Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2004, Blaðsíða 21
BV Sport
FIMMTUDAGUR 1. JÚU2004 21
FYLKIR-IBV
8. umferö - Fylkisvöllur-29. júnf
Dómari: Gylfi Þór Orrason (2).
Áhorfendur: 1040. Gæði leiks: 3.
Gul spjöld: Fylkir: Ólafur (24.),
Finnur (59.), Björgólfur (74.). - (BV:
Einar H. (21.), Jón (75.), Tryggvi (86.),
Jeffs (88.).
Rauð spjöld: Valur Fannar (59.).
Mörk
1-0 BjörgólfurTakefusa 19.
aukaspyrna Björgólfur
1-1 Gunnar Heiöar Þorvaldsson 26.
skot úr teig Bjarnólfur
1-2 Bjarnólfur Lárusson 60.
víti Gunnar Heiðar
Leikmenn Fylkir:
Bjarni Þórður Halldórsson 3
Gunnar Þór Pétursson 3
(81,KjartanÁgústBreiðdal -)
Valur Fannar Gíslason 2
Þórhallur Dan Jóhannsson 4
Kristján Valdimarsson 2
Ólafur Ingi Stigsson 4
Finnur Kolbeinsson 2
Helgi Valur Danielsson 2
Sævar Þór Gíslason 1
Eyjólfur Héöinsson 1
(64, Albert Brynjar Ingason 1)
Björgólfur Takefusa 2
(83, Þorbjörn Atli Sveinsson -)
Leikmenn fBV:
Birkir Kristinsson 3
Matt Garner 4
Einar Hlöðver Sigurðsson 2
Tryggvi Sveinn Bjarnason 3
Mark Schulte 4
Jón Skaftason 1
Einar Þór Daníelsson 4
(90, Bjarni Geir Viðarsson -)
Bjarnólfur Lárusson 4
Ian Jeffs 2
Magnús Már Lúðvíksson 1
(84, Andri Ólafsson -)
Gunnar Heiðar Þorvaldsson 4
(90, Bjarni Rúnar Einarsson -)
Tölfraeðin:
Skot (á mark): 9-11 (4-6)
Varin skot: Bjarni 4 - Birkir 3.
Horn:6-9 Rangstöður: 1-4
Aukaspyrnur fengnar: 21-14.
BESTUR Á VELLINUM:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV
KR-STJARNAN 5-1
6. umf. - KR-völlur -29. júnl
Mörkin:
1- 0GuðlaugJónsdóttir 16.
skot úr teig Hólmfríður
2- 0 Hólmfríður Magnúsdóttir 31.
skotúrteig Guðlaug
2- 1 Lilja Kjalarsdóttir 42.
skot úr teig Sarah Lentz
3- 1 Hólmfríður Magnúsdóttir 51.
skot utan teigs vann bolta
4- 1 Edda Garðarsdóttir 81.
aukaspyrna 45 metra færi
5- 1 Guðlaug Jónsdóttir 85.
skalli úr markteig Anna Berglind
Boltar KR:
Hólmfríður Magnúsdóttir
Embla Sigriður Grétarsdóttir @@
Guðlaug Jónsdóttir @@
Edda Garðarsdóttir @
Elfa Björk Erlingsdóttir @
Boltar Stjarnan:
Nanna Rut Jónsdóttir @
Anna Margrét Gunnarsdóttir @
Alison Jarrow @
Lilja Kjalarsdóttir @
Tölfræðin:
Skot (á mark): 35-4(12-1)
Varin skot: María 0 - Nanna 5.
Horn: 15-1 Rangstöður: 0-4
Aukaspyrnur fengnar: 13-13.
