Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2004, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2004, Qupperneq 14
14 FÖSTUDACUR 16. APRÍL 2004 Fréttir JJV Bannar reyfara Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, hefur fengið því framgengt að sala bókarinnar „Endalok kanslarans" hefur verið stöðvuð. Um er að ræða glæpa- sögu og á kápu bókarinnar gefur að líta mynd af manni, sem þykir afskaplega líkur Schröder. Bókin er sögð eftir Reinhard Liebermann, sem talið er vera dulnefni, fjallar um lyfsala sem kennir rikis- stjórninni um þegar hann fer á hausinn. Hann ákveð- ur að hefna sín og skýtur kanslarann á járnbrautar- stöð í Hanover - en það er einmitt heimabær Schröders. Dómstóllinn segir að ekki megi selja bókina fýrr en myndin á kápunni hefur verið fjar- lægð. Forleggjarinn hafnar þessu og segir myndina ekkert líka Schröder. Nafnið Díómedes viðurkennt Mannanafnanefnd kemst að því í nýlegum úrskurði sínum að viður- kenna beri karlkyns nafnið Díómedes og færa það á mannanafna- skrá. Hins vegar lýst nefndinni ekki jafnvel á kvennanafnið Mizt og hefur hafnað að færa það á skrána, Af öðrum nýjum íslenskum nöfn- um á skránni má nefna kvennanafnið Himin- björg og karlanöfnin Tindar og Vígmar. Stefnir banka vegnaráns Fórnarlamb ræningja kennir gjaldkera í banka um hvernig fór. Isabel Barros var rænd skömmu eft- ir að hún kom út úr banka í mið- borginni. Hún var með níu þúsund pund í töskunni þegar tveir menn réðust að henni. Barros segir margt fólk hafa verið í bankanum og skyndilega hafi gjaldkerinn hrópað: Hvar er konan með níu þúsund pundin? Barros gaf sig fram við gjaldkerann og segir nú að það hafi verið mistök. Ræningjarnir hafi verið inni í bankanum og síðan veitt henni eftirför. Það er sem sé gjaldkerán- um að kenna hvernig fór og konan vill fá bætur í sam- ræmi við það. Rifflum stolið Síðdegis á þriðjudag var lögreglunni í Keflavík til- kynnt um þjófnað á fimm rifflum úr bflskúr við ein- býlishús í Grindavík. Einnig mun hafa verið stolið ein- hverju magni af skotfærum. Þjófnaðurinn er talinn hafa átt sér stað á tímabilinu frá 4. til 13. apríl. Málið er í rannsókn. Lögreglan segir of algengt hjá eigendum skotvopna að vörslu sé ábótavant. Hvetur lögregl- an alla þá sem eiga skot- vopn að geyma vopnin í lokuðum byssuskápum. Þeir sem einhverjar upplýs- ingar geta veitt við rann- sókn málsins eru beðnir um að snúa sér til lögregl- unnar í Keflavík í síma 420 2400. Verð á íbúðum lækkar ört eftir því sem fjær dregur miðjunni á svæði 101 í Reykja- vík. í Grafarvogi er munurinn orðinn að meðaltali um tvær milljónir fyrir sam- bærilegar þriggja herbergja, 100 fm íbúðir og í Ölfusi er munurinn orðinn um fimm milljónir kr. Á dýrustu íbúðum í höfuðborginni getur verðmunurinn orðið mun meiri eftir hverfum þótt um sams konar eignir sé að ræða. Staðsetning getur kostaö sjö milljónir aukalega Gjaldfrjáls leikskoli Ágúst Ólafur Ágústsson, þing- maður Samfylkingarinnar, spurði menntamálaráðherra hvort hún væri tilbúin að beita sér fyrir því að fella niður gjald í leflcskóla. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra hafnaði slíkum hugmyndum. „Leikskóla- gjöld eru mjög þungur baggi fyrir fjölskyldur landsins,“ segir Ágúst ðlafur og bendir á að einn mán- uður í leikskóla kosti svipað og eitt ár í háskóla. Jafnframt segir Ágúst fjárskort vera enga afsökun - þetta sé allt spuming um for- gangsröðun. Samkvæmt könnun DV á verði fbúða á SV-horni landsins getur staðsetning kostað töluverðar fjárhæðir. Dýrasta fasteignasvæði landsins er 101 Reykjavík miðað við verð á fermetra á svipuðum eignum en fer síðan lækkandi eftir því sem lengra kemur út í út- hverfin og nágrannasveitarfélögin. ræða. í könnuninni var stuðst við sölur á tímabilinu frá 1961 til 2004. samanburðaríbúðirnar í nágranna- sveitarfélögunum voru yfirleitt byggðar á sl. áratug. f Hafnarfriði þar sem aldursdreifingin er svipuð og í Reykjavrk er meðalverðið ívið lægra en í Reykjavík. Staðsetningin kostar sitt Við samanburð á íbúðaverðinu verður að taka tillit til ýmissa þátta eins og ástand íbúðarinnar, bygg- ingarár, innréttingar og fleira. Sem dæmi um verðmun á milli hverfa í