Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2004, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR I. JÚLÍ2004
Fókus >V
•-rf
Arndís B. Sigurgeirsdóttir hefur látið langþráðan draum rætast og er að opna bókabúð þar sem fólk get-
ur komið og notið þess að slaka á með gott kaffi við lestur góðra bóka og tímarita. Þegar Topshop-hús-
næðið í Lækjargötu losnaði sá hún strax möguleika á að opna þarna verslun drauma sinna. Hún hafði
samband við eigendur húsnæðisins sem hjálpuðu henni að gera drauminn að veruleika. Búðin opnar á
morgun og kemur svo til með að vaxa á næstu mánuðum, en fjölbreytt starfsemi verður í húsinu sem
styður hver við aðra. Iða verður menningarhús þar sem lögð er áhersla á að hægt sé að njóta þess besta
í bókmenntum, blöðum, mat, kaffi og list. Auk þess verður lögð sérstök áherslu á gjafavörur.
é
■ ■ -
Eins og ein stór fjölskylda
Aðstandendur Iðu. Starfa náið
saman við ólíkan rekstur, sem
sameinast undir merkjum
menningarinnar.
„Það er fínt að hafa þessar stóru
verslunarmiðstöðvar, en miðbærinn
er það sem skiptir öllu máli," segir
Arndís, fxamkvæmdastjóri Iðu, sem
opnar á morgun í gamia Topshop-
húsinu í Lækjargötu. Á jarðhæðinni
ætlar Amdís að vera með nýstárlega
bókabúð og á efri hæðinni verða veit-
ingastaðir, kaffíhús og myndlistargail-
erí. „Hugmyndin er að öll starfsemin
sem er í húsinu komi til með að vinna
með hverri annari," segir Amdís sem á
fullt í fangi með að klára dæmið enda
lítill tími til stefnu þar sem verslunin
verður opnuð á morgun.
Lúxusbókabúð
„Við verðurm til dæmis með hæg-
indastóla hér í bókabúðinni þannig að
fólk getur farið upp, keypt sér kafíi og
komið með það hingað niður og lesið
bækur eða tímarit á meðan það
drekkur kaffið sitt, einnig verðum við
með vinnuborð þar sem fólk getur
sest niður með tölvumar sínar og
unnið hér í búðinni. Hér er mjög öflug
þráðlaus nettenging þannig að fólk
kemur bara með tölvumar og tengir
sig inn á þráðlausa netið okkar.
Við komum til með að leggja mikla
áherslu á að vera aðeins með eðaikafli
og erum búin að vera með kaffibar-
I>> þjónana okkar á námskeiði síðusm
vikur til þess að tryggja gæði kaffisins.
Við verðum með sérstakar kaffilöggur
sem koma reglulega tii þess að tryggja
það að gæði kaffisins sé eins og best
verður á kosið. Svo verður myndlistar-
gallerí hér uppi lflca og það kemur til
með að flæða um allt húsið. Hér verð-
ur myndlistin alls staðar þar sem hún
getur notið sín f húsinu."
Einstaklingsframtakið í sam-
keppni við risann
Er það ekki óðs manns æði að
opna bókabúð ísamkeppni viðPenn-
artn sem hefur sölsað undir sig allar
stóru bókabúðimar, bæði Mál og
menningu og Eymundsson?
„Nei, við erum í góðu sambandi
við þá í Pennanum enda em þeir ein-
ir af okkar birgjum. Þeir fagna sam-
keppninni og finnst gott að hér sé við-
leitni í þá átt að koma lífi í verslunar-
húsnæði sem hafa staðið auð. Við
gerum þetta að miklu leyti af trú okk-
ar á miðbæinn sem ég tel að eigi eftir
að rísa upp að nýju. Miðbærinn kem-
ur til með að lifa, það er alveg á
hreinu."
Lítil verslunarmiðstöð en ekki
búð
„Hugsunin á bak við þetta hús-
næði okkar er svolítið sú sama og er á
bak við verslunarmiðstöðvarnar,
þetta verður svona lítil verslunarmið-
stöð sem hefur það að meginmark-
miði að bjóða upp á notalegheit. Við
stílum inn á það að fólk geti komið
hingað til dæmis á laugardögum og
geti eytt hér deginum í ró og næði. Ég
kem tíl með að leggja mikla áherslu á
að vera með mikið af tímaritum, en
svo er hugmyndin að bókabúðin verði
mjög fjölbreytt auk þess sem ég ætla
að vera með breytanlegar áherslur eft-
ir árstímum. Við komum til með að
leggja talsvert upp úr því að vera með
mikið af góðum gjafavörum og verð-
um til dæmis með mjög skemmtilegar
vörur frá sænskum iðnhönnuðum.
