Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2004, Side 22
V
22 FÖSTUDAGUR 16. APRÍL 2004
Fókus DV
Sannleikurinn
umbarsamtöl
„Þú borgar þessa umferð, ég tek þá
næstu."
Raunveruleg merking:„Ég verð hvortsem er
farinn eftir smá stund."
„Ég borga þessa umferð, þú tekur þá
næstu."
Raunveruleg merking:„Tveir fyrir einn til-
boðið hættir eftir smá stund Næsta umferð
verður helmingi dýrari þannig að ég skal
takaþessa."
„Hvar er kærastan þín?"
tt Raunveruleg merking:„Ég er bara að tala
við þig til að komast yfir kærustuna þina."
Kona segir: „Ég ætla að fá einn Breez-
er."
Raunveruleg merking:„Ég er lauslát."
Karl segir: „Ég ætla að fá einn Breez-
er."
Raunveruteg merking:„Ég erhommi."
Kona segir: „Ég ætla að fá einn White
Russian."
Raunveruleg merking:„Ég ermjög lauslát."
Karl segir: „Ég ætla að fá einn White
Russian."
Raunveruleg merking:„Ég er mjög mikill
hommi."
Kona segir: „Mér líður ekki vel, förum
heim."
r Raunveruteg merking:„Þú ert búinn að
horfa á allar stelpurnar hérna inni nema
mig i allt kvöld."
Karl segir: „Mér líður ekki vel, förum
heim."
Raunveruleg merking:„Ég ergraður."
„Hver ætlar að sækja næsta umgang?"
Raunveruleg merking:„Ég á ekkikrónu."
Karl segir við karl: „Afsakaðu mig að-
eins."
Raunveruleg merking:„Drullaðu þér frá.“
Karl segir við konu: „Afsakaðu mig að-
eins."
Raunveruleg merking: „Ég ætla að káfa að-
eins á þér og kenna þrengslunum hérna
inni um."
Kona segir við karl: „Afsakaðu mig að-
"* eins."
Raunveruleg merking:„Ekki einu sinni
hugsa um það, drullaðu þér bara i burtu."
Kona segir við konu: „Afsakaðu mig
aðeins."
Raunveruleg merking:„Drullaðu þér frá
druslan þin. Hvað ertu annars að gera
hérna inni? Heldurðu að þú sért eitthvað
merkileg -baraafþvíaðþúert klædd eins
og hóra. Hættu svo að horfa á karlinn
minn."
„Mér finnst ég kannast við þenn-
an/þessa"
Raunveruleg mérking:„Svaf ég einhvern
tlma hjá þessum/þessari?"
Kona: „Ég gleymdi skilríkjunum."
Raunveruleg merking:„Ég er bara 17."
„Gaman að sjá þig, það er allt og langt
síðan að við höfum sést. Við þurfum
endilega að fara að hittast."
Raunveruleg merking:„Þurfti ég endilega
að rekast á þig hérna."
„Má ekki bjóða þér upp á drykk."
Raunveruleg merking:„Ég gefþérað drekka
og þú kemur með mér heim."
Kona segir: „Gaman að sjá þig. Rosa-
lega líturðu vel út."
Raunveruleg merking:„Djöfull ertu orðin
feit."
v
Karl segir við karl: „Ég svaf einu sinni
hjá þessari."
Raunveruleg merking:„Ég reyndi einu sinni
við þessa en hún sagði nei."
„Ég býst við að ég verði heima og
hafi það kósý alla helgina. Ekkert
djamm alla vega hjá mér þessa helgi.
