Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2004, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 29. JÚNl2004
Fréttir DV
Tjald fauk
a tvo bfla
Frá hádegi á laugardag
hafði lögreglan í Reykjavík í
nógu að snúast vegna hvass-
viðris. Sölutjald fauk af þaki
Kolaportsins og lenti á
tveimur bifreiðum, sem
sluppu óskemmdar. Þá
þurfti lögregla að hemja
stórt sýningartjald við Faxa-
fen sem var um það bil að
fjúka á bíla. Tilkynnt var um
fjúkandi þakplötur í Grafar-
holtinu, sem voru reyndar
ekki komnar af stað en slóg-
ust til í rokinu. Haft var sam-
band við verktaka sem kom
á staðinn og festi plöturnar.
Einnig var tilkynnt um þak-
plötur að fjúka á bíla við ný-
byggingu í Grafarvogi og
skemmdu þær bíla.
Kærasti kost-
aði12spor
Um sjöleytio á sunnu-
dagsmorgun var tilkynnt
vinnuslys í bakaríi í aust-
urborginni. Að sögn lög-
reglunnar hafði kona
verið að vinna við að
hreinsa pylsupökkunar-
vél á staðnum þegar kær-
asti hennar setti vélina
óvart í gang. Lenti konan
með olnbogabót í vélinni
og þurfti að sauma 12
spor í handlegginn. Þykir
mildi að ekki fór verr.
og song
Lögreglan á ísafirði var
kölluð til vegna ungmennis
sem dyraverðir á danshúsi
neituðu um aðgang vegna
ungs aldurs. Tók hann það
stinnt upp og endaði hjá
lögreglu. Á laugardagsmorg-
un var kvartað yfir veislu-
gestum sem sestir voru út í
garð með gítar til að spila og
syngja. Var þeim vísað inn
aJftur og þeir beðnir um að
þegja. „Fólk þarf líka að sofa
þó veðrið sé gott,“ segir í yf-
irliti lögreglunnar.
bæjarstjóri á Hornafiröi
„Það er Humarhátlð um helg-
ina og mikil eftirvænting vegna
þess," segir Albert Eymundsson,
bæjarstjóri á Hornafirði. Þetta
er árleg bæjarhátíð þarsem
meðal atriða er heimsmeistara-
mót l svokölluðum Hornafjarð-
armanna. „Ég verð mótstjóri nú
Landsíminn
ems og
áðurog
keppi
því ekki sjálfur enda hefur mér
nú ekki gengið svo vel þegar ég
heffengiö aö spila sjálfur/'AI-
bert segir Hornfiröinga vonast
eftirgóðu veðri um helgina en
óvenjumiklir þurrkar hafa gert
bændum og öðrum erfitt um
vik i sveitarfélaginu.„Það er ný-
mæli að við Hornfirðingar
kvörtum undan þurrki," segir
hann.
Farsímageislun veldur ófrjósemi meðal karla. Þetta eru niðurstöður nýrrar rann-
sóknar sem gerð var á rúmlega tvö hundruð körlum i Ungverjalandi. Þetta er
fyrsta rannsóknin sem gerð er á áhrifum farsimageislunar á frjósemi karla.
Farsímar hindra að
karlar verði pabbar
Handfrjáls farsímabúnaður getur haft skelfllegar afleiðingar fyrir
karlmenn sem hyggja á barneignir ef marka má nýja rannsókn á
tvö hundruð ungverskum körlum.
sóknir áður en hægt er að slá því
föstu að farsímar séu þetta skaðleg-
ir. „Við höfum ekkert í höndum
sem bendir til þessa. Það hafa
margar rannsóknir verið gerðar á
áhrifum farsíma en enn sem
komið er höfum við ekki fengið
óyggjandi gögn í hendur. Við
fylgjumst að sjálfsögðu með
þróun mála í þessum efnum
sem öðrum," segir Matthías
Halldórsson.
Þá benda efasemdarmenn
á að minnkandi frjósemi karla
sé ekki nýtt vandamál heldur
hafi frjósemin minnkað um
50% síðustu fimmtíu árin
eða löngu, löngu áður en far-
símarnir héldu innreið sína í
daglegt líf fólks.
Á tali Karlarþurfa að gæta
sln á farsimanum - vilji þeir
verða feður i framtiðinni.
Niðurstöður rannsóknarinnar
hafa vakið mikla athygli og víða er
fjallað um þær í fjölmiðlum. Rann-
sóknin, sem var gerð í Szegedháskóla
í Ungverjalandi, var kynnt formlega á
læknaráðstefnu í Berlín í gær. Vís-
indamennirnir segja að fjöldi sæðis-
fruma dragist saman um þriðjung hjá
þeim körlum sem ganga með farsíma
að staðaldri. Alls tók 221 karl þátt í
rannsókninni og var fylgst með hverj-
um og einum um þrettán mánaða
skeið. Þetta mun fyrsta rannsóknin
þar sem sjónum er beint að áhrifum
farsímageislunar á frjósemi karla.
