Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2004, Page 4
4 LAUGARDAGUR 1. MAl2004
Fréttir DV
Kári Guðmundsson var fundinn sekur um að hafa misnotað sex ára frænku sína.
Hann var hins vegar sýknaður vegna fimmtán ára fyrningarreglu. Móðir Kára seg-
ir hann yndislegan dreng og hvers manns hugljúfa. Kári vildi ekki tjá sig um mál-
ið. Herdís Hallmarsdóttir, réttargæslumaður stúlkunnar, íhugar að stefna ríkinu
vegna málsins.
.......■íSm
venna barnamðings
Hið litla samfélag á Bolungarvík er í uppnámi eftir að Hæstirétt-
ur staðfesti sýknudóm yfir Kára Guðmundssyni. Talið var sann-
að að Kári hefði ítrekað misnotað litlu frænku sína. Brotin teljast
öll alvarleg. Þau voru framin á heimili Kára þegar stúlkan var að-
eins sex ára. Meðal þess sem Kári gerði var að neyða hana til að
horfa á klámmyndir og sleikja kynfæri hans.
„Hann er alveg yndislegur drengur
-hvers manns hugljúfi," segir móðir
Kára, en hann er á fimmtugsaldri.
Hún segir málið hafa fengið afar mik-
ið á fjölskylduna en vildi ekki tjá sig
um brot sonar síns, sagði einfaldlega:
„Við erum öll í lausu lofti héma."
Hvílt í þögninni
Mikil reiði greip um sig eftir að
mál Kára kom fyrir Héraðsdóm Vest-
fjarða og hann var sýknaður vegna
fymingar. Rannsóknaraðilar vom
gagnrýndir fyrir seinagang. Jónas
Guðmundsson, sýslumaðurinn í Bol-
ungarvík, telur ekki að sá seinagangur
hafi spillt málinu. „Það er því ákveðið
afrek að fá manninn sakfelldan þó
honum hafi ekki verið gerð refsing,"
segir Jónas.
Réttargæslumaður stúlkunnar,
Herdís Hallmarsdóttir, benti ítrekað á
að rannsóknin tæki of langan tíma.
Hún hefur nú opnað fýrir þann
möguleika að fara í skaðabótamál við
ríkið vegna málsins.
Laufey Jónsdóttir er formaður
Bamavemdamefndar á norðanverð-
um Vestfjörðum. Hún segist vera afar
undrandi yfir þessu máh „Mér finnst
að þetta ætti ekki að vera svona," seg-
ir Laufey. „Það er ótækt að menn
sleppi vegna þess að mál em orðin of
gömul."
Laufey segir það einnig mikilvægt
að samfélagið taki á þessum hlutum
og hylmi ekki yfir. „Það má ekki láta
svona mál hvfla í þögninni," segir hún.
Nýtur þjóðfélagsþegn
Mál Kára hefur verið á vitorði bæj-
arbúa í mörg ár. Nágranni Kára segir
að flestir hafi einfaldlega beðið eftir
að þetta kæmi upp á yfirborðið. Þá
segir ung stúlka í bænum að krökkun-
um finnist hann ógeðslegur; þau
forðist hann og vilji helst ekki vera í
heita pottinum með honum.
„Það má ekki láta
svona mál hvíla í
þögninni
„Já, en - hann er bara nýtur þjóð-
félagsþegn," segir Kristján Amarson,
sem rekur fýrirtældð Djúpmar og er
vinnuveitandi Kára. „Eg hef ekkert
upp á þennan mann að klaga og hann
stendur sig vel f vinnu."
Kári vinnur ásamt Kristjáni við fisk-
vinnslu en á árum áður ók Kári flug-
rútu bæjarins; er enn titlaður í síma-
skránni sem hópferðabflstjóri. Árið
2000 sagði Flugfélag íslands upp
samningi við hann um akstur flugrút-
unnar. Menn segja það einkennandi
fýrir Kára að hann gafst ekki upp held-
ur hélt akstrinum áfram á eigin vegum.
