Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1882, Síða 37
ÁRBÓK ÍSLANDS 1880.
Janúar 5. Andast síra Hallgrímur Jónsson prófastur, R., á Hólmum
í Revðarfirði, fæddur lli/» 1811.
— 9. Konungur staðfestir þessi lög frá síðasta alþingi:
18. Lög um breyting á tilskipun um sveitarstjórn á Islandi
4. Mai 1872, og
19. Lög um uppfræðing barna í skript og reikningi.
— 10. Byrjar nýtt blað á Akureyri, »Fróði«, ntstjóri Einar al-
þingismaður Ásmundarson í Nesi, í prentsmiðju Bjarnar
Jónssonar prentara, þeirri er áður var eign norður- og austur-
umdæmisins, en hann hafði keypta 21/s 79 fyrir 1200 kr., og
skyldi því fje, ásamt sjóði prentsmiðjunnar, öðrum 1200 kr.,
varið til menntunar aíþýðu í norður- og austurumdæminu.
»Fróði« er 30 blöð á ári, kostar 3 kr.
— 12. Stjórnarherranum semst við »hið sameinaða .gufuskipa-
fjelag" í Khöfn um að annast gufuskipsferðir til Islands og
umhverfis landið, með 2 skipum, fyrir 58,000 kr. styrk um
árið, úr landsjóði og ríkissjóði.
— 14. Bókmenntafjelagsfundur í Khöfn, ársfundur fyrir árið 1879.
Forseti kjörinn Sigurður L. Jónasson, fjehirðir Tryggvi
Gunnarsson, skrifari Jón Jensson, bókavörður Guðmundur
Lorláksson.
— 16. Póstgufuskipið Phönix leggur af stað frá Khöfn til Is-
lands .aukaferð; kemur við í Hull og þórshöfn.
— 27. Ábyrgðarfjelagsfundur á Akureyri. Samþykktar reglur
um þorskfiskiveiðar á þiljuskipum.
— 29. Sýslunefnd Eyfirðinga ræður af að kaupa kvennaskóla-
stofnunina á Laugalandi að stofnandanum, Eggert umboðs-
manni Gunnarssj'ni, fyrir 6000 kr.
Febrúar 2. Gaulverjabær veittur síra Páli Sigurðssyni á Hjalta-
bakka.
— 2. Landshöfðingi veitir Bjarnanesprestakalli 2000 kr. lán úr
viðlagasjóði til að reisa steinhús á prestssetrinu í stað bæjar-
húsa, gegn endurborgun á 20 ára fresti og 4 °/o í leigu.
— 4. Phömx, aðalpóstskipið frá Khöfn, koin til Reykjavíkur í
miðsvetrarferð sinni.
— 5. Ársfundur í bindindisfjelagi Akureyrarbúa. hjelagsmenn 43.
Forseti Friðbj. Steinsson 'bókbindari.
— 10. Andast húsfrú Helga Guðmundsdóttir á Haganesi í Fljótum,
59 ára.
— 15. Phönix leggur af stað frá Rvík til Khafnar.
— 15. Andast húsfrú Jóna Sigurðardóttir í Nesi í Höfðahverfi,
kvennaskólakennari, f. 1851, kona Gunnars Einarssonar verzl-
unarmanns.
— 18. Sett verðlagsskrá fyrir Rangárvallasýslu 1880-81. Með-
alalin 45 a.
— 18. Sett verðlagsskrá fyrir Vestmannaeyjasýslu 1880-81. Með-
alalin 46 a.