Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1877, Side 40
Februarn. Konúngur lagði samþykki á þessi lög frá alþíngi
1) Lög um stofnun læknasköla í Reykjavlk.
2) Lög um stofnun barnaskóla á Isafirði.
3Í Lög um lóöargjald af útmældum reitum á Isafirði.
4) Lög um að nema af alþmgistollinn.
5) Lög um brennivínsgjald.
6) Lög um aðflutníngsgjaid af tóbaki.
— 11. Tilskipan um, að fangelsis hegníngar verði inn leiddar
um allt land frá 1. August 1876.
— 16. Auglýsíng ráðgjafans um ínnheimtu tóbakstollsins.
GÁTUR.
1. Eptir handriti Bókmentafélagsins í Reykjavík.
B. V. 17 í 8vo.
Stríðsmaður einn er:
um tíma spá kann,
kónglega á koll ber
kórónu gulls hann,
fær spora á fót sér
forgóður spámann; —
segðu mér hver sá er!
Andvana ólst sá
af móðurkviði,
hnöttóttur að sjá
engum með liði,
höfuðlaus var hann þá
lífs eptir biði; —
segðu mér hver sá er!
2. Eina þarf eg hjálpar hönd
harðni rimman bráða,
ríkið heitir Höfðaströnd
hefi eg til forráða.
3. Ábökkumtveimursystursá,
sextán voru að togast á,
móðir Loka menta há
milii hafði gengið þá.
4. Hlutur upp með eikum vex,
öðlast föt af kvínnum sex,
aflangt í það efnið fer
allavega hnöttótt er.
Nú sem náttúran
næm kemur til hans
fagra mynd fær hann
með fulltfngi andans,
leiðir svo líf fram
lagsmaður dauðans; —
segðu mér hver sá er!
Loks kemur lífs bann:
leggur klæðin af góð,
vel smurður víst hann
verður heittur á glóð,
og fyrir eld þann
auma trað helslóð; —
segðu mér hver sá er!
5. Kóngur átti sér tvo uxa,
hét annar af öllu
en annar á öllu.
6. Gengur hann Gasi
görðunum hærra,
ekki bifast grasið
þó hann Gasi gángi.
7. Nokkrir greina nafnið sitt
nú með berum orðum,
en Hervör sókti heiti mitt
í baug á Sámsey forðum.
1) Hænu egg og hani, lifs og dauður. — [Gáturnar 2—5
teknar eptir handriti frá Þorsteiní á Upsum]. 2) hárgreiða eða
kambur. — 3) milnur á upphlut; móðir Loka: Nál. —
4) garnhnoða. — 5) annar hét Skuggi, en annar Litur. —
6) reykurinn. — 7) Tyrfíngur, mannsnafn.
(38)