Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1882, Side 45
Jan. 20. Andast Jules Favre málfærslumaður, frægur þingmaður og
stjórnvitringur, f. 1809.
Febrúar 3. Týndu 40 menn lífi við járnbrautarslys, skammt frá
Paris.
— 10. Andast Cremieux málfærslumaður, þingm. í öldungadeild-
inni, dómsmálastjórnarherra 1848 og 1870, f. 1796.
— 13. Fulltrúadeildin hafnar að vilja stjórnarinnar frumvarpi
um almenna uppgjöf saka við glæpamennina frá Parísarupp-
hlaupinu 1871, