Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1877, Page 59
borgað út i hönd, þá fæst töluverður afsláttur; það mundi
og fást tolllaust flutt, sem lyfjameðal, ef því væri farið á flot,
og kæmi menn sér saman um að kaupa meira, og ef lyf
þetta yrði almennt, gæti það orðið töluvert ódýrara. Með
hverju íláti fylgir fyrirsögn á Ensku, hvernig haga skuli til,
þegar lyfið er haft til baðs.
Svo er ætlazt á hjá Englendíngum, að 10 ensk pund
(hérumbil 9 dönsk) gángi til að baða 50 eða 60 fjár, en þeirra
fé mun vera stærra en vort. Schumann telur, að 5—6 lóð af
rneðali þessu gángi á hverja fullorðna kind í alullu, en 3—4.
lóð þegar hún er úr ullu. Með hverju pundi af lyfinu má ætla
to potta af heitu vatni til baðsins, eða eitt pund enskt við
tv,ær „gal!ons“ af heitu vatni (en hver „gallon“ er 47/10 pottar);
þó má auka nokkuð lyfið, ef á þarf að halda, allt að hálfu
öðru eða tveim pundum. Ekki er gjört ráð fyrir svo miklum
óþrifum, að hrúðrar hafi safnazt, en sé svo, þá mun þurfa
undirþúníng áður en baðað er.
Þegar baða skal, er bezt að hafa undir svosem 200 fjár,
°g ætti menn að leggja saman ef færra væri, til að drýgja fyrir
sér bæði baðlöginn og vinnuna. Baðkerin eiga að vera nógu
djúp og rúmgóð, og lögurinn svo mikill, að hann taki yfir alla
kindina. Ef hann er ekki svo mikill, verður að velta kindinni
v'ð á báðar hliðar, og ausa leginum ótt yfir, og er það sein-
|egra og ódrýgra. Lögurinn á að vera svo heitur, að hann sé
jafnt nýmjólkur volgur (37—38 stig á Celsius-mæli); því er
nauðsyn að hafa vatn í hitu alla tíð, meðan á böðuninni stendur.
Bezt er og að hafa við hendina hitamæli og tímamæli (úr).
Kúturinn er hristur vel til, þar sem lyfið er í, og sé lögnrinn
þá staðnaður, svo hann vill ekki renna, þá skal setja hannt
nærri eldi, eða ofaní ker með heitu vatni, vegur rnaður slðan
af, eptir því sem hann vill, t. d. 10 eða 15 pund, o. s. frv.,
lætur það í heitt vatn í stampi eða keri og hrærir í, þartil
það hefir samlagast, þá er því hellt í baðkerið, og bætt í heitu
vatni eptir þörfum, svo að hitinn verði sem áður er sagt. Hver
kind verður að vera fulla eina mfnútu í baðinu eða tvær, tíl
þess öll kvikindi drepist, sem lúsakyns eru, eða maurkyns.
Vinda skal úr reifinu eptir baðið, ofan f löginn, eða leggja
ki'ndina á grind á meðan, með stampi undir, sem lögurinn
fenni í. Þegar lögurinn kólnar bætir maður í, svo ávallt sé
jafn hitinn. Löginn frá baðkerinu má einnig hita upp, og
skal hræra í iðuglega, svo að lyfið ekki geti skilizt frá, og
annaðhvori safnazt ofaná eða á botninn, eða orðið fast 1 ullinni
og skemmt hana. Ef að maur er á kindinni, er eitt bað ekki
einhlítt, þvf egg maursins drepast ekki í fyrsta sinn, af þvf þau
eru innan undir skinninu og kvikna á fám dögum: því er bezt
að baða á ný að 4 eða 5 dögum liðnum, og jafnvel í þriðja
sinn eptir 8 eða 10 daga.
Af baðlyfi þessu hafa þeir Fischer og Knudtzon keypt
sýnishorn, og mun mega gjöra ráð fyrir það verði reynt í
sumar, eptir þeim reglum sem fyrir eru settar. Þeim er
(57)