Kennarar fylgjast með
Við hfiðina á húsi Kára er Grunn-
skóli Bolungarvflcur. Anna Guðrún
Edvardsdóttir, skólastjóri, segir Kára
ekki hafa valdið nemendum skólans
neinum vandræðum. „Ég held að ef
eitthvað eigi að gera þá verði hver
kennari að tala við sinn bekk," segir
Anna, „og svo verða foreldrar einfald-
lega að tala við krakkana sína."
Soffia Vagnsdóttir, bæjarfulltrúi á
Bolungarvík, segir að mikil sorg ein-
kenni þetta mál en það sé lítið sem
bæjarstjómin sem slflc geti gert. „Ekki
getum við breytt lögunum," segir
hún. Soffia segir einnig að maður sé
alinn upp við það að vera ábyrgur
gjörða sinna. „Þegar löggjafinn grefur
undan því er náttúrlega eitthvað að,"
bætir hún við.
Ekki á dagskrá
Af viðtölum við bæjarbúa má sjá
að þrátt fýrir dökka fortíð Kára bera
flestir honum góða söguna. Honum
er lýst sem hjálpfúsum manni, dug-
legum og ósérhfifhum. Skoðanir eldri
kynslóðarinnar em samt ekki á sömu
línu og krakkanna. Þau forðast sam-
neyti við Kára - vilja til dæmis ekki
vera í sundi á sama tíma og hann.
Ástæðuna segja krakkamir vera að
Kári sé svo „ófriður" eða „ljótur." En
oft er sagt að það sé enginn ljótur
nema hann hafi gert eitthvað ljótt.
Brot Kára figgur ljóst fyrir. Héraðs-
dómur taldi hann sekan. En vegna
lagaákvæða gengur hann laus. Þegar
DV hafði samband við Kára vildi
hann ekkert tjá sig um máfið. „Þetta
er ekki á dagskrá," sagði hann og
skellti á. simon@dv.is
Einræður Svarthöfða
Þingvellir
milljarða virði
„íslenska þjóðin á Þing-
velli. Þar er ekkert til sölu,"
segir Guðni Ágústsson
landbúnaðarráð-
herra, sem jafnffamt
situr í Þingvalla-
nefnd. Miklar deilur
hafa staðið milfi
þjóðkirkjunnar og
ríkisins varðandi
eignarhald á Þingvöllum.
Guðni segir Þingvelli vera
sameign allra íslendinga en
mikilvægt sé þó að þar sé
öflugt prestakall. Þingvellir
eru afar verðmætt svæði og
kannski ekki að undra að
ýmsir sækist eftir eignar-
haldi á því. Guðni segir
Þingvelli vera milljarða
virði - dýrasta svæði ver-
aldar. Kirkjan eigi hins veg-
ar ekki að láta detta sér í
hug að hún eigi staðinn -
hann sé eign þjóðarinnar.
Alþingi nið-
urlægt
Jóhanna Sigurðar-
dóttir sakaði viðskipta-
ráðherra um ósvífni og
niðurlægingu við Alþingi
í umræðum í gær. Orða-
skiptin komu eftir að til-
kynnt var um þá ákvörð-
un Valgerðar Sverris-
dóttur að gefa ekki upp
niðurstöður nefndar
sem hún skipaði til að
fara yfir samkeppnislög-
in. Nefndin skilaði af sér
fyrir um þrem mánuð-
um og hefur málið verið
til meðferðar hjá rflds-
stjóminni síðan. Sam-
fylkingin hefur farið
fram á að fá skýrsluna en
verið hafnað með tilvís-
un til upplýsingalaga.
Málað fyrir
stórmenni
Forseti fslands, biskup
fslands og nokkrir ráðherrar
ætía að leggja leið sína til
Akureyrar og Dalvflcur (dag.
