Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 44
Apríl 1. Byrja nýjar þingkosningai*.
— 15. Lokið kosningum að mestu, frelsismöunum (Viggum)
mjög í vil og langt um vonir i'ram: urðu 352 saman, en
íhaldsmenn (Torymenn) að eins 236, og írskir heimastjórnar-
menn 64.
— 18. Beaconsfield lávarður (Disraeli) beiðist lausnar fra stjórn-
arformennskunni, sakir kosninga-ósigursins.
— 23. Gladstone tekur að sjer stjómarformennsku og forstöðu
fjárhagsmála; Granville verður utanríkisstjómarherra, Harting-
ton nýlendustjómarherra.
— 29. Hið nýja þing kemur saman.
Júli 27. Ayub prinz í Afganistan vinnur orustu af Bretum nærri
, Kandahar; þeir Ijetu helming sinna manna, um 1200.
Agúst 3. Ef'ri málstofan (lávarðadeildin) hafnar með 282 atkv.
gegn 51 stjórnarfrumvarpi um eptirgjaldsuppgjöf við írska
leiguliða.
Sept. 1. Kóberts, yfirhershöfðingi Breta í Afganistan, vinnur
góðan sigur .á Ayub prinz við Baba-Vali, nærri Kandahar.
— 7. þfingi slitið.
— 8. Týndu 160 manna lííi í kolanámulijá Durham, nál. Snnder-
iand, fyrir loptkveikju.
— 26. Irskir leiguliðar myrða á fömum vegi einn landsdrottinn
sinn, Mountmorres lávarð.
Okt. 28. Manndrápsveður mikið: brotnuðu 167 hafskip við Eng-
lands strendur.
Nóv. 20. Andast Alexander Cockburn hæstarjettarforseti, 78 ára.
Desember 14. Transvaal, nýlenduríki í Afríku sunnan til — lands-
lýður hollenzkur, Búar —, er Englendingar höfðu sölsað undir
sig 1878, segir sig úr lögum við þá og setur sjer þjóðvalds-
stjórn, sem áður var, og fyrir hana Paul Kriiger.
— 20. Vopnaviðskipti með Bretnm og Búum í Transvaal, og
höfðu Bretar miður.
— 22. Andast George Elliot skáldkona, rjettu nafni Mary Evans,
rúml. sertug.
- 28. Settur kviðdómur í Dýflinni í landráðasök gegn Parnell
og ,15 öðrurn þingmönnmn írskum fyrir undirróður við landseta
á írlandi til refja og illvirkja við landsdrottna og annarar
óhlýðni við lög og landstjórn. Jrskir landsetar unnu þetta
ár (1880) átta launvíg á landsdrottnum sínum eða umboðs-
mönnum þeirra, og um 2600 aðra glæpi í gegn þeim.
F.rakkland.
Jan. 4. Andast Montalivet greifi, nafnkenndur stjórnvitringur,
ráðheira á dögum Louis Philipps, 79 ára.
— 13. Frakkar ganga á þing, í Paris. Gambetta endurkjörinn
forseti í fulltrúadeildinni, Martel í öldungadeildinni.
— 18. Andast hertoginn af Gramont, utanríkisstjórnarherra 1870,
f. 1819.
— 19. Andast Lavergne, nafnkenndur hagfræðis-rithöfundur og
þingmaður, 71 árs.