Svo verður ljósmyndagallerí hér í
búðinni sem Bára ljósmyndari verður
með en hún er samstarfskona mín í
rekstrinum á bókabúðinni. Hér
verður fatahönnuður með sérstakan
stað í búðinni, hún fær bleiku súluna
fyrir sig. Við erum nú ekki að tala um
hefðbundinn tískufamað heldur verð-
ur þetta sérhæfður fatnaður fyrir
hunda, aðallega kápur. Við verðum
líka með sælgætisbar fyrir hunda og
ætlum að vera með sérstaka þjónustu
fýrir hunda- og kattaeigendur í kring-
um bleiku súluna hér á miðju gólf-
inu," segir Amdís og bendir á bleika
súlu með örlitlum snögum á og veltir
því fyrir sér hvort hún eigi kannski líka
að bjóða upp á sælgætí fýrir böm.
1. Helga - Guöbjörg - Kristín
verða með veitinga- og litla mat-
vöruverslun sem þær kalla Yndis-
auka.
2. Draumurinn að fæðast
Hópurinn i löu, lagðist á eitt til að
tryggja að verslunin og
veitingastaðirnir yrðu eins glæsilegir
og mögulegt er við opnunina á
morgun.
3. Iða f gamlaTopshop húsínu
Iðar aflifi - þarna mun menningin
þlómstra.
4. Kjartan I Pennanum kíktil
heimsókn og var óhræddur við sam-
keppnina.„Það er frábært þegar
svona lífleg starfsemi kemur hingað
I miöbæinn allt styrkir þetta hvort
annað. Við erum þannig mjög
ánægðir með þessa starfsemi.“
5. Lárus Ómarsson ætlar að starf-
rækja litla ferðaþjónustu á fyrstu
hæðinni þar sem meðal annars
verður boðið upp á ferðir um há-
lendi Islands.
6. Sveinn Þórhallsson hefursafn-
að myndlist i mörg ár og lætur
drauminn nú rætast með eigin gall-
erli, þar sem hann verður með sýn-
ingarum allthús.
Stuðningur við einstaklings-
framtakið
En hvað með Baug, hvernigkoma
þeir að þessu?
„Já, þegar ég fékk þessa hugmynd
bar ég hana undir eigendur hússins
þar sem vom í raun að skima eftir
einhverri starfsemi sem gætí þrifist í
húsinu. Þetta er náttúruiega frábært
húsnæði sem býður upp á marga
skemmtilega möguleika. Ég hef
gengið með þennan draum í magan-
um í talsverðan tíma og hef að sjálf-
sögðu haft augastað á þessu húsi. Ég
hafði áður komið að rekstri bóka-
búða en ég var framkvæmdastjóri hjá
Máli og menningu í eitt ár áður en
það sameinaðist Pennanum. Það var
virkilega skemmtilegt starf og mig
langaði að halda áfram á þessum
vettvangi. Ég vann svo ákveðna við-
skiptaáætlun um þann draum sem
nú er að rætast hér í Lækjargötunni.
Ég bar þessa áætiun undir eigendur
hússins sem trúðu strax á þessa hug-
mynd mína. Þeir hafa staðið sterkir
við bakið á okkur til þess að gera það
að verkum að þetta gætí orðið að
veruleika sem það er nú orðið," segir
Arndís sem augljóslega hefur lagt sig
alla í þetta verkefni síðustu mánuði
og fylgist nú með margra ára draumi
rætast.
Gæðamatur, kaffi og myndlist
„Uppi á annarri hæð verður að
sjálfsögðu þetta frábæra kaffihús, þar
verður bæði hægt að setjast niður og
drekka kaffi auk þess sem fólk getur
flakkað um húsið með bollann sinn,
skoðað bækur og myndlist. Við finn-
um mikið fýrir því hvað þetta rými
virkar vei með öllum þessum stóru
gluggum sem gefa manni þá tilfinn-
ingu að maður sé úti þó maður sitji
alltaf innandyra en nýtur útsýnisins í
gegnum stóru gluggana yfir Lækjar-
götuna og upp að Bankastræti rétt
eins og maður sæti úti," segir Árný
sem drekkur greinilega ekki hvaða
kaffi sem er og opnar nú sitt eigið
kaffihús ásamt samstarfsfólki sínu í
Topshop-húsinu sem nú heitir Iða.
freyr@dv.is