BEST AVELLINUM:
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR
K A R L A R LANDSBANKADEILD {j
Úrslit:
KA-KR 3-2
Fram-FH 1-2
Grindavlk-Keflavík 3-2 ||
(A-Víkingur 0-2
Fylkir—(BV Staðan: 1-2
Fylkir 8 5 2 1 12-5 17H
FH 8 4 3 1 13-8 15
(BV 8 3 3 214-10 12
ÍA 8 3 3 2 9-7 12
KR 8 3 2 3 11-10 11
KA 8 3 1 4 8-10 10
Grindavík 8 2 4 2 9-12 10
Keflavík 8 3 1 4 9-14 10
Vikingur 8 2 1 5 8-12 7
Fram 8 1 2 5 8-13 5
Fyrsta tap Fylkis í sumar átti sér staö á Fylkisvelli á þriðjudag. Þá komu
baráttuglaðir leikmenn ÍBV í heimsókn. Jafnteflislykt var af leiknum lengi vel en
umdeild vítaspyrna réð úrslitum i leiknum.
Gylíi af jólakorta-
lista Fylkismanna
Gylfi Orrason dómari mun
vart fá jólakort frá Fylki í des-
ember ef eitthvað er að marka
viðbrögð stuðningsmanna
félagsins við vítaspyrnu sem
hann dæmdi á fyrirliða
félagsins, Val Fannar Gíslason.
Sú vítaspyrna reyndist skipta
öllu í leik Fylkis og ÍBV því úr
henni skoraði ÍBV sigurmark
leiksins. Valur Fannar fékk að
líta rauða spjaldið í kjölfar
vítaspyrnudómsins og tíu
leikmenn Fylkis ógnuðu ÍBV
lítið sem eftir lifði og ÍBV
sigraði því, 2-1.
Það var kalt og mikill vindur þegr
leikurinn fór fram. Þessar aðstæður
réðu leikmenn illa við því leikurinn
fór ákaflega rólega af stað. Það hafði
lítið gerst þegar Björgólfur Takefusa
fiskaði aukaspymu á 19. mínútu.
Spyrnuna tók hann sjálfur, lyfti
boltanum laglega yfir varnarvegg
ÍBV og í netið. Glæsilegt mark.
Eyjamenn létu snilldartakta
Björgólfs ekki slá sig út af laginu
heldur jöfnuðu þeir leikinn sjö
mínútum síðar. Þá lyfti Bjarnólfur
Lárusson boltanum yfir Val Fannar í
teignum. Hann endaði við fætur
Gunnar Heiðars Þorvaldssonar sem
skilaði honum laglega í netið. Hans
sjötta mark í sumar en hann er
markahæstur í deildinni.
Leikurinn féll í rólegheit á ný eftir
markið. Leikmenn spiluðu ágætlega
úti á velhnum en ailar
sóknartilraunir runnu út í sandinn
er liðin nálguðust vítateig hvors
annars.
Vendipunktur leiksins
Á 59. mínútu kom síðan
vendipunktur leiksins. Gunnar
Heiðar Þorvaldsson komst þá inn
fyrir vörn Fylkis, sólaði Þórhall Dan
og um leið og hann ætlaði að setja
boltann í netið kom Valur Fannar
aðvífandi, renndi sér í boltann og
tók hann af honum. Flestum fannst
að Valur hefði aðeins tekið boltann
en Gylfi Orrason dómari leiksins var
ekki á sama máli - dæmdi víta-
spymu og rak Val Fannar af velli.
Undirritaður var mjög hissa á
vítaspymudómnum í fyrstu - fannst
hann í raun glórulaus.
En eftir að hafa grandskoðað
atvikið á myndbandi er undirritaður
á þeirri skoðun að dómur Gylfa hafi
verið réttur og í raun er með
ólíkindum að honum hafi tekist að
sjá brot sem sást ekki fyrr en það var
sýnt mjög hægt í sjónvarpi.
Bjarnólfur skoraði úr vítinu, kom
ÍBV yfir og þar lauk leiknum í raun.
Tíu pirraðir leikmenn Fylkis náðu
ekki að ógna marki ÍBV að neinu viti
en fóru þess í stað mikinn í garð
dómarans sem reyndar missti alla
stjórn á leiknum eftir vítið.
