Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2004, Side 20
. 20 FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2004
Sport DV
Úrslitakeppni í RE/MAX-deild karla í handbolta fór vel af stað og markamets-
jöfnun leit dagsins ljós. Einar Hólmgeirsson jafnaði 2 ára markamet Aleksandrs
Petersons þegar að hann skoraði 15 af 29 mörkum ÍR-inga gegn Gróttu/KR og varð
þar með 5. leikmaðurinn til að skora yfir helming marka síns liðs.
Met á fyrsta degi
Einar Hólmgeirsson byrjaði úrslitakeppnina í RE/MAX-deild
karla af miklum krafti og skoraði 15 mörk í 29-23 sigri ÍR á
Gróttu/KR í fyrsta leik einvígis liðanna í átta liða úrslitum. Einar
þurfti aðeins 22 skot til að skora mörkin sín 15 og skotnýting
hans var því glæsileg eða 68%. Mörkin 15 eru metjöfnun.
15 mörk í 22 skotum Einar Hólmgeirsson átti frábæran leik fyrir lR í úrslitakeppninni I
fyrrakvöld og jafnaðf markametið í úrisitakeppninni i leiknum.
Haukar unnu Eyjamenn, 41-39, í mesta markaleik í sögu úrslitakeppni karla
Markamet á Ásvöllum - 80 marka leikur
Stefán bjargaði
KA-mönnum
Stefán Guðnason, ungur
markvörður KA-manna,
tryggði þeim sigur á Fram í
fyrsta leik liðanna í átta liða
úrslitum þegar hann kórón-
aði glæsilega frammistöðu
sína með því að verja
vítakast Valdimars Þórsson-
ar sjö sekúndum fyrir lok
framlengingar og KA vann
leikinn í kjölfarið, 30-29.
Leikurinn var jafn allan
tímann. KAleiddi 13-12 í
leikhléi en staðan var 26-26
eftir venjulegan leiktíma.
Andreus Stelmokas og
Ingólfur Axelsson skoruðu
sex mörk fyrir KA, Arnór
Atlason og SævarÁmason
fimm. Stefán Guðnason
varði 25 skot, þar af þrjú
vítaköst. Valdimar Þórsson
skoraði U'u mörk fyrir Fram
og Hjálmar Vilhjáhnsson
skoraði sjö mörk.
* Valssigur undir
stjórn Geirs og
Valdimars
Geir Sveinsson og Valdi-
mar Grímsson stjórnuðu
Valsliðinu til sigurs, 31-26, í
förföllum Óskars Bjarna
Óskarssonar, þjálfara Vals, í
fyrsta leik einvígis þeirra
við FH í átta liða úrslitum
RE/MAX-deildar karla.
Baldvin Þorsteinsson
skoraði 10 mörk fyrir Val,
s Hjalti Gylfason var með 7
og besti maður liðsins
Hjalti Pálmason skoraði 5.
Þá varði Örvar Rúdólfsson
15 skot. Hjá FH skoraði
Logi Geirsson 8 mörk og
nýtti skotin sín vel (62%) en
átti eins og félagar hans
alltof mikið að slæmum
sendingum sem Valsmenn
breyttu fljótt í ódýr mörk
hinum megin.
FH-liðið virkaði þreytt
og pirrað í seinni hálfieik og
gerði sig seka um mörg
x dýrkeypt mistök og
klaufaleg brot.
Allir leikirnir
unnust heima
Heimaliðin unnu alla fjóra
leikina í átta liða úrslitum
RE/MAX-deildar karla í
handbolta en í kvöld færast
einvígin á heimavelli ÍBV
(gegn Haukum), FH (gegn
Val), Gróttu/KR (gegn ÍR)
og Fram (gegn KA) og nú er
að sjá hvort einhverju af
þeim liðum tekst að tryggja
sér oddaleik. Leikirnir
f hefjast allir klukkan 19:15.
Nýtt markamet var sett á
Ásvöllum í fýrrakvöld þegar
Haukar unnu ÍBV, 41-39, í
fyrsta leik einvígis þeirra í átta
liða úrslitum RE/MAX-deildar
karla í handbolta. Alls voru
skoruðu 80 mörk á 60
mínútum og bættu liðin gamla
metið um heil 10 mörk.
Leikurinn var sóknarleikur af
bestu gerð en nánast enginn
varnarleikur var spilaður sem sést
vel á því að liðin eru að skora 1 og
hálft mark á hverri mínútu. Mörkin
skiptust jafnt milli hálfleikja því
Haukar höfðu yfir í leikhléi, 21-19.
Leikurinn var jafn allan tfmann
en Haukarnir höfðu þó frumkvæðið.
Þeir náðu mest þriggja marka for-
skoti og leiddu 24-21 snemma í
seinni hálfleik. Þá tók við besti kafli
Eyjamanna í leiknum og þeir breyttu
stöðunni í 26-29 en Haukarnir náðu
með seiglunni að breyta stöðunni
sér í hag á lokakaflanum.
Halldór Ingólfsson skoraði níu
mörk fyrir Hauka, þar af sjö úr vít-
um. Ásgeir Örn Hallgrímsson skor-
aði sjö mörk, Þórir Ólafsson og Jón
ÍR-ingar sigruðu Gróttu/KR
29-23 í þessum metleik Einars á
heimavelli sínum í Austurberg en
þeir tóku strax forystuna í leiknum
og leiddu 3-0 og 5-1 og síðan 17-10
í leikhléi. Grótta/KR tókst að minnka
muninn í tvö mörk en ÍR-ingar gáfu
í að nýju og unnu öruggan sigur.
