slæma tap. „Bardaginn er tapaður en ég mun pottþétt ekki hætta. Ég stýrði bardaganum til að byrja með en í annarri lotunni gerðist eitthvað furðulegt því mér fannst orkan leka úr líkamanum og fæturnir urðu eins og gúmmí. Ég þarf að finna út hvað var að mér,“ sagði fyrrverandi ólympíumeistarinn Klitschko sem endaði á spítala og er honum ráðlagt að setja hanskana á hilluna. 661 heima- hlaup hjá Bonds Hafiiaboltamaður- inn Barry Bonds sló sitt 661. heimahafnarhlaup um síðustu helgi. Það kom honum í þriðja sæti yfir flest heima- hafnarhlaup í sögunni en hann var fyrir leikinn jafn Willie Mays. Hann vantar 53 í viðbót til þess að ná sjálfum Babe Ruth. Skýr markmið hjá Gerrard Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að Liver- pool verði að ná fjórða sætinu í ensku deildinni. „Ég veit að við fáum ekki medalíu fyrir það en það væri samt stórkostlegt að ná fjórða sæti. Það skiptir öllu að mínu mati því allir vilja leika í meistaradeild- inni,“ sagði Gerrard en hann gæti farið frá félaginu takist það ekki. Schalke vill fáVan Bommel Þýska úrvalsdeildar- félagið Schalke er stokkið í slaginn um hollenska landsliðs- manninn Mark Van Bommel, leikmann PSV. Þeir eru því í harðri keppni við Tottenham sem hefur einnig áhuga á leikmanninum. Schalke virðist þó standa betur að vígi samkvæmt umboðsmanni Bommel en hann býst við að klára málið í vikunni. Hinn 14 ára gamli Freddy Adu varð í byrjun mánaðarins yngsti atvinnumaður Bandaríkjanna í íþróttum í rúma öld. Sjaldan eða aldrei hefur einn íþróttamaður verið eins mikið í kastljósi Qölmiðlanna en táningurinn Adu hefur tekið öllu fárinu með mikilli yfirvegun og virðist vera í ákaflega góðu jafnvægi Þann 3. apríl síðastliðinn rann upp stærsti dagur í lffi hins 14 ára gamla Freddy Adu. Þá spilaði hann sinn fyrsta leik sem atvinnumaður í knattspyrnu. Staðurinn var RFK-leikvangurinn í Washington og liðin voru DC United og San Jose Earthquakes. Adu spilar með DC og honum var skipt inn á þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum. Það sem eftir lifði leiks stóðu áhorfendur á öndinni. Bjuggust við því að strákurinn myndi sóla alla upp úr skónum og skora þrjú mörk en það voru að sjálfsögðu óraunhæfar kröfur. Strákurinn sýndi engin snilldartilþrif, átti ekkert skot að marki en gerði heldur engin mistök. Honum var alveg sama. Fyrsti leikurinn var að baki og nú getur hann einbeitt sér að því að bæta leik sinn. Þegar honum var skipt inn á varð hann yngsti atvinnumaðurinn í bandarísku íþróttalífi í rúm 100 ár. Það er aðeins einn íþróttamaður yngri en hann sem hefur leikið sem atvinnumaður. Sá heitir Fred Chapman og hann spUaði hafnabolta fyrir PhUadelphia Athletics fjórum mánuðum áður en hann varð 15 ára. Það var árið 1887. Stemningin á RFK-leikvanginum 3. aprfl var ótrúleg. Það var að sjálfsögðu uppselt. Reyndar voru aðeins seld rúmlega 24 þúsund sæti en leikvangurinn tekur 53 þúsund. Ástæðan fyrir því að DC United seldu aðeins þetta marga miða var tU þess að skapa meiri eftirspurn og hækka miðaverð. TU marks um áhuga heimsins á leiknum þá voru 250 blaðamenn á vellinum, frá Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Hrópuðu: „Freddy, Freddy" Stuðningsmennirnir voru vonsviknir þegar þeir sáu að Adu byrjaði leikinn á bekknum. í hvert skipti sem sóknarmenn DC klúðruðu færi hrópaði leUcvangurinn nafn Freddys - hann var ástæðan fyrir því að þeir voru mættir á völlinn. Þegar 61 mínúta var liðin af leiknum var komið að stóru stundinni. Adu fékk tækifæri í stað Alecko Eskandarian sem faðmaði strákinn inrúlega áður en þeir skiptu um hlutverk. Áhorfendur stóðu upp allir sem einn og drógu vart andann næstu tíu mínútur. Adu spUaði lengstum sem framherji en dró sig stundum tU baka og lék þá sem framliggjandi miðjumaður. Eina skiptið sem hætta skapaðist í kringum hann