Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Blaðsíða 25
DV Fókus ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ2004 25 Tónlistarkonan Peaches er frá Kanada og heitir 1 raun og veru Merill Nisker. Henni hefur virkilega tekist x að skapa sitt eigið sánd og hefur með frumlegri og kraftmikilli tónlist náð að skapa sér orðstír sem ókrýnd drottning undirheimatónlistarinnar. Peaches starfaði áður sem kennari þar til hún uppgvötvaði „MC5- boxið“ sem er rafrænt tæki sem gerði henni kleift að búa til sína eigin tónlist með einfaldri forritun. Söngur Peaches fer svo allan hringinn frá pönki, rokki og hipphoppi, án þess að það sé nokkur leið að skilgreina tónlist hennar sem neitt af þessu. Peaches heldur tónleika í Kllng & Bang í kvöld. „Fatherfucker" (föðurriðill), er það ekki kynferðisleg tilvitnun? „Þetta er náttúrulega nákvæmlega sama og orðið „motherfucker" sem fólk notar daglega um allan heim. Ég hef verið að leika mér í minni tónlist og textagerð við að snúa þessum hlutum við. Ég nota svona hálfgerðar klisjur sem fólk hefur heyrt í mörg ár í textum tónlistarmanna án þess að kippa sér upp við þær. Ég hef bara snúið þeim við, þannig að setningar eins og „shake your tits" verða „shake your dicks". Þetta hefur alltaf fjallað um stelpur og ég sé engan mun á þessu, það er að sjálfsögðu jafn sjálf- sagt að strákar hristi á sér tiÚann eins og stelpur á sér brjóstin. Tónlistar- menn hafa alltaf farið í kringum þá staðreynd að G-blettur karlmanna er í rassgatinu á þeim. Mér finnst þessi rassaríðingahræðsla fáránleg og syng opinskátt um þessa hluti í mínum textum án þess að fara í kringum hlutina með einhverjum „back it up“-frösum, þar sem verið er að segja nákvæmlega sömu hlutina í ein- hverjum fáránlegum umbúðum," segir Peaches sem ætlar að spila í gallerí Kling & Bang upp í Brautar- holti í kvöld. „Ég var að koma frá Kanada núna eftir stutt stopp þar, ég er eiginlega búin að vera að spila stöðugt síðustu fimm ár, ég fer héðan til Tyrklands. Það var Egill Sæbjörnsson, mynd- listarmaður sem fékk mig til að koma hingað og spila með sér. Við höfum verið vinir í íjögur ár og hann vissi að Kling & Bang hefði áhuga á að fá mig til þess að vera með tón- leika hér og ég þáði það að sjálf- sögðu," segir Peaches sem kom hingað á mánudaginn og ætlar að vera á íslandi fram á föstudag. Peaches Heldur tónleika í Kling & Bang i kvöld. „Ég hefverið að leika mérí minni tónlist og textagerð við að snúa þessum hlutum við. Ég nota svona hálfgerðar klisjur sem fólk hefur heyrt í mörg ár í textum tónlistarmanna án þess að kippa sér upp við þær. Ég hefbara snúið þeim við, þannig að setningar eins og„shake your tits" verða„shake your dicks"." „Áður en ég byrjaði að fást við tónlist var ég með námskeið fyrir börn þar sem ég aðstoðaði þau við að virkja sköpunargáfuna," segir Peaches sem telur sig ekki hafa feng- ið næga Ustræna tilsögn sem barn. „Allir hafa að sjálfsögðu gáfúr til þess að skapa en það er ekki á allra færi að nýta þær og sumir týna hæfi- leikanum til þess að nota hana, hún er þó ailtaf til staðar. Þess vegna er svo mikilvægt að rækta sköpunar- gáfuna á meðal barna til þess að ein- staklingurinn geti nýtt sér hana alla ævi. Sjálft prógrammið var búið að vera mjög vinsælt í tíu ár þegar ég fór í auknum mæli að nota tónlist við kennsluna," segir Peaches f sam- tali við DV. Gott að fá að tengjast Björk „Ég byrjaði að nota kassagítar og svo þróðist þetta áfram þar til ég fór að nota rafmögnuð hljóðfæri líka, ég fann þetta „Roland MC5-box"-hljóð- færi þar sem ég gat skapað fullmót- aða tónlist án þess að hafa verulega þekkingu á tónlist sem slíkri. Upp- haflega langaði mig alltaf að verða leikstjóri og leikstýra leikhúsi svo fann ég það fljólega þegar ég fór að nota tónlist við kennsluna að ég gæti komið minni orku betur á framfæri í gegnum tónlistina sem ég var alltaf að ná betri tökum á. Ég ákvað svo að koma skólanum í hendur vinkonu minnar sem rekur hann enn í dag á sama grunni og ég stofnaði hann. Þannig gat ég einbeitt mér alfarið að tónlistinni," segir Peaches. Eru tónleikarnir þínir undir ein- hverjum áhrifum frá leiklistaráhug- anum? „Tónleikarnir mínir eru orku- miklir rokktónleikar fyrst og fremst. Tónlistin er svo sterkur miðill, það getur þannig allt gerst á tónleikum þar sem allt er keyrt í botn," segir Peaches sem meðal annars hitaði upp á tónleikaferð Bjarkar um Evr- ópu síðasta sumar. Hvernig var það að túra með Björk? „Það var mikil reynsla, hún er náttúrlega mjög virtur listamaður þannig að það var mjög gott fýrir mig sem tónlistarmann að tengjast henni. Fólk tekur henni mjög alvar- lega sem listamanni, þannig að það hjálpaði kannski svolítið til við að gera mína tónlist trúverðuga fyrir þeim sem tóku henni ekki alvarlega. Eftir túrinn með henni hitaði ég upp fyrir MarOyn Manson. Við spiluðum á 20 tónleikum í Evrópu fyrir fullt af brjáluðum goth-krökkum. Það var alveg frábært að ferðast með Man- son og spila fýrir hans gengi." Jafnsjálfsagt að strákar hristi á sér tillann og stelpur hristi á sér brjóstin Tónleikar þínir eru sagðir mjög kynferðislegir... „Hvað meinar þú? Þetta er bara hrein orka sem er í gangi og öll orka hefur eitthvað kynferðislegt, góðir rokktónleikar eru alltaf sexí," segir Peaches sem er meðal annars fræg fyrir að vera óhrædd við að ögra tón- leikagestum kynferðislega á tónleik- um sinni og í tónlistinni. „Þetta er náttúrlega undir hverjum og einum komið, ef einhverjum er ögrað kyn- ferðislega á tónleikum þá er það bara fínt en það er að sjálfsögðu á ábyrgð viðkomandi, fólk getur feng- ið útrás fyrir ýmsa orku á góðum rokktónleikum." Ein platan þín heitir K ' f' -« 4r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.