Á Dalvík er haldið upp á 120
ára afmæli Sparisjóðs Dal-
vflcur. Vegna heimsóknar-
innar var settur á laggimar
áhugamannahópur um að
fegra bæinn. í forsvari fyrir
hópinn er Júlíus Júlíusson,
skipuleggjandi stóra fiski-
dagsins. Júlíus segir mark-
miðið vera að gera inn-
keyrsluna inn í bæinn feg-
urri - mála gömul hús, sópa
götumar og taka til í görð-
um. Hann segir bæjarbúa
hafa tekið vel í þetta. Mikil-
vægt sé að bærinn verði sem
fallegastur þegar stórmenn-
in komi í heimsókn.
Svarthöfði hefur alltaf haft hina
megnustu andúð á því að annað fólk
taki fram í fyrir honum. Hann er
þannig að hann færi nú varla að
opna munninn nema til að segja
eitthvað merkilegt, og því varðar al-
mannaheill að enginn annar sé til að
tala frá honum tíma eða tmfla hann
á nokkurn hátt. Ef Svarthöfði færi í
sjónvarp með sinn boðskap, sem
samkvæmt fyrri skilgreiningu yrði
merkilegur, væri fásinna að einhver
annar þvældist fyrir.
Aukin-
heldur er Svarthöfði þeim eiginleik-
um gæddur að hafa ómþýða rödd.
Það er satt og rétt. Þess vegna varðar
almannaheill að hún hljómi. Hann
heldur ekki vatni yfir þeim aðferð-
um ástkæru og umhyggjusömu leið-
toganna sem vilja ekki mæta í sjón-
varpsþætti ef aðrir eru að flækjast
fyrir með önnur sjónarmið. Halldór
Ásgrímsson vildi ekki mæta í
Kastíjósið ef össur Skarphéðinsson
væri þar. Ákvörðunin er skiljanleg og
varðar almannaheill. Hinn mildi
Halldór hefur róandi rödd en Össur
skræka. Líka Steingrímur J. Menn
virðast geldast í stjórnarandstöðu.
Hver þekkir ekki þá deyfð sem kem-
ur yfir menn ef þeir fá ekki action. Þá
er ljóst að Halldór vill festa í sessi
lýðræðislega umfjöllun og því er rétt
að hans rödd fái að hljóma óáreitt.
Svarthöfði hefur í smíðum bréf til
Svanhildar í Kastíjósinu þar sem
hann mun fara ff am á að mæta í þátt
hennar. Hann fer fram á að þáttur-
inn verði myndbundinn fyrirfram,
svo hann geti skoðað hverju verði
sjónvarpað. Þátturinn verði tekinn
upp seint að kveldi. Þá verði til reiðu
barmafull rauðvínskarafla og tvö
staup. Svart höfuð Svarthöfða mun
fara vel með ljósum lokkum Svan-
hildar. Tunglsskinssónatan eftir
Beethoven verði kölluð fram úr vín-
il. Svanhildur íklæðist netsokkabux-
um, þar ofar blökku pilsi og samlitri
peysu. Svarthöfði mætir aleinn.
Svarthöíði
Hvernig hefur þú það'
„Ég hefþaö alveg bærilegt þó að fjölmiölafrumvarp ríkisstjórnarinnar sé aö angra mig
I vinnunni. Ég er hins vegar aö koma afæfingu og hefstyrkt skrokkinn vel og tekiö á
þannig að mér llður vel núna,“segir Siguröur G. Guöjónsson, forstjóri Islenska úrvarps-
félagsins. Hann segist ekki trúa því aö óreyndu að frumvarpiö fari óbreytt I gegn um
þingiö.„Ég erekki i minnsta vafa um að eitthvað sé aö þessu fólki efþannig fer/'segir
Sigurður og spyrhvort menn átti sig ekki á að þeir séu meö þessu að ganga milli bols
og höfuös á fyrirtæki í fullum rekstri þar sem fjöldi manns séu í vinnu.