á þessum hálftíma kom sex mínútum fyrir leikslok þegar hann stóð einn gegn hinum 35 ára gamla, þrautreynda bandaríska landsliðsmanni, Jeff Agoos. Sá reyndi kappi lét Adu ekki fífla sig heldur tók af honum boltann. Adu féll í grasið, bað um vítaspyrnu sem hann fékk réttUega ekki. hefði haft áhrif á hann. „Mér fannst ég alltaf vera skrefi á eftir hinum leikmönnunum. Það var lflcast tU út af andrúmsloftinu sem var á vellinum. Svo fékk ég heldur ekki að spUa jafn mUdð og ég hefði vUjað en það skipfir ekki máli því mestu skipúr að þessi leikur er loks á enda. Nú er ég tUbúinn að einbeita mér að knattspymu.“ Feginn að leikurinn er búinn Það var þungu fargi létt af stráknum í leikslok. „Þetta var gaman og ég er feginn að þessi leikur er búinn. Þetta var rosaleg reynsla og minningin mun lifa með mér alla ævi," sagði Adu en hann gat ekki neitað því að pressan Ágæt frammistaða Leiknum lauk með sigri DC, 2-1, en þeir eru eflaust fáir sem muna það. Næsti leikur liðsins var gegn Los Angeles Galaxy og þá spUaði Adu allan sehmi hálfleikinn en tókst samt ekki að setja mark sitt á leikinn. Það verður verðugt verkefni fyrir „Þetta var gaman og ég er feginn að þessi leikur er búinn. Þetta var rosaleg reynslu og minningin mun lifa með mér alla ævi. Mér fannst ég alltafvera skrefi á eftir hinum leikmönnunum. Það var líkast til út af andrúmsloftinu sem var á vellinum." Magnaður strákur Hinn 14 ára gamli Freddy Adu lék sinn fyrsta leik sem atvinnumaður í byrjun mánaðarins. Hann er yngsti atvinnumaður Banda-rikjanna I iþróttum í rúm 100 ár. Hann játaði það að vera feginn að fyrsta ieiknum væri lokið enda ótrúleg pressa á þessum 14 ára stráklingi. Hann sést hérá ferðinni I fyrsta leiknum. Reuters knattspyrnunni áður. Samningur hans við DC United færir honum að lágmarki hálfa mUljón dollara á ári en það gerir hann að launahæsta leikmanni deUdarinnar. Hann hefur þegar eytt hluta peninganna með því að kaupa hús handa móður sinni eins og venja er hjá nýríkum íþróttamönnum. Munurinn á Adu og öUum hinum er að hann býr í húsinu hjá móður sinni enda sér hún um að elda ofan í hann sem og að keyra hann á æfingar því ekki er Adu kominn með bflpróf. Hann er einnig með mUljóna- samning við Nike og svo er hann farinn að leika í auglýsingum fyrir Pepsi en hann gerði Pepsi- auglýsingu með sjálfum Pelé fyrir skömmu síðan. Hann fékk svívirðilega upphæð fyrir að leika í auglýsingunni með Pelé. Á bekk með Jordan og Tiger Auglýsendur í Bandaríkjunum hafa mikla trú á stráknum og fyrirtæki keppast um að fá strákinn tU Uðs við sig. Það segir meira en mörg orð að forstjóri Nike hefur trú á því að Adu geti fært fyrirtækinu meiri tekjur en Michael Jordan, Tiger Woods og LeBron James. Framtíðin er Adus. Það er ljóst að hann mun aldrei þurfa að hafa aftur áhyggjur af peningum og það hjálpar honum vonandi að bæta sig sem knattspyrnumaður. Hann setur markið enn hátt og næsta markmið hjá honum er að koma sér í bandaríska landsliðið og fara með þeim á HM í Þýskalandi 2006. henry@dv.is þjálfara liðsins, Peter Nowak, að halda Adu á jörðinni og reyna að töfra það besta út úr honum. Hann sagði að frammistaða Adu í leiknum hefði verið aUt í lagi. „Það kom aldrei annað tU greina en að byrja með hann á bekknum. Pressan var næg fyrir. Hann var augljóslega mjög stiessaður áður en hann snerti boltann í fýrsta skiptið. Þá sagði ég honum að færa sig inn á miðjuna svo hann kæmist betur í takt við leikinn. Þá myndi hann einnig róast aðeins." í heimsókn hjá Letterman Það var mikiU fjölmiðlasirkus £ kringum Adu fyrir fyrsta leUdnn. TU að mynda fékk David Letterman hann í þáttinn tU sín og 60 mínútur voru með innslag um strákinn. Skal svo sem engan undra þar sem margir telja að aldrei áður hafi komið fram annað eins efni í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.