Ef ég ímynda mér helgina þá fer ég
ábyggilega í sund á morgun og elda
svo góðan mat um kvöldið og horfi á
sjónvarpið. Svo á sunnudeginum verð
ég í stúdíói að taka upp nýju
plötuna sem við emm að
t fara að gefa út. Platan
; kernuf vonandi út
næsta haust. Á sunnu-
* dagskvöldið hugsa ég
að ég bjóði vinum
mínum í mat og
Um helgina
jafnvel að við
spilum eitt-
hvað
skemmtilegt
spil eftir það.“
Tónlistarmenn, listamenn og aðrir íslenskir framapotarar sem væru að öllu jöfnu
einangraðir á þessu litla skeri geta nú sprangað um tölvuskjái heimsins án nokk-
urra vandræða eða mikillar fyrirhafnar og margir uppskera vel. DV skoðaði
nokkrar íslenskar heimasíður.
fiariolKsins
■ | J B ^ Hver? Páimi
Hver? Þorsteinn \ Slóðin: nalmi.is L-
Hver? Stefán
Hilmarsson
Slófiin:
mmedia.is / stefan-
hilmars
Hvað? Greinilega
mikil vinna lögð í
þessa síðu. Farið
yfir lífshlaup Stef-
áns á þann máta að halda
mætti að hann hyggðist bjóða
sig fram til forseta.
★ ★★
Hver? Eivör Páis-
dóttir
SlÓðÍn: eivor.com
Hvað? Eivor er
greinilega ekki
jafn hrifinn af ís-
landi og við höld-
um því heimasíð-
an hennar er öll á
færeysku. Samt sem áður fín
síða og gaman að lesa um dvöl
Eivarar í sangskúlanum í
Reykjavík.
★★★
Hver? Dr. Gunni
Slóðin:
this.is/drgunni
Hvað? Sniðug
síða. ftarleg sund-
lauga- og veitinga-
húsagagnrýni og
hans sívinsæla
blogg stendur upp I
úr. Hægt er að sækja tónlist og
ýmsan fróðleik um lífið og til-
veruna.
★★★★
Hver?BjörkGuð-
mundsdóttir
Slóðin: bjork .com j
Hvað? Eins og
Björk þá er þessi
síða á allt öðru
plani en síður
flestra íslenskra
listamanna. Hún
er virkilega vönduð og flott og
þarna er hægt að nálgast allar
upplýsingar um þjóðarstolt
okkar íslendinga.
★★★★★
Hver? Geir
Ólafsson
Slóðin:
listen.to/iceblue
Hvað?Á síðunni
er hægt að lesa
hjartnæma lýs-
ingu á Geiri sjálf-
um og einstöku
lífshlaupi hans. Og svo er hægt
að skrá sig í aðdáendaklúbb
Iceblue sem er vafalaust fjöl-
sóttur.
Hver? Gabríela
Slóðin: gabriela.is!
Hvað? Listakona
sem heldur úti
virkilega flottri
síðu. Hægt er að
skoða listaverk frá
Gabríelu og lesa
ferilskrána henn-
ar. Allir sem hafa áhuga á list-
úm ættu að hafa gaman af
þessari síðu.
★★★★★
Guðmundsson
Slóðin: thor-
steinngudmunds- r
son.is
Hvað? Fyndin og
skemmtÚeg síða.
Hægt er að skoða
skemmtilegar
greinar og pistla frá Þorsteini
og lesa um þau verkefiii sem
hann hefur verið að vinna að.
★ ★★★
'mmm
Hver? Mugison
Slóðin: mugi-
son.com
Hvað? Síðan, sem
er greinilega í
dvala núna, er öll
á ensku og á ef-
laust að heilla er-
lenda netvafrara
frekar en íslenska. Lítið að
skoða annað en tónlistarsýnis-
horn.
★★
Slóðin: palmi.is
Hvað? Hér er
komin heimasíða
eina fræga Bolvík-
ingsins. Palmi
skrifar skemmti-
lega netdagbók og!
einnig er hægt að skoða hvað
leikarinn hefur fengist við í
gegnum tíðina.
★ ★^
Hver? Jón Gnarr
Slóðin:
this.is/gnarr
Hvað? Þessi síða
mun vekja áhuga
allra strangtrúaðra
kristinna manna.
Hægt er að skoða
myndir frá sýn-
ingu Jóns þar sem hann útfær-
ir biblíusögurnar á óhefð-
bundinn hátt.
★ ★★^
Hver? Daníel
Ágúst
Slóðin: dani-
elaugust.com
HvaO? Flott síða
þar sem hægt er
að fýlgjast með því
hvað þessi vinsæli
söngvari er að að-
hafast á erlendri grundu.
