Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Page 2
2 ÞRIÐJUDACUR 29. JÚNl2004
Fyrst og fremst DV
Útgáfufélag:
Frétt ehf.
Útgefandi:
Gunnar Smári Egilsson
Rltstjóran
lllugi Jökulsson
MikaelTorfason
Fréttastjóran
ReynirTraustason
Kristján Guy Burgess
DV: Skaftahlíð 24, Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn:
550 5020 - Fréttaskot: 550 5090
Ritstjóm: ritstjorn@dv.is - Auglýsing-
an auglysingar@dv.is. - Dreifing:
dreifing@dv.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagna-
bönkum án endurgjalds.
Hvað veist þú um
norsku
konungs-
1 Hvað heitír konungur
Noregs?
2 Hvað heitir dóttir Hákons
krónprins og Mette-Marit?
3 Hvaða menntun hefur
Marta Lovísa prinsessa?
4 Hvað gaf Ólafur V íslend-
ingum árið 1947?
5 Hvað heitir sonur Mette-
Marit frá fyrra sambandi?
Svör neðst á síðunni
Athyglin frá írak
Routledge, dálkahöfund-
ur Mirror í Bredandi, tel-
ur Blair vera kominn í
kosningaham. „Eyðslu-
samir ráðherrar eru byrj-
aðir að kynna áætlanir
um heilbrigðiskerfið,
menntakerfið og önnur
velferðarmái sem gilda
eiga til loka áratugarins...
Verkamannaflokkurinn
reynir í ofboði að bema
athygli kjdsenda frá frak
og jarðsprengjubelti evr-
ópsku stjórnarskrárinn-
ar. Blair veit að hann er
öruggari á heimavíg-
stöðviun.”
Fjölskylda
Þótt ótrúlegt megi virðast
kemur orðið„fjölskylda" í
nútímamerkingu - foreldr-
ar, börn og ndnasta skyldu-
lið - ekki fyrir I íslensku fyrr
en langt var liðið á 18. öld.
Þetta útskýrir Gunnlaugur
Ingólfsson á vef Arnastofn-
unar:„[Fjölskylda] er vel
þekkt í fornu máli, einnig í
myndunum„fjölskyld" og
„fjölskyldi", en hefur greini-
lega aðra merkingu en al-
gengust er nú, þ.e.„skyldu-
verk, mikilvægt starf, erindi,
annir (sem afslíkum störf-
um [leiða])". [Þ]essi merking
er einnig þekkt á síðari öld-
um sem sjá má afeftirfar-
andi dæmum:
,,[F]jölskylda embættiser-
inda I vlsitasíunni féll inn sl-
felldlega" (heimild
frámiðri 17.öld);
,,[S]vo var eg hlað-
inn affjölskyldu erinda-
gerðanna á Alþingi að eg
fékk ekki stundir til að
skrifa yður" (heim. frá fyrri
hluta 18.aldar)...
[Nútlmamerking kemur]
ekki fram fyrr ená 18. öld...
hefur æxlast afþætti hinn-
ar eldri þar sem hin skyldu-
bundnu störfog annir (um-
og áhyggja) þeim bundnar
taka til þeirra sem hinn
önnum kafni á fyrir að sjá
og störfin, fjölskyldan, fara
að merkja hópinn."
1. Haraldur V 2. Ingiríður Alexandra 3. Hún
er sjúkraþjálfari 4. Styttu af Snorra Sturlu-
syni. 5. Marius
D
E
Málið
Reiknað fríhendis
dtt Ólafur Ragnar Grímsson forseti
hafi valtað yfir keppinauta sína um
forsetaembættið með öllum þorra
gildra atkvæða, var sigur hans ekki alger.
Minni þáttaka en áður og þó enn frekar hin
mörgu auðu atkvæði valda því, að hér eftir
er næstiun hægt að tala um hann sem um-
deildan forseta.
Andstæðingar hans mikla fyrir sér, að
hann hafi ekld fengið stuðning hehnings
kjdsenda. Þeir telja saman þá, sem heima
sátu, sem auðu skiluðu eða gerðu ógilt og
sem kusu annan hinna tveggja. Með sama
reikningi má benda á, að flokkar stjómar-
innar fengu síðast ekki fylgi helmings kjds-
enda.
Þátttakan og auðu atkvæðin varpa ekki
miklum skugga á traust þjóðarinuar á for-
setanum. Þau em hins vegar ábending um,
að andstæðingar íjölmiðlalaganna eiga ekki
auðvelt tafl í þjóðaratkvæðagreiðslunni í
haust. Þau benda til, að fjölmennur minni-
hluti styðji fjölmiðlastefnu stjórnvalda.
