Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2004, Page 29
1
IXV Fókus
FÖSTUDAGUR 16.APRÍL2004 29
Haraldur Blöndal lögmaður látinn aðeins 57 ára að aldri. Nokkrir samferðamanna
hans lýsa honum sem hæfileika- og hugmyndaríkum manni, þjóðfélagsrýni með
stórt og gott hjarta.
Haraldur Blöndal (1946-2004)
Atli Gislason vinurhans lýsirhon-
um sem sáömanni frjórra hug-
mynda - vinamörgum mannisem
Haraldur Blöndal lögfræðingur er látinn aðeins 57 ára að aldri
en banamein hans var krabbamein. Harald einkenndi æðruleysi
eins og lýsti sér vel í stuttu spjalli sem Eiríkur Jónsson blaðamað-
ur átti við hann á dögunum. „Þetta er ekkert stórmál og ég er
ekkert hræddur við að deyja. Það deyja allir einhvern tíma. Bara
spurning hvenær."
Eiríkur, sem þekkti Harald ágæt-
lega, lýsir því hvernig öðru vísi hafi
verið að tala við Harald en áður.
„Annar tónn í röddinni. Þar sem
áður var á stundum ofsafenginn
galsi, grín og skens er nú hæglát
mýkt. Samt er grunnurinn sá sami.
Heilsteyptur.
„Vissulega sé ég heiminn í öðru
ljósi nú.“
Hvernig?
„Ég er umburðarlyndari.“
Hvers vegna?
„Vegna þess að allt er hégómi
segir predikarinn."
Haraldur Blöndal fæddist árið
1946 í Reykjavík en foreldrar hans
voru þau Kristjana Benediktsdóttir
og Lárus Þórarinn Haraldsson Blön-
dal alþingisbókavörður. Systkini
Haraldar eru þau Benedikt hæsta-
réttardómari, nú látinn, Halldór,
forseti Alþingis, Kristín framhalds-
skólakennari, nú látin og Ragnhildur
bókavörður. Haraldur lætur eftir sig
fjögurbörn.
Haraldur útskrifaðist sem stúd-
ent frá MA árið 1966, lögfræðipróf
frá HÍ tók hann 1972. Héraðsdóms-
lögmaður varð Haraldur 1977 og
Hæstaréttarlögmaður árið 1982.
Hann rak málflutningstofu með
Ágústi Fjeldsted og Skúla Th. Fjeld-
sted frá 1988 til 1991 og síðan einn.
Haraldur var alla U'ð sannfærður
sjálfstæðismaður, var til dæmis
varaformaður Vöku - félags hægri
sinnaðra stúdenta 1963 til 1964 og
gengdi fjölmörgum trúnaðarstörf-
um bæði á vegum flokksins og utan
hans. Áhugamál hans voru af ýms-
um toga og ef örfá dæmi eru nefnd:
Hann var leiklistargagnrýnandi DV
um skeið, einn fárra löggiltra upp-
boðshaldara landsins og snjall sem
slíkur, hann skrifaði fjölda pistla í
ýmsa fjölmiðla, Haraldur var skáká-
hugamaður og einn stofnenda skák-
félagsins Hróksins og þannig má í
raun lengi telja.
„Haraldur Blöndal var fjölgáfað-
ur húmoristi og sögumaður sem
setti lit á mannlífið hvar sem hann
kom. Haraldur var ástiíðufullur
skákáhugamaður og tók virkan þátt í
starfi Hróksins frá upphafi. Hann sat
í stjórn félagsins og var fulltrúi okkar
í stjórn Skáksambands íslands; og
var skákdómari á mörgum af helstu
mótum Hróksins á síðustu árum.
Við minnumst góðs vinar með sökn-
uði og hlýhug og sendum fjölskyldu
og ástvinum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur á sorgarstundu. Minning
Haraldar Blöndal mun lifa,“ segir
Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins.
Hrafn er ekki einn um þá skoðun að
Haraldur hafi verið húmoristi mikill.
