Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1877, Page 58
Bezta baðlyf handa sauðfé.
Þó það sé óefað, að gott fóður, hentug hús og góð hirðíng
sé hið bezta ráð til að verja fé við öllum óþrifum, bæði lús og
maur og kláða, sem gjöra sauðfjárræktinni svo mikið tjón, þá
getur mart borið til þess eigi að síður, að fé manns fái meiri
eða minni snert af þessu. Hið einfaldasta og einhlítasta ráð
til að varna því og lækna það, er að baða féð, og ætti hver
bóndi að taka upp þann sið, að baða fé sitt allt að minnsta
kosti einusinni eða tvisvar á ári, og útvega sér góð og hentug
baðfæri í því skyni. Þar sem væri fátt fé, ætti menn að hafa
samtök að því, að hafa baðfæri á hentugum stöðum, og hjálpast
að við baðanirnar. Það er svo áríðanda, að halda fénu í þrifum,
að það ætti að vera hverjum fjáreiganda til almennrar mínktnar,
að verða uppvís að því, að eiga fé með óþrifum og kláði, og
láta það koma fyrir almenníngs sjónir. Á Skotlandi er lögð
88 króna sekt við, hver sem kemur með kláðakind til kaup-
stefnu, eða á sölutorg.
Þegar velja skal baðlyf, er allt komið undir þvf, að lyfið
hafi þá kosti til að bera, að það verki fljótt, að óvandfarið sé
með það, að það sé ekki skaðlegt fyrir fólk né fé, að þsð láti
eptir ullina hreina, mjúka og fitu- eða olíukennda, svo skinnið
verði ekki þirrið á eptír, einkum þar sern óblfdt er loptsiag og
veðrátta skakviðrasöm. Það á að geta drepið öll óþrifa-kdkindi
á skepnunni, ef henni er haldið niðri í leginum vel eina nínútu.
Menn hafa gjört margar tilraunir að finna baðlrf, sem
bezt fullnægði þessum kröfum, og einum manni í Lurdúnum
hefir tekizt að búa til baðlyf, sem að margra vitni hefir reynzt
öllum betur. Það er kallað „glycerinedip" (orðrétt „^lyserin-
dýfa") eða olfu-sætu1 lögur, og er til sölu hjá „Hardwicke,
Guerin & Co. 66 Mark Lane“ í Lundúnum. Maður nokkur
í Noregi, sem heitir Schumann, og býr í einni Öldu (Alden)
í Sunnfirði á Fjölum, þar sem hann hefir töluverðs fjárrækt
með útigángsfé, eptir fyrirmynd Skota, hefir í riti einu mælt
fram með þessu lyfi framar öllum öðrum, sem hann hafi reynt,
og segist hafa það eitt við sitt fé og kaupa það frá Lundúnum.
Eptir hans reynslu þá er lyf þetta óskaðvænt, bæði fyrir fólk
og fé, þar er ekkert eitur í, svo að það er hættulaustþó höfðinu
á kindinni sé dýft sem snöggvast í löginn. Þar er sameinað
fitu-efninu þesskonar lyf, sem eyðir öllum smákvikindum, svosem
maur, fellilús og færilús, og varnar vel við flugum og annari
óværu. Það eykur ullarvöxt og bætir uilina og gjörir hana
mjúka og gljáandi; það er handhægt, því það rennur fljótt f
sundur í volgu eða heitu vatni. Það er eigi heldur dýrt, því
Schumann sýnir með reiknfngi, að það er ódýrara en önnur
baðlyf, og hefir ekki kostað hann meira en 10 aura fyrir kindina
að samtöldu. Það er selt í kútum og heldur hver 5 pund eða
10 pund og þaðan frá upp að 100 pundum enskum (90 dönskum)
þegar mikið er keypt í einu, svosem 200 pund eða meira, og
‘) Glycerin er sætu-efnið í olíunni.
(56)