Ríkisstjómin á mikið í auðu atkvæðun-
um, enda gaf málgagn forsætisráðherra út
óbeina dagskipun á forsíðu um gUdi auðra
atkvæða. Ætla má, að það séu einkum ein-
dregnir stuðningsmenn fjölmiðlalaganna, er
valdi því, að auðir seðlar vom margfalt fleiri
en verið hefiir hér á landi.
Einnig má ætla, að hán eigi mikið í at-
kvæðum Baldurs Ágústssonar, sem byggði
kosningabaráttu sína á andstöðu við mál-
skotsréttinn og stuðningi við fjölmiðlafrum-
varpið. Ætla má, að allur þorri fylgis hans
muni í haust falla á sama veg og aíllur þorri
þeirra, sem skiluðu auðu í kosningunum.
í þriðja lagi má reikna með, að fjölmiðla-
lögin hafi nokkuð gott fylgi meðal þeirra,
sem venjulega hafa komið á kjörstað, en
sátu heima að þessu sinni. Að öllu saman-
lögðu má segja, að þriðjungur kjósenda hafi
í forsetakosningunum gefið í skyn, að hann
muni styðja fjölmiðlalögin í haust.
Þótt forsetinn hafi fengið mun meira fylgi
en hér hefur frfliendis verið reiknað á fjöl-
miðlalögin, er óvíst, að allir kjósendur hans
séu andvígir þeim. Biíast má við, að nokkur
meirihluti þjóðarinnar sé gegn þeim núna,
en það getur breytzt í haust, ef stjómar-
fiokkarnir ná vopnum sínum.
Ef flokkar rfldsstjómarinnar hvetja fólk
til að sitja heima í þjóðaratkvæðagreiðsl-
unni tíl að hindra þjóðarviljann í að komast
yfir smíðaða þröskulda, jafngfldir það upp-
gjöf hennar. Því má búast við snarpri bar-
áttu um fjölmiðlalögin. Þar mun hvomgur
aðilinn láta hinn eiga neitt inni hjá sér.
Forsetakosningamar segja okkur ekki,
hvernig atkvæði þjóðarinnar muni falla í
haust. En þær benda eigi að síður til, að fylg-
ismunur sjónarmiðanna sé ekki eindreginn.
Jónas Krlstjánsson
Hæ, ég er
George Bush,
hvað heitir þú?
Hirnarni
ÞAÐ VAR GAMAN AÐ SJÁ hversu vel
fór á með leiðtoga okkar íslendinga
og leiðtoga hins frjálsa heims þar
sem þeir hittust í Istanbúl í fyrradag.
Reyndar var áberandi að það fór
miklu betur á með þeim í Morgun-
blaðinu heldur en Fréttablaðinu. í
Mogganum útskýrir Davíð okkar
Oddsson eitthvað fyrir Bush og Kjell
Magne Bondevik forsætisráðherra
Noregs. Davíð er alvarlegur á svip
eins og hann sé að setja ofan í við
Bush. Láta hann heyra það. Jacques
Chirac Frakklandsforseti stendur
gapandi og horfir út í loftið en okkur
sýnist hann vera að leggja við hlust-
ir til að heyra hvað Davíð er að segja.
„Er þarna kominn maður sem getur
útskýrt málin fyrir Bush. Komið fyrir
hann vitinu?" er Chirac sjálfsagt að
hugsa.
HANDAHREYFINGIN HJÁ DAVÍÐ á
Moggamyndinni er eins og hann sé
að sýna að eitthvað sé lítið eða stutt.
Ætli hann sé að tala um stuðning ís-
lensku þjóðarinnar við forseta ís-
lands: „Jú nó Búss, ðer is a díp gap
betvín ðe presídent and the pípúl,“
gæti hann verið að segja. „And
Lovethor Magnusson hí vos krús-
ífæd in ðe eleksjóns."
HANN GÆTI LfKA VERIÐ AÐ SKAMMAST
IBUSH fyrir að forðast að tala við sig.
Davíð fór til New York og beið eftir
að fá að hitta Bush en svo hringdi
síminn og þeir töluðu saman í átta
mínútur. Það var ekki langt, en mik-
ilvægt símtal að mati Davíðs. Bush
sagði að Bandaríkjamenn vildu ekki
vera vondir við Islendinga. Merki-
legt hvað lengd símtala er farin að
skipta miklu máli þegar Davíð er
annars vegar. Hann talaði við Bush í
átta mínútur en símtalið við Ólaf
Ragnar þegar hann tilkynnti að
hann myndi ekki skrifa undir fjöl-
miðlalögin, var ekki nema tuttugu
sekúndur. Hvað er langt og hvað er
stutt, er afstætt eins og allir vita.