Reykjavík á sambærilegum eignum má nefna tvær íbúðir sem fasteigna- salan Miðborg hefur í sölu. „í 101 Reykjavík erum við með í sölu 100 fm íbúð; glæsilega, nýuppgerða og er ásett verð hennar við sölumeð- ferð 24,7 milljónir króna,“ segir Karl Georg Sigurbjörnsson hrl. og lög- giltur fasteignasali. „í 112 Reykjavík erum við með nýja fullbúna þriggja herbergja íbúð og er verð hennar kr. 17,9 milljónir króna. Hugsanlega er hægt að finna dýrari íbúðir í hvoru póstnúmeri en þetta eru íbúðir sem eru til staðar í dag og í raunverulegri sölumeðferð.11 í máli Karls kemur ennfremur fram að það sem þarf að hafa í huga þegar fasteignaverð er metið er að það er metið út frá markaðinum hverju sinni og hver íbúð er sérstök að sínu leyti að teknu tilliti til inn- réttinga, útlits og staðsetningar þ.a. erfitt er að flnna út einhverja staðla til að reikna meðalfermetraverð sem slíkt. Fermetraverð innan götu getur því verið breytflegt milli íbúða þrátt fyrir að þær séu af sömu stærð þegar tekið er tfllit tfl innréttinga. Mæðgur lentu í skelfilegu bílslysi - móðirin lést samstundis Fimm ára lifði af tíu daga dvöl í bílbraki Það þykir kraftaverki líkast að fimm ára stúlka skyldi lifa af tíu daga dvöl í bílbraki við hraðbraut skammt frá Los Angeles í Bandaríkj- unum. Ruby litla Bustamante var við ótrúlega góða heflsu þegar vega- vinnumenn gengu fram á hana í fyrradag. Móðir Ruby fannst látin í bílnum og virðist sem hún hafi misst stjórn á bílnum með þeim af- leiðingum að hann hentist út af veg- inum og hafnaði á tré. Ruby dró fram lífið með því að drekka orkudrykki og þurrar núðlur sem hún fann í brakinu. „Hún bros- ir, horfir á sjónvarp og er afar glöð yfir að hafa hitt fjölskyldu sína á ný,“ sagði Webster Wong læknir sem annast stúlkuna á Riverside- sjúkrahúsinu í Los Angeles. Wong Hetja Ruby Bustamante er ekki fisjað sam- an. Hún lifði á orkudrykkjum og núðtum í tíu daga. segir stúlkuna hafa verið ótrúlega vel á sig komna þegar hún fannst. Hún hafi verið svöng og þyrst sem eðlilegt er. Fjölskylda mæðgnanna lét lýsa eftir þeim þann 5. apríl síðastliðinn. Deginum áður hafði vegalögreglu borist ábending um að bíll kynni að hafa farið út af umræddri hrað- braut. Eftirgrennslan lögreglu leiddi ekkert í ljós enda hefur komið á daginn að bílbrakið var í hvarfl frá veginum. Réttarlæknir telur að móðir Ruby hafi látist samstundis eða nokkrum mínútum eftir slysið. Fjölskylda Ruby er æf vegna vinnu- bragða lögreglunnar en að sama skapi ánægð með að hafa endur- heimt stúlkuna. „Það er kraftaverk að litla frænka mín skyldi lifa þetta af. Það er gott til þess að hugsa að drottinn gætir hennar,“ sagði Johnny Marin, móðurbróðir Ruby, við fjölmiðla í gær. seinnihluta síðustu aldar og samtöl- um við fasteignasala. Til grundvall- ar var lögð þriggja herbergja ca. 100 fm eign í fjölbýli á þeim stöðum sem athugaðir voru. Að meðaltali er fer- metraverð á slfkri eign í Reykjavrk um 136.000 kr. f Reykjanesbæ er meðalverðið komið niður í 106.000 kr. og munurinn á nafhverði þá kominn í um 3 mflljónir króna. Á Akranesi er meðalverðið komið nið- ur í 94.000 kr. og í Ölfusi er meðal- verðið 85.000 kr. og er munurinn á nafnverði eignarinnar þá orðinn um 5 milljónir kr. Tekið skal fram að meðalverð á sam- bærilegum íbúð- um í Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ er ívið hærra en í Reykjavík en þar er yfirleitt um nýrri íbúðir að Staðsetning getur kostað sjö milljónir króna aukalega og er það raunverulegt dæmi um mjög svip- aðar 100 fm íbúðir, annar svegar á svæði 101 og hins vegar á svæði 112. Að meðaltali er þessi munur á 101 og úthverfunum eins og t.d. Grafar- vogi um 2 milljónir kr. á eignum af fyrrgreindri stærð og í Ölfusi er munurinn orðinn um 5 milljónir kr. Tölulegar upplýsingar byggja á verðsjá Fasteignamats ríkisins á fasteigna- sölu á eignum sem byggð- ar voru fíM Akranes Reykjanesbær Hér munar 4 milljónum kr. á Hér munar 3 milljónum króna á meðalverðinu i Reykjavik. meðalverðinu i Reykjavik. ölfus Næstu nágrannar Hér er munurinn orðinn 5 milljónir kr. Ekki munur þar sem húsnæðið er mun miðað við Reykjavik. yngra en i Reykjavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.