Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Móðirin lögð
inn á Sogn
Hildur Árdís Sigurðar-
dóttir sem lögreglan grunar
um að hafa stungið dóttur
sína til bana á Hagamel og
sært son sinn og sjálfa sig
lífshættulega hefur enn ekki
játað verknaðinn. Hún
hefur verið vistuð á réttar-
geðdeildinni að Sogni.
Kenning lögreglu um at-
burðarásina hefur ekki
breyst frá upphaflegum
hugmyndum. Konan var út-
skrifuð af Landspítalanum
fyrir skömmu þar sem hún
var á hjarta- og lungnadeild
vegna sára sem hún hlaut
þegar hún stakk sig í brjóst-
ið. Sonur hennar er kominn
til ættingja.
E-töflusali
eftirlýstur
Ungur Reykvfkingur,
Guðni Már Baldursson,
sem ákærður er fyrir að
hafa í fórum sínum 480 e-
töflur mætti ekki fyrir
Héraðsdóm Reykjavíkur í
dag þar sem þingfesta átti
mál ákæruvaldsins gegn
honum. Þar sem Guðni
mætti ekki hefur verið
gefin út handtökuskipun
á hendur honum og þing-
festingu ffestað fram í
september. Guðni má bú-
ast við að fá allt að tveggja
ára dóm fyrir brot sitt.
Hver er eiginleg
niðurstaða
nefndarinnar
um þjóðar-
atkvœðagreiðslu
Björgvin G. Sigurðsson
alþingismaður
„Niðurstaða starfshópsins
virðist nokkuð skýr. Þar sem
augljós niöurstaða hennar er
sú að hvers konar þátttöku-
takmarkanir hljóti að brjóta i
bága við stjórnarskrána. Þvi
hljóta viöbrögö stjórnvalda að
vera sú að einfaldur meirihluti
gildi í atkvæðagreiðslunni."
Hann segir / Hún segir
„Mln fyrstu viðbrögð voru að
þetta væru hófsamar og skyn-
samar tillögurhjá þessari
nefnd. Hófsamari en 75
prósent hugmyndin sem
stjórnarflokkarnir köstuðu
fram. Það var svolitiö hátt
hlutfall. Ég vona að það veröi
litið tilþessara tillaga við
framkvæmd kosninganna."
Auður H. Ingólfsdóttir
stjórnmálafræðingur
Lögfræðingur Kestutis Baginskas, Litháans sem framdi hrottalegt morð í heima-
landi sínu, segir hann íhuga skaðabótamál á hendur ríkinu. Útlendingaeftirlitið
Sigursteinn Másson
formaður Geðhjálp-
ar „Efmaðurinn er
með alvarlegan geð-
sjúkdóm skiptir mestu
að hann fái aðhlynn-
ingu og stuðning."
vísaði Kestutis úr landi en Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að það mætti
ekki. Fréttir af Litháanum hafa vakið mikla athygli. Sigursteinn Másson, for-
maður Geðhjálpar, segir kerfið hafa brugðist.
Geíhjálp stendun me
litháíska geðklofenu
„Það er ljóst að kerfið og yfirvöldin eru fullkomlega að bregðast
í þessu máli,“ segir Sigursteinn Másson formaður Geðhjálpar.
Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu þann 18. júní að ekki
mætti vísa Kestutis Baginskas úr landi. Áður höfðu íslensk yfir-
völd gert hvað þau gátu til að reka hann úr landinu. Kestutis
hafði drepið konu og svívirt lík hennar árið 1995 í Litháen. Hann
var dæmdur ósakhæfur vegna ofsóknarkennds geðklofa.
„Þetta mál kom aldrei inn á borð
til okkar," segir Sigursteinn en
Kestutis bjó hér í ein tvö ár áður en
yfirvöld skiptu sér af honum. „Við
látum okkur varða alla þá sem eru í
þessari stöðu. Ef maðurinn er með
alvarlegan geðsjúkdóm skiptir
mestu að hann fái aðhlynningu og
stuðning. Ekki að fólki sé vísað frá
landi eins og gerðist í þessu
máli."
Rök útlendingaeftirlitsins fyrir
að vísa Baginskas úr landi voru þau
að hann væri ógn við almannaheill.
Þá taldi útlendingaeftirlitið ekki
stætt á að framkvæma geðrannsókn
hér á landi. Hún tæki eitt til tvö ár og
þá væri ekki vogandi að hann væri
frjáls ferða sinna. Auk þess væri heil-
brigðiskerfið ekki í stakk búið til að
rannsaka hann vegna kostnaðar.
„Þessi rök halda hvorki vatni né
vindum," segir Sigursteinn Másson.
„í fyrsta lagi tekur það ekki upp í tvö .
ár að framkvæma geðrannsóknir.
Sem dæmi eru rannsóknir á fólki
sem er handtekið. Niðurstöður úr
þeim liggja oft á tíðum mjög fljótt
fyrir. Svo eru rök um of mikinn
kostnað fráleit. Það tekur engu tali
að setja slíkt fram. Peningar eiga
ekki að vera vandamál."
Sigursteinn vill einnig benda á að
miklu skiptir hvernig fjallað er um
geðsjúka í fjölmiðlum.