Haraldur var einn orðheppnasti
og sniðugasti náungi sem ég kynnt-
ist,“ segir Sigurður Kári Kristjáns-
son alþingismaður. Haraldur var
virkur í flokksstarfi Sjálfstæðis-
manna, mætti á ýmsa fundi og upp-
ákomuc. á vegum flokksins. Hann
var í stjórn SUS á árum áður en það
er fyrir tíð Sigurðar Kára sem segist
helst þekkja hann sem mann sem
alltaf sá mjög spaugilegar hfiðar á
málunum og skemmtilega vinkla.
„Fræg er sagan af honum, og segir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
þá sögu reyndar í bók sinni „Fyndn-
ir íslendingar", þegar hann á tím-
um Sovétríkjanna er á leið niður í
Borgardóm. Hann var seinn fyrir,
fann ekkert stæði og lagði fýrir
framan Sovéska sendiráðið sem þar
var í grenndinni. Hann er að fara úr
bflnum þegar út rýkur foxillur
starfsmaður, vandar Haraldi ekki
kveðjurnar og spyr hann hvurn
andskotann hann sé að gera þarna.
Haraldur lét það ekki slá sig út af
laginu og spurði á móti, með þjósti:
‘Hvurn andskotann eruð þið að
gera í Afganistan?’ Þetta var alveg
lýsandi fyrir Harald sem var fljúg-
andi mælskur og sniðugur maður."
Og þeir eru fleiri kunningjar og vin-
ir Haraldar sem einkum minnast
hans sem orðheppins manns.
„Haraldur var með skemmtilegri
mönnum, íhaldsmaður af fáguðustu
sort, fjölfróður og fyndinn," segir
Gunnar Þorsteinsson þýðandi um
Harald en þeir voru prýðilegir kunn-
ingar. Gunnar minnist jafnframt
annars þáttar sem einkenndi Har-
ald. „Svo leyndist líka í honum
skáldleg taug og kvæðið hans um
Leomdas í Laugarskarði, sem hann
leyfði mér einhvern tíma að heyra á
góðri stund, er eftirminnilega gott.
Þar brá hann upp svipmynd úr sög-
unni og sagði margt í fáum en meitl-
uðum orðum."
Einn fjölmargra góðra vina Har-
aldar er Atli Gíslason lögmaður og
skipti þá engu þótt ekki væru þeir
samherjar í pólitíkinni.
„Haraldur var afar frjór maður á
alla kanta. Hann hafði mikla hæfi-
leika sem lögmaður. En ef til vill var
hann fyrst og fremst þjóðfélagsrýn-
andi og þar skilur hann eftir sig
mjög merkilegt ævistarf þó margir
sjái það ekki í hendi sér. Hann var
hálfgerður Sókrates. Fór á milfi
manna, var vinmargur, og maður
var honum manns gaman. Sérdeilis
hugmyndaríkur og kom mjög
mörgum góðum hugmyndum á
framfæri. Hann var mikill og traust-
ur vinur vina sinna og það gekk
þvert á öll flokksbönd. Síðan hafði
hann afar stórt og gott hjarta. Hann
fann til með þeim sem honum
fannst farið illa með og studdi þá af
ráð og dáð.“
Atli nefnir sem dæmi eitt margra
afreka Haraldar, sem fáir vita um,
(en Haraldur var ekki þeirrar teg-
undar að hreykja sér af afrekum sín-
um,) að hann, ásamt Guðmundi
Jaka, bjargaði Iðnó á sínum tíma úr
gíslingu. Það varð til þess að húsið
var gert upp og er í dag ein mesta
prýði Reykjavíkur. „Haraldur var
sáðmaður frjórra hugmynda. Hans
er sárt saknað," segir vinur hans Atli
Gíslason. jakob@dv.is
Stjörnuspá
Björgvin Halldórs-
son stórsöngvari
er 53 ára í dag.
„Því meira sem
maðurinn lifir í
samræmi við eigin
gildi, því ánægðari
og betri er maður-
inn í eigin garð,
sama hvað gerist í
kringum hann,"
segir (stjörnuspá
hans.