A MYNDINNI I FRÉTTABLAÐINU hafa
hlutirnir aldeilis snúist við. I staðinn
fyrir að Davíð sé að segja George
Bush til, er Bush nú með opinn
munninn. Hvasseygður á meðan
Davíð er frekar lúpulegur. Getur ver-
ið að Davíð hafi eftir allt ekki verið
að tala um forsetakosningarnar, Ást-
þór Magnússon, loðnufundinn fyrir
norðan eða fjölmiðlalögin? Getur
verið að hann hafi verið að skamma
Bush? „Mister Búss. Æ hev bín
menní tæms tú jor köntrí and jú
tveir hit
Sjitt, ^
nann er kannski búinn
að týna símanúmerinu
líka. Þetta er nú samt al
. vöruforseti, er það
ekki?
Fyrst og fremst
dónt vont tú mít mí. Jú vont tú teik
ár pleins? Jú dónt dú ðat. Æ ban
ðat.“ Bush er á næstu mynd á svip-
inn eins og hann viljí ekki taka við
slíkum skömmum. Hann svarar
þeim fullum hálsi og lætur menn
ekki komast upp með neitt múður.
Davíð er á svipinn eins og hann sjái
að sér.
VIÐ ERUM LITLU NÆR um það
hvernig staðan er í varnarmálun-
um en vonandi tekst Davíð og
Halldóri Ásgrímssyni að koma
með einhverjar skýrar línur frá
Istanbúl. Þeir eru þó búnir að hitt-
ast núna. Við vitum að málið er á
borðinu hjá Bush en á meðan það
er þar, hefur tugum manna verið
sagt upp störfum í þjónustu við
varnarliðið. Davíð fór til Wash-
ington um daginn, í jarðarför Ron-
alds Reagan, hann tók við af-
reksverðlaunum og flutti ræðu fyr-
ir repúblíkana og íslendinga sem
búa í borginni. Ekkert hefur frést
um hvers vegna Davíð hitti ekki
Bush í þessari ferð.
VIÐ VITUM ALLAVEGA að Davíð er
orðinn óþreyjufullur að vita hvað
verður um herinn. Hann vfll halda
í þoturnar fjórar sem Bandaríkja-
menn vilja taka burt. Hann bjóst
við að málin myndu leysast áður
en hann hættir sem forsætisráð-
herra. Það fer að styttast í því.
Kannski kemur eitthvað út úr þess-
ari Istanbúlferð. En kannski verður
Davíð okkar að setjast sjálfur í
utanríkisráðuneytið til að halda
stjórninni á varnarmálunum, þeg-
ar Halldór Vinur hans er kominn í
stjórnarráðið.
Bush kennir Davíð brandara
Sú var tíðin að Davíð Oddsson þótti fullfær
um að finna upp slna eigin brandara sjáif-
ur. Athygli okkar hefur hins vegar verið
vakin á þvl að jafnvel á þvl sviði er hann
farinn að ganga I smiðju tilsíns góða vinar
George W. Bush. Ógleymanlegt er öiium að
þegar umræöur um fjölmiölalög Davlös
stóðu sem hæst á Alþingi
og farið varað ræða
um hvort Ólafur
Ragnar Gríms-
son kynni að
vísa lögunum til
þjóðarinnar, þá
fórDavlðham-
förum I skemmti-
legheitum I eld-
húsi Alþingis og
þóttist vera að
leita að forsetanum
jafnt inni I Isskáp sem ofan i kókdósum.
„Er ekki Ólafur hér? Hér hlýtur þá forsetinn
að vera!" grínaöist Davlð en reyndar fannst
ekki öllum fyndið sem á þennan per-
formans þurftu að horfa.
Nú hefur velunnari Davíðs sem sagt bent
okkur á að þessi „brandari" er nákvæm
stæling á brandara George W. Bush þann
25. mars I ár þegar hann henti gaman að
leit Bandarlkjamanna að gjöreyðingar-
vopnum I írak. Þá sást hann á myndum
klkja undirhúsgögn á skrifstofu sinni og
gáútíhorn og sagði glottandi:„Þessi gjör-
eyðingarvopn hljóta að vera hérna ein-
hvers staðar."
Sumum fannst húmorinn I kaldrifjaðasta
lagi þar sem strlðið I (rak væri ekkert
skemmtiefni.
„585 amerlskir hermenn hafa fallið Iírak
síðastliðiö ár og 3.354 særst, “ sagði John
Kerry.„Og það er ekkert lát á. George Bush
tjáöi okkur að gjöreyðingarvopnin væru
ástæðan fyrir stríðinu. En við höfum engin
slik vopn fundið, og nú finnst honum það
fyndið?!"
En uppi á ístandi hefureinn áhrifagjarn
forsætisráðherra tekið eftir djókinu og haft
svo gaman afað hann hefur ákveðið að
staðfæra brandarann við
fyrsta tækifæri. (
sem Ótafur Ragnar e
í huga Daviðs igildi
gjöreyðingar-
vopna, þá lá bein-
ast við að heimfæra
brandarann upp á
hann.
Hvaða brandara skyldi
Bush nú hafa kennt Dav
íð ÍTyrklandi?