„Það skiptir miklu að ekki sé
talað um geðveika sem hættu-
legt fólk sem almenningur þurfi
að vara sig á. Þá erum við
komnir mörg ár aftur í tím-
ann og allur sá árangur
við að minnka fordóma
væri horfinn. Við megum ekki slá
upp fréttum sem eiga að vekja upp
ótta og ala á fordómum."
Hilmar Magnússon, lögfræðing-
ur Kestutis, segir skjólstæðing sinn
afar ánægðan með dóm Hæstarétt-
ar. Málið hafi verið honum afar
erfitt.
„í tvö ár hefur Kestutis ekki getað
lifað eðlilegu lífi. Nú þegar dómur-
inn er fallinn er hann ánægður,"
segir Hilmar. Hann segist um þessar
mundir fara yfir það ásamt Kestutis
hvort farið verði í mál við íslenska
ríkið vegna þeirrar vanlíðunar og
erfiðleika sem hlutust af brottrekstri
hans frá íslandi. Spurður um hvort
Kestutis geti hugsað sér að koma aft-
ur til íslands segir Hilmar: „Það er
erfitt að segja. Hann hefur ekki
hugsað svo langt. Samkvæmt úr-
skurði útlendingaeftirlitsins var
hann í ævilöngu banni á Schengen-
svæðinu. Nú hefur þeim úrskurði
verið hnekkt og hann er ffjáls ferða
sinna."
Kestutis Baginskas býr í Litháen í
verksmiðjubænum Telsai. DV hafði
samband við móður hans en vegna
tungumálaerfiðleika var erfitt að fá
hana til að tjá sig um málið. Af
viðbrögðum hennar að
dæma var hún ánægð.
Sonur hennar er
þó enn með skráð
íögheimili á Berg-
þórugötu 29 og far-
símanúmar hjá Og
Vodafone. íbúar á
Bergþórugötunni
sem höfðu sam-
band við blaðið
segjast þó ekki
hafa séð hann í
tvö ár. Slökkt er á
farsímanum. Þeir
sem til þekkja
telja ólfklegt að
Kestutis snúi aft-
ur í bráð.
simon@dv.is
j Georg Lárusson
I Blaðagrein Hitháíska
I bloðinu Akistata varð tii
I Þess °ð útlendingaeftir-
I litið, undirstjórn Georgs
I i-árussonar, komst að
I dökkri fortíð hans og vís-
I aði honum úr landi
J Kestutis barði konu með
I 9Óóti til dauða. Svlvirti
J líkið. Pakkaði því fpiast-
I poka og henti ofan i
tskurð.
Norðmenn spyrja sig að því hverju Björk muni klæðast
Björk á ólympíuleikunum í Aþenu
Vefur norska ríkissjónvarpsins,
nrk.no, segir frá því að Björk Guð-
mundsdóttir muni troða upp á opn-
unarhátíð ólympíuleikanna í Aþenu
sem hefjast 13. ágúst. Atriði Bjarkar
átti í upphafi að vera óvænt, en
Björk og hennar lið kærðu sig ekki
um að vera einhverjir aukaleikarar
og verða eitt stærsta númerið á há-
tíðinni. Vefmiðillinn segir Björk vera
þekkta fyrir frumlega framkomu og
öllu sem því fylgir. Hver man t.d.
ekki eftir svanakjólnum sem hún
klæddist í Cannes? Og það er aUtaf
mikil spenna yfir því hvað íslending-
arnir munu segja um atriði Bjarkar
segir vefmiðillinn. í þetta skipti gæti
Björk reynt að höfða til heima-
manna í klæðaburðinum því gríski
hönnuðurinn Sophia Kokosalaki sér
um klæðnað Bjarkar fyrir kvöldið.
Kokosalaki er yfirhönnuður 30.000
búninga sem leikarar og söngvarar
munu klæðast á opnunarhátíðinni.
Vefmiðillinn heldur áfram og
segir „Björk sem hefur búið í
Englandi í jjölda mörg ár talar ensku
með mjög íslenskum hreim. Hún
vinnur þessa dagana að því að fín-
pússa gamla gríska frasa því söng-
konan kemur nefnilega fram með
heimamönnum og verður hátíðin í
svipuðum dúr og á fyrstu árum
ólympíleikanna. Nýja plata Bjarkar
„Medulla" kemur út í enda ágúst."
Það verða því fleiri en hand-
boltalandsliðið í eldlínunni á
ólympíuleikunum í sumar.
Svanakjóllinn Ætli Sophia
Kokosalaki láti Björk klæðast ein-
hverju í líkingu við þennan kjól? »
Hernámi lokið
Bráðabirgðastjórn tók form-
lega við völdum í írak í gær en til
stóð að stjórnarskiptin færu fram
á morgun. Hernámsstjórn Banda-
ríkjanna hefur setið við stjórnvöl-
inn í fjórtán mánuði og kom það í
lilut Paul Bremer landstjóra að
afhenda heimamönnum stjóm
landsins með formlegum hætti.
Athöfnin var látlaus og ekki var
send út tilkynning um hana fyrir-
fram. Fyrirhugað er að efna tú al-
mennra kosninga í landinu í byrj-
un næsta árs.