8 af 12 mörkum ÍR í seinni
Einar Hólmgeirsson átti frábær-
an leik, hann skoraði fimmtán mörk,
þar af átta af tólf mörkum ÍR-inga í
seinni hálfleik. Ingimundur Ingi-
mundarson skoraði sjö, Bjarni Fritz-
son fimm og Hannes Jón Jónsson
tvö en aðeins fjórir ÍR-ingar komust
á blað í leiknum. Ólafur Gíslason
varði m'tján skot, þar af tvö víti.
Páll Þórólfsson skoraði sex mörk
fyrir Gróttu/KR, Konráð Olavsson og
Kristinn Björgúlfsson fjögur. Gísli
Guðmundsson varði sautján skot,
þar af eitt víti.
Einar jafnaði markametið en
komst þó ekki nálægt meti
Valdimars Grímssonar frá því í
úrslitaleikjum Vals og KA um titilinn
HÆSTA HLUTFALL
Einar Hólmgeirsson skoraði meira
en helming marka (R-inga í
leiknum gegn Gróttu/KR og varð
fimmti leikmaðurinn til að gera
það í sögu úrslitakeppni karla í
handbolta síðan hún var tekin upp
í núverandi mynd vorið 1992.
Haesta hlutfalf marka síns liðs:
61,9%
Valdimar Grímsson, KA 13 af 21
Gegn Val í úrslitum 1995
56,5%
Julian Duranona, KA 13 af 23
Gegn Val í úrslitum 1996
55,6%
Aleksandrs Petersons Gró./KR 15 af 27
Gegn KA í 8 liða úrslitum 2002
55,6%
Daði Hafþórsson, Fram 10 af 18
Gegn (BV í 8 liða úrslitum 1997
51,7%
Einar Hólmgeirsson, (R 15 af 29
Gegn Gróttu/KR í 8 liða úrslitum 2004
Karl Björnsson sex mörk hvor,
Andri Stefan fimm, Vignir Svavars-
son fjögur, Robertas Pauzuolis þrjú
og Þorkell Magnússon eitt. Birkir
ívar Guðmundsson varði 20 skot og
fékk því á sig 59 skot í leiknum eða
næstum því skot á hverri einustu
mínútu.
Zoltán Belányi skoraði tíu mörk
fyrir ÍBV, fjögur þeirra úr vítum, og
Josef Böse átta, tvö úr vítaköstum.
Sigurður Stefánsson skoraði fimm
mörk, Kári Kristjánsson þrjú, Mich-
ael Lauritzen tvö og Erlingur Ric-
hardsson, Sigurður Bragason og
Björgvin Rúnarsson eitt mark hver.
1995. Valdimar sem lék þá með KA
gegn sínum gömlu félögum og
skoraði 13 af 21 marki liðsins í leik
liðanna á Hlíðarenda. Valdimar
gerði reyndar 9 marka sinna úr
vítaköstum en Einar skoraði 11 af 15
mörkum sínum utan af velli.
Ekker mark úr víti
Einar jafnaði tveggja ára
markamet Aleksandrs Petersons
sem skoraði 15 mörk í tapleik
Gróttu/KR gegn KA í 8 liða úrslitum
2002. Petersons skoraði öll 15
mörkin sín utan af velli í leiknum og
það met verður seint slegið í
úrslitakeppninni. Hann þurfti 21
skot til að skora mörkin 15 og gerði
eitt marka sinna úr hraða-
upphlaupum.
Sigurður Valur Sveinsson átti
markametið tíu fyrstu ár
úrslitakeppninnar en hann skoraði
14 mörk fyrir Selfoss í öðrum leik
lokaúrslitanna gegn FH vorið 1992.
10 árum seinna bætti Petersons
metið sem Einari jafiiaði svo í
Austurberginu í gær. ooj@dv.is
FLESTMÖRKÍ LEIK
12 leikmenn hafa skorað 12 mörk
eða meira í sögu úrslitakeppni
karla í handbolta síðan hún var
tekin upp í núverandi mynd vorið
1992. Einar Hólmgeirsson jafnaði
markametið I gær.
Flest mörk I einum leik í
úrslitakeppni karla:
15
Aleksandrs Petersons Gró./KR 2002
Einar Hólmgeirsson, (R 2004
14
Sigurður Sveinsson, Selfoss 1992
Sturla Ásgeirsson, (R 2003
Goran Gusic, Þór Ak. 2003
13
EinarGunnarSigurðss, Self. 1992
Valdimar Grímsson, KA 1995
Julian Duranona, KA 1996
Guðjón Valur Sigurðss., KA 2000
GuðjónValur Sigurðss., KA 2001
Jón Karl Björnsson, Haukum 2002
Baldvin Þorsteinsson, KA 2003
Jóhann Guðmundsson varði fjórtán
skot, þar af eitt víti. Gamla metið var
aðeins ársgamalt og það var einnig
sett á Ásvöllum. Haukar unnu Fram,
43-27, í oddaleik liðanna í átta liða
úrslitum í fyrravor og mörkin 43 sem
Haukarnir skoruðu í þeim leik
stendur enn sem flest mörk liðs í
einum leik í úrslitakeppxú.
Þau 39 mörk sem Eyjamenn
skoruðu í fyrrakvöld er hinsvegar
það mesta sem lið hefur skorað á
útivelli í sögu úrslitakeppni karla í
handbolta síðan hún var tekin upp í
núverandi mynd vorið 1992.
ooj@dv.is