Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2004, Blaðsíða 16
+
7 6 FIMMTUDAGUR T. JÚLÍ2004
Sport DV
DV Sport
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ2004 17
Luis Figo, Portúgal
Vonbrigði Hollendingurinn Phillipe Cocu gat ekk leynt vonbrigðum sínum þegarSvíinn
Anders Frisk flautaði til leiksloka I gær.
Overmars klaufi
Þeir voru aftur á móti fljótir að
ranka við sér og aðeins tveimur
mínútum eftir mark Ronaldos fékk
Marc Overmars dauðafæri. Edgar
Davids gaf góða sendingu frá
vinstri yfir á fjærstöng þar sem
Overmars var einn á auðum sjó.
Hann tók boltann á lofti en setti
hann yfir portúgalska markið.
Þremur mínútum síðar fékk
Seedorf síðan gott færi en skallaði
framhjá markinu.
Ruud Van Nistelrooy kom bolt-
anum í portúgalska markið sex
mínútum fyrir hlé en hann var
dæmdur rangstæður sem var réttur
dómur.
Portúgalar fengu fyrsta færi síðari
4-liða úrslit EMí fótbolta
2-1
(i-o)
Portúgal 2-1 Holland
1 -0 Cristiano Ronaldo, skalli 26.
2-0 Maniche, skot 54.
2-1 Jorge Andrade, sjálfsm. 63.
Tölfræðin:
12 Skot 7
7 Skot á mark 1
1 Varin skot markvarða 4
9 Skot innan teigs 1
9 Horn 2
24 Aukaspyrnur fengnar 27
5 Rangstöður 3
3 Gul spjöld 2
0 Rauð spjöld 0
47% Bolti innan liðs 53%
Portúgalar tryggðu sér sæti í úrslitaleik EM í gær þegar þeir
lögðu Hollendinga, 2-1, á Jose Alvalade-leikvanginum í
Lissabon. Sigur Portúgala var fyllilega sanngjarn enda voru þeir
sterkari aðilinn nánast allan leikinn og skoruðu reyndar öll
mörkin en mark Hollendinga var sjálfsmark. Cristiano Ronaldo
reyndist Portúgölum mikilvægur í leiknum því hann skoraði
fyrra markið og átti stoðsendinguna í því seinna. Þeir mæta
annað hvort Tékkum eða Grikkjum í úrslitaleiknum á sunnudag.
Það voru heimamenn frá
Portúgal sem byrjuðu leikinn mun
betur. Þeir vom gríðarlega vel
stemmdir og þjörmuðu að Hollend-
ingum strax í upphafi leiks.
Sérstaklega var gaman að fylgjast
með Luis Figo en hann hefur ekki
sést hlaupa eins mikið eða eins hratt
síðan hann var hjá Barcelona. Það
að Scolari skyldi hafa tekið hann af
velli gegn Englendingum virtist vera
það besta sem komið gat fyrir
Portúgal því hann lék eins og
hershöfðingi í leiknum.
Stíflan brast síðan á 26. mínútu.
Þá tók „Brasilíumaðurinn" Deco
hornspyrnu sem fann kollinn á
gulldrengnum Ronaldo sem skallaði
boltann óáreittur í hollenska
markið. Þarna sváfu HoUendingar
illa á verðinum og það kostaði þá
mark.
hálfleiks þegar Pauleta komst í
annað sinn einn inn fyrir vörn
HoUendinga. Hann skaut framhjá í
fyrra skiptið en hann lét van der Sar
verja frá sér í seinna skiptið.
Á 58. mínútu lét Maniche vaða
eftir að hafa fengið stutta sendingu
úr hornspyrnu og boltinn söng í
fjærhorninu. Stórkostíegt mark.
Hollendingar voru fljótir að
koma sér inn í leikinn á ný og þeir
minnkuðu muninn er Andrade
skoraði glæsUegt sjálfsmark. Hann
stýrði þá sendingu Giovannis van
Bronckhorst í markið. Van Bronck-
horst hefði getað jafiiað leikinn
tveimur mínútum síðar en hann
setti boltann rétt framhjá markinu í
upplögðu færi.
HoUendingar gerðu aUt hvað þeir
gátu tU þess að jafna það sem eftir
Ufði leiks en þeim varð lítið ágengt
gegn sterkri portúgalskri vörn. Besta
færið á síðustu mínútunum fékk
Deco á síðustu sekúndunum en van
der Sar varði frá honum.
Portúgalar því komnir í úrslit á
heimavelli og miðað við frammi-
stöðuna í þessum leik eru þeir
líklegir tU afreka þar.
henry@dv.is
MAÐUR LEIKSINS
■
mdktmS;....
Sýndi sig fyrir stelpurnar Gulldrengurinn
Cristiano Ronaldo vllaði ekki fyrir sér að fara úr að
ofan er hann kom Poriúgölum yfir í gær.
Stelpunum hefur eflaust ekki leiðst þessi sjón en
sænski dómarinn Anders Frisk var ekki eins hrifinn
og spjaldaði hinn fagra Portúgala.
; Áii»"g
Standa saman, strákar! Luis Felipe Scolari, þjálfari Portúgala, ræðir hér við Deco og Figo og
er eflaust að biðja þá um standa saman en sem kunnugt er þá er Figo ekki hrifinn afþví að
Deco spili fyrir portúgalska landsliðið enda er hann Brasiliumaður.
Úrslitin ráðast í 4 §a úfsSm í Portúgal
Felipe Scolari en Hollendingnum Ctarence Seedorfer ekki skem .