Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Page 10
7 0 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti þykir hafa mikla þekkingu
á stjórnskipan landsins og
þykir hafa gott lag á því aö
kynna land og þjóö á erlend-
um vettvangi. Kunnugir segja
ÓlafRagnar vera ákveðinn og
mikinn húmorista. Hann þykir
glæsilegur í embætti og er
land og þjóð til sóma hvar
sem hann kemur. Einnig er
hann nokkuð sleipur í erlend-
um tungumálum, eins og kom
í Ijós á blaðamannafundi með
norska krónprinsinum á
sunnudaginn.
Ólafur Ragnar er mjög fast-
ur fyrir og hefur ákveðnar
skoðanir. Lengi framan af
óð hann fram afákafa sem
íslendingar voru ekki vanir
á þeim tíma en hann var al-
inn upp í breskum háskól-
um þar sem slíkur ákafi
þótti sport. Hann er um-
deildur og sumir segja póli-
tiskar skoðanir hans og
bakgrunn hafa áhrifá starf
hans sem forseta þjóðar-
innar.
„Forseti Islands hefur yfirburða-
þekkingu á stjórnskipan lands-
ins og kjark til þess að verja
hana gegn yfirgangi
ráðherravalds sem
kann sér engin mörk.
Honum er einstaklega
vel lagið að túlka hið
nýja og opna Island, sem sækir
fram í menningarlegum og við-
skiptalegum efnum, fyrirgest-
um og á erlendum vettvangi.
Forsetahjónin eru glæsilegir og
frambærilegir fulltrúar Islands I
dag hvarsem þau koma.“
Eirtar Karl Haraldsson, ráögjafi í
almannatengslum
„Ólafur Ragnar er í fyrsta lagi
pólitlskur eldhugi en einnig virt-
ur vísindamaöur. Og
að minu viti hefur
honum tekist það
sama og hann geröi
þegar hann kenndi að
halda því faglega
starfi sem hann gegnir utan við
pólitlkina. Við erum búnir að
vera persónulegir vinir 140 ár og
sú vinátta er mér mikils virði."
Baldur Óskarsson, viðskiptafræðingur
og kennari vlð lönskólann IReykjavlk
„Ólafur Ragnar Grlms-
son hefur marga kosti.
Hann er framsýnn,
ákveðinn og skipu-
lagður. Hann hefur
afar hlýlega návist og er stðast
en ekki síst mikill húmoristi."
Ólafla B. Rafnsdóttir fjármálastjóri
Ólafur Ragnar Grímsson er fæddur á Isa-
firði 14.malárið 1943.Hann laukstúdents-
prófí frá Menntaskólanum i Reykjavlk og
hlaut doktorsprófi stjórnmdlafræði frd há-
skólanum í Manchester árið 1970. Hann
íslendingar viðurkenna ekki rétt Norðmanna til að úthluta síldarkvóta á við Sval-
barða. íslendingar ætla að veiða eins mikið og þeir vilja á svæðinu. Friðrik J.
Arngrímsson, forsvarsmaður útgerðarmanna, vill draga Norðmenn fyrir dómstóla.
Morömenn hóta íslendinnum
„Norðmenn hafa ítrekað valdið okkur vandræðum," segir Frið-
rik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra
útvegsmanna (LÍÚ), um sfldveiðar íslendinga við Svalbarða.
Friður rfldr að mestu í samskiptum frændþjóðanna tveggja, en á
sama tíma og Hákon krónprins heimsækir ísland skiptast aðilar
í sjávarútvegi á hótunum yfir hafið.
íslendingar taka ekkert mark á
nýrri kvótaúthlutun Norðmanna á
Svalbarðasvæðinu, en þeir hafa gef-
ið út reglugerð sem kveður á um að
íslendingar, Færeyingar og ríki Evr-
ópusambandsins megi veiða þar allt
að 80 þúsund tonn af sfld á árinu.
Nú þegar hafa þessi ríki veitt um 27
þúsund tonn af sfld við Svalbarða,
og íslendingar ætla ekki að hætta
við 80 þúsund tonn. „Norðmenn
hafa enga hemiild til þess að setja
reglur um sfldveiðar á Svalbarða-
svæðinu með þeim hætti sem þeir
gera,“ sagði Friðrik í samtali við
Fiskifréttir á dögunum. „Ef þessi 80
þúsund tonn klárast munum við
einfaldlega halda áffam veiðum svo
ffamarlega sem við eigum ennþá
eftir aflaheimildir. Ég hef ekki trú á
því að Norðemnn taki íslensk skip á
sfldveiðum á Svalbarðasvæðinu,"
sagði hann.
Paul Oma, hjá norsku fiskistof-
unni, er ósammála Friðrik um það.
Hann segir í samtali við norska blaðið
Fiskaren að norsk varðskip muni taka
íslensk skip og færa þau til hafnar í
Noregi ef þau halda áfram veiðum
eftir að 80 þúsund tonna heildarkvóti
sem Norðmenn hafa lýst yfir á Sval-
barða. Oma segir að ef Islendingar
framfylgi hótunum sínum verði út-
gerðir og skipstjórar sektaðir og þeim
refsað eins og þeir hefðu verið staðn-
ir að ólöglegum veiðum.
Ástæða þess að íslendingar og
Norðmenn deila er að mikil óvissa
er með réttarstöðu Norðmanna á
Svalbarðasvæðinu. Þann 9. febrúar
1920 var gerður samningur um
óskoraðan fullveldisrétt Noregs yfir
Svalbarða sem íslendingar hafa
samþykkt. Hins vegar segir samn-
ingurinn að öll skip og þegnar
samningsaðilanna skifli njóta jafns
réttar til fiskveiða innan landhelg-
inni. Hins vegar segja Norðmenn nú
að Svalbarðasamningurinn gildi
ekki um 200 sjómflna „fiskvemdar-
svæði" þeirra kringum eyjamar,
heldur norsk lög um efnahagslög-
sögu við Noreg. Friðrik, sem skrifaði
grein trm málið undir yfirskriftinni
„Ofiríki Norðmanna - andvaraleysi
íslendinga'' kveðst ekki botna í því
af hverju ekki hafi verið farið með
málið fýrir dómstóla. „Ég botna ekki
í því af hverju það hefur ekki verið
gert fyrir löngu. Það er ekki íslensk-
um hagsmunum til framdráttar að
gera þetta svona." Hann segist ekki
hafa trú á að Norðmenn gangi jafn-
langt og yfirlýsingar þeirra benda til.
„Ég skal ekkert um það segja. Mér
finnst það ólfklegt að þeir stefni
málinu þannig," segir Friðrik.
jontrausti@dv.is
liiii
Esparansa í
Reykjavíkurhöfn
Skip Grænfriðunga, Esperansa
eða Vonin, liggur nú við land-
festar i Reykjavíkurhöfn og
verðurþar til 4.júli. Grænfrið-
ungar vilja upplýsa íslendinga
um umhverfis- og náttúru-
vernd. „Það er einlægur vilji
Greenpeace að vinna með ís-
jendingum að umhverfismálum
og þá ekki sist að stöðva loft-
Eeytingar og mengun sjáv-
\gir meðal annars í bæk-
em blaðamaður DV fékk
tan við skipshlið í gær. I
íicJl
'sgff ,
fl jW MV
Sjóður ekkju Pálma í Hagkaup
Kosningasjóður Kerrys gildnar
100 milljónir í þágu hjartveikra
Eyddi þremur milljörðum
Pálmi Jóns-
I son Jónína
Gísladóttir,
ekkja hans,
skildi eftirsig
mikinn sjóð.
var lengi I eldlínu stjórnmálanna hér á
landi og varm.a. fjármálaráöherra fyrir
AlþýÖubandalagið og sat Imðstjórn Fram-
sóknarflokksins. Hann var kjörinn forseti í
þriðja sinn á laugardaginn.
Vöknuðu við
slökkviliðið
Á laugardagsmorgun-
inn kviknaði í íbúð í
Kríuhólum. Slökkvilið
fór á staðinn. Enginn
svaraði í íbúðinni er bar-
ið var að dymm og fór
slökkvilið þvf inn um
glugga íbúðarinnar. Við
það vaknaði heimilis-
fólk. í ljós kom að kerta-
skreyting í íbúðinni
hafði bmnnið niður.
Styrktarsjóður Jónínu S. Gísla-
dóttur, ekkju Pálma Jónssonar heit-
ins í Hagkaup, er frá árinu 2000 bú-
inn að gefa
tæplega
Éu 100
milljónir
króna í
því skyni
að örva
framfarir í
hjartalækn-
ingum og
þjónustu við
hjartasjúklinga á
Landspítala -
háskóla-
sjúkrahúsi.
Ym 40
milljónir
hafa
runnið
til
kaupa
á nýjum hjartaþræðingartækjum,
en annað hefur runnið til endurnýj-
unar hjartaómtækis á skurðstofu
spítalans, til kaupa á hjartarafsjám
fyrir hjartadeild spítalans, til kaupa
á sérstökum búnaði til að greina og
meðhöndla hjartsláttartruflanir og
til stofnunar göngudeildar fyrir
hjartabilaða.
Styrkveitingar sjóðsins, sem um
leið gefur ríkissjóði og þar með
skattgreiðendum tækifæri á að
spara og skera niður í sínum eigin
útgjöldum, hafa m.a. gert spítalan-
um kleift að stórefla tækjabúnað til
hjartaþræðinga og kransæðavíkk-
ana og skipuleggja hjartaþræðingar
með tveimur samliggjandi hjarta-
þræðingarstofum.
Stofnfé sjóðsins sumarið 2000
var 200 milljónir króna og hefur
Jónína reyndar bætt 17 milljónum
við það. Eignir sjóðsins voru enn
185 milljónir um síðustu áramót.
í auglýsingar á
John Kerry, firambjóðandi
demókrata í forsetakosningum í
Bandaríkjunum, eyðir og spennir
peningum á báða bóga. Kerry og
stuðningsmenn hafa undanfarið
ferðast um í Boeing 757-þotu sem er
búin öllum mögulegum þægindum.
Undir lok síðasta árs varð Kerry að
veðsetja heimili sitt til að halda bar-
áttunni gangandi en síð-
ustu mánuði hafa safnast
rúmlega sjö milljarðar í
kosningasjóðinn sem
léttir líf ffambjóðandans
til muna. Hann er þó enn
hálfdrættingur á við
Bush sem hefur
safnað tvöfalt hærri
upphæð eða rúm-
um 15 milljörðum.
Kerry hefur eytt rúmum þremur
milljörðum króna í sjónvarpsauglýs-
ingar frá því í maí en Bush forseti hef-
ur eytt um sex milljörðum í slflcar
auglýsingar frá því í mars.
Peningastreymið hefur orðið til
þess að starfsfólki kosningaskrifstofu
Kerrys hefur verið fjölgað mjög - þar á
meðal hefur aðalræðuritari Clintons,
J. Terry Edmonds, verið
ráðinn til starfa. Sem
dæmi um kostnað
vegna baráttunnar má
nefha að í maí eyddu
stuðningsmenn Kerrys
14 milljónum í hatta og
stuttermaboli, milljón í
ljósmyndir af frambjóð-
andanum og hálfri millj-
ón í stöðumælakostnað.