Karlamir sem höfðu kveikt á far-
símanum daglangt mældust með
30% færri sáðffumur en þeir sem
höfðu slökkt á símanum. Sáðfrum-
urnar sem eftir lifðu hjá farsíma-
körlunum reyndust síðan ekki synda
eins og vera ber - og er það enn frek-
ar talið auka á hættuna á ófrjósemi.
Ungversku vísindamennirnir segja
niðurstöðumar benda eindregið til
þess að farsímageislun hafi neikvæð
áhrif á sæðisfrumur og þar með frjó-
semi karla.
Ekki em allir á einu máli um gæði
rannsóknarinnar og benda breskir
sérfræðingar til dæmis á að lífsstfil
karlanna tvö hundruð hafi ekki verið
tekinn með í reikninginn og/eða
heilsufar þeirra almennt - sem gæti
skekkt niðurstöðuna. Þannig séu far-
símar oft tákn um streitufullt líf og
það verði að taka slíka þætti til skoð-
unar samhliða hinum.
Hans Evers, fyrmm stjórnarmað-
ur Evrópsku ffjósemisstofnunarinn-
ar, segir rannsóknina kveikja fleiri
spurningar en hún svarar.
Undir þetta tekur Matthías Hall-
dórsson aðstoðarlandlæknir en
hann segir að gera þurfi fleiri rann-
Aðstoðarlandlæknir Matthías Halldórs-
son segir embætti landslæknis ekki hafa
neitt i höndum sem bendir til þess aö farsím-
ar valdi ófrjósemi.
Sigurður Einarsson í Berlingske Tidende
Jón G.Tómasson gerði alltaf greinarmun
Stjórnarformaðurinn fljúgandi
„Þetta er maður sem lítur út fyrir
að meina það sem hann segir,“ segir
í grein danska dagblaðsins Berl-
ingske Tidende um Sigurð Einars-
son stjórnarformann KB banka. Til-
efnið eru kaup KB banka á danska
bankanum FIH um daginn. Blaða-
maður Berlingske rekur feril Sigurð-
ar en hann hóf bankastörf sem
námsmaður þegar hann fékk stúd-
entastarf hjá Danske bank. Blaða-
maðurinn hitti Sigurð í Victor
Borge-svítunni á Hotel d’Anglaterre.
„Þegar hann segir að bankinn hans
stefni að því að vaxa enn, þá hljóm-
ar hann sem maður sem stendur við
orð sín,“ ítrekar blaðamaðurinn Ole
Mikkelsen. f greininni er fjallað um
að Sigurður hafi flutt til London til
að geta sinnt útrás bankans síns. Þar
geti hann líka sinnt fjölskyldunni
betur. Konan hans sinni heimilinu
en börnin 7 og 10 ára gangi í alþjóð-
legan skóla. Sagt er ffá því að Sigurð-
ur hafi stundað fótbolta, handbolta
og veggtennis á skólaárunum í Dan-
mörku en telji golf of tímafrekt
sport. Það gefist h'till tími til svoleið-
is þegar takmarkalaus memaðurinn
fyrir hönd bankans krefst síns tíma.
Þegar hann býr í London getur Sig-
urður flogið tíl þeirra staða þar sem
bankinn starfar og
heim sama dag-
inn. í lok greinar-
innar ítrekar
blaðamaðurinn
að Sigurður sé
þess handviss að
kaupin á FIH eigi
eftir að heppnast
og þegar hann
segi það líti
út fýrir að
hann meini
það raun-
verulega.
vel
Sigurður Einarsson
Berlingske Tidende segir
hann líta út fyrir aö vera
maður orða sinna.
Auðir áður taldir og
birtir sér
Jón G. Tómasson, fyrrverandi
formaður yfirkjörstjórnar í Reykja-
vík, var ekki hrifinn af yfirlýsingum
Þórunnar Guðmundsdóttur, for-
manns kjörstjómar í Reykjavík
Norður, fyrir forsetakosningarnar
um að auðir seðlar yrðu í fyrsta
skiptið taldir sérstaklega og fjöldi
þeirra birtur um leið og aðrar kosn-
ingatölur. Yfirlýsingu Þórunnar not-
aði Morgunblaðið til umdeildrar
stríðsfyrirsagnar kosningadaginn
sjálfan.
í samtali við DV segir Jón að
hann hafi alltaf gert greinarmun á
auðum seðlum annars vegar og
ógildum atkvæðum hins vegar. „Það
var ekki aldeilis verið að greina ffá
fjölda auðra atkvæða í fyrsta skiptið
núna og því rangt að halda því ffam
eins og gert var. Ég tilkynnti tölur í
mörgum þingkosningum og að mig
minnir í tveimur forsetakosningum
og ég gerði ávallt grein fyrir fjölda
auðra atkvæða sérstak-
lega þegar lokatölur
vom kynntar. Þetta
liggur fyrir og er ör-
ugglega hægt að
sannreyna með
að skoða upptök-
ur af kosn-
ingaút-
send-
ing-
um,“
segir
Jón.