Sævar Þór heppinn
Úr varð ein heljarinnar vitíeysa
þar sem Sævar hefði til að mynda átt
að fjúka út af en stressaður Gylfi
hafði ekki kjarkinn til þess að henda
honum í bað. Sævari Þór var mjög
heitt í hamsi er blaðamaður
spjallaði við hann eftir leikinn.
„Ég var búinn að ákveða með
sjálfum mér fyrir þetta tímabil að
hætta að rífa kjaft við dómara en ég
get ekki orða bundist yfir þessari
frammistöðu Gylfa Orrasonar í dag.
Mér fannst þetta ekki vera víti. Gylfi
gat ekki svarað þegar hann var
spurður að því af hverju hann væri
að flauta," sagði Sævar mjög heitur
skömmu eftir leikinn. Þrátt fyrir álit
hans á dómgæslunni þá var hann
sammála blaðamanni um að Fylkir
hefði ekki leikið vel.
„Við vorum virkilega lélegir í dag.
Það er ekki hægt að líta fram hjá því.
Ég veit ekki hvað er gerast hjá okkur
en við þurfum að rífa okkur upp af
rassgatínu." henry@dv.is
Wi‘ ....fe.. 'k-
Bannað að „teika" Gunnar Þór
Pétursson„teikar“ hér BjörgólfTakefusa
eftir að hann hafði komið Fylki yfir gegn
ÍBV. Það mark dugði skammt því ÍBV fór
með 2-1 sigur afhólmi. DV-mynd E.ÓI.
am
a r i
m
Hólmfríður brosir blftt Flólmfríður
Magnúsdóttir gat leyft sér að brosa á KR-
vellinum á þriðjudag enda átti hún stórleik
er KR kafsigldi lið Stjörnunnar.
KR-stúlkur voru í toppformi er Stjarnan kom í heimsókn
Stjarna Hólmfríðar skein skært
KR-stelpur lögðu stöllur sínar úr
Garðabæ, Stjömuna, að velli í
Landsbankadeild kvenna í knatt-
spymu. Leikurinn, fór fram á KR-
velli við ágætis aðstæður, endaði
5-1 og heimaliðið er til alls víst og
ekki að sjá mikinn getumun á því
og Val og ÍBV.
Liðið hefði þó gjarnan mátt spila
meira, hvort sem var upp kantana
eða miðjuna, en stelpurnar vom
alltof gjarnan á að láta bara vaða og
náðu því ekki nógu mikilli sóknar-
pressu þrátt fyrir að vera með bolt-
ann lungann úr leiknum.
Stjörnustelpur vom í vöm nánast
allan tímann en skutust af og til í
skyndisóknir sem sköpuðu yfirleitt
nokkra hættu. Barátta liðsins var til
fyrirmyndar en andstæðingurinn að
þessu sinni var einfaldlega einu
númeri of stór.
Elfa Björk Erlingsdóttir, leikmað-
ur KR, er uppalin Stjörnustelpa sem
gekk til liðs við Vesturbæjarveldið
fyrir þetta tímabil. Hvernig fannst
henni að spila á mótí sínum gömlu
félögum? „Þetta var einfaldlega erf-
iðasti leikur sem ég hef spilað á æv-
inni - bæði andlega og líkamlega og
ég er bara ánægð með að hann sé
búinn. Stjörnuliðið lét okkur hafa
verulega fyrir sigrinum og þetta er
hörkulið skipað mörgum ungum og
efnilegum leikmönnum og ég hef
fulla trú á þeim.
Við emm hins vegar með mjög
gott lið og ég er á því að það sé mjög
stutt bil á milli okkar og Vals og ÍBV.
Við höfum fulla trú á að við getum
náð þeim og það er ekki spuming að
það er á dagskrá," sagði Elfa Björk
Erlingsdóttir sem lætur mjög vel af
dvöl sinni hjá KR. sms@dv.is