Björgvin Halldórsson
VV Mnsbenm (20. jan.-18.febr.)
w -------------------------------------
Ef þú átt það til að búa til ótta
innra með þéraf einhverjum ástæðum
þá ýtir hann undir svokallaða stíflu sem
gerir þér ekki kleift að gera eins og vel og
þú ert fær um. Þú býrð yfir sannri meðvit-
und sem er hæfileikinn til að fá það sem
þig vanhagar um en á því er enginn vafi.
H
F\sMn\I (19. febr.-20.mars)
Ekki gleyma þér í leitinni að ör-
yggi (formi fjármuna næstu vikur. Þú ert
fær um að gera alla þá hluti sem þig hef-
ur alltaf langað að gera ef þú heldur fast í
sjálfið og jafnvægi tilverunnar sem felst í
því að gefa og þiggja.
on
Hrúturinn (21. mars-19. i
Þú birtist viðkvæm/ur hérna af
einhverjum ástæðum. Rödd þín er öflug
og sterk sem segir til um styrk þinn sem
kann að vera ómeðvitaður eiginleiki í fari
þínu.
b
NaUtið (20. april-20. maí)
Vanafesta einkennir þig og þér
er ráðlagt að æfa þig að koma á breyting-
um í tilveru þinni með því að brjóta van-
ann og reyna eitthvað nýtt og gefandi en
mundu að vera vakandi yfir boðum sem
berast þér frá hjartanu.
O Tvíburarnirpr. maí-21.júni)
| | ________________________1_________
Beindu orku þinni í farvegi sem
færa þér sanna gleði og hamingju.Takist
þér að stýra orku þinni öðlast þú stjórn á
Íffi þínu f stað þess að vera fórnarlamb
aðstæðna.
Krabb'm (22júni-22.júii)
Q*' Beindu athygli þinni vel að
hjartastöðvum þínum ef ójafnvægi ein-
kennir þig gagnvart fjölskyldu, ástvini
eða félaga. Ný tækifæri tengjast framtíð
krabbans.
LjÓnið (23.júll-22. ágúst)
Eitthvað virðist fortíð þín tengj-
ast þér sterkum böndum. Stjarna Ijónsins
virðist forðast aðstæður sem kunna að
reynast óþægilegar hérna síðari hluta
apríl mánaðar þvf þú birtist hér ákaflega
viðkvæm/ur og sárnar oftar en ekki af
minnsta tilefni.
15
Meyjan (21. ágúst-22. septj
Gleymdu ekki að á hverju and-
artaki er til eitt val af óendanlega mörg-
um sem skapar þér og þínum nánustu
hamingju og gleði.
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Settu þér háleit markmið og
haltu (barnið innra með þér þvf barns-
legt eðli þitt auðveldar þér leiðina að
draumum þfnum. Fólk fætt undir stjörnu
bogmanns er heillandi með einsdæmum.
TTl
Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0rj
Þú ert sannarlega fær um að
gefa náunganum góð ráð en hér koma
sérkenni þín fram af einhverjum ástæð-
um og jafnvel til að minna þig á hvað þú
ert sterk/ur. Þú ert þekkt/ur fyrir að segja
nákvæmlega það sem þú meinar nema
þegar þú ákveður að sýna kurteisi.
Bogmaðurinn (22.n0v.-21.desj
Þú ert minnt/ur á að leyfa ver-
aldlegum hlutum ekki að tefja þig hér.
Þú virðist vinna mikið og leika þér lítið
þessa dagana og ættir að huga betur að
áhugamálum þínum sem eiga það til að
gleymast.
z
Steingeitin (22.áes.-i9janj
Lffsorka steingeitar er mjög
cil hér en fólk fætt undir stjörnu þess-
á það til að dreifa eigin kröftum í að
ja hlutina í samhengi og grafast
ðugt fyrir um staðreyndir mála. Þú ert
um að gera kraftaverk með þinni
;mjulegu orku.
SPÁMAÐUR.IS
J