★ ★★★
Hver? Hera Hjart-
ardóttir
Slóðin: her-
asings.com
Hvað? Flott síða
sem greinilega er
ætluð erlendum
markaði, mikið að
skoða fyrir aðdá-
endur Heru, en ekkert áhuga-
vert umfram það.
★★★
Aðrar áhugaverðar síður
Emiliana Torrini
emiliana.net
Hafdís Huld Þrastardóttir
hafdishuldcom
Björgvin Halldórsson
bohalldors.com
Gunnlaugur Briem
gullibriem.com
Hörður Torfason
hordurtorfa.com
Jón Ólafsson
jon.is
Éq gæti aldrei verið kona!
Ég er vandfýsinn maður og þess vegna gæti
ég aldrei verið kona. Því ef ég væri kona væri ég
fyrir löngu búin að hárreyta mig sköllótta yfir
öllu því óréttlæti sem íslenskt samfélag hefur
sýnt mér í gegnum árin og virðist, að mér sýnist,
ekki ætla að láta af. Ég væri frávita af reiði og
gremju ef það væri gagnvart mínu kyni sem
stjórnvöld og sveitarfélög sýndu lítilsvirðingu,
aftur og aftur, þar sem jafnvel lög hins háa Al-
þingis eru fótum troðin þegar þau gera stráka-
klúbbunum erfitt um vik. Ég væri líka eflaust
orðin að yfirlýstu karl-haturskvendi ef feður
mfnir, eiginmenn og synir mótmæltu ekki, á
hverjum sunnudegi á Austurvelli, ójöfnum rétt-
indum mínum.
En ég er lfka óþolinmóður maður og það er
önnur ástæða fýrir því að ég gæti aldrei verið
kona. Ég væri orðin uppgefin bæði á líkama og
sál að þurfa að horfa upp á ömmu mína og
móður berjast fyrir sambærilegum launum,
störfum og öðrum sjálfsögðum réttindum á
við karla, og sjá síðan fram á það að ég sjálf
ætti ekkert skárra í vændum; strípuð af stuðn-
ingi frá stjórnvöldum og mínum eigin kyn-
systrum innan þeirra flokka sem fara með
stjórn þessa lands. Mér fýndist það óskiljan-
legt og óafsakandi að þjóð, jafn smá og þessi,
gæti leyft sér að taka svo langan tíma í að
stuðla að jafnrétti kynjanna á öllum sviðum
mannlífsins og mér fyndist það óskiljanlegt og
óafsakandi ef kynsystur mínar, sem ég jafnvel
Pissað upp í vindinn
kaus, styngju höfðum sínum í sandinn í stað
þess að berjast fýrir réttindum mínum - og
þeirra eigin.
En ég er líka skapmikill maður og einnig
þess vegna gaéti ég aldrei verið kona. Ég myndi
aldrei geta tekið því þegjandi og hljóðalaust að
ég sjálf og aðrir af mínu kyni væru framreiddir
á jafn niðurlægjandi hátt og stundum virðist
gerast í því sem kallast popp-menning. Það
væri gjörsamlega óþolandi ef ég þyrfti að gera
mér upp
einhverja
strípihneigð
til þess eins
að eftir mér
væri tekið og
mér fýndist það skammarlegt, svo ekki sé
meira sagt, ef ég þyrfti að horfa upp á naktar
kynsystur mínar gera eina súkkulaðitegund
álitlegri en aðrar.
En sem betur fer er ég ekki kona. Ég er karl-
maður sem er alinn upp í samfélagi patríarka,
stjómsamra manna sem telja sig kannski ekki
æðri en konur en samt, ætla ekkert að vera að
ómaka sig á að hjálpa þeim við að ná sömu rétt-
indum. Sumir okkar telja að konur séu konum
verstar og að einstaklingurinn og frelsi hans sé
allt sem til þarf svo að konur komist til sömu
metorða og við.
Ég gæti aldrei verið kona - en mikið djöfull
skammast ég mín samt fýrir að vera karl.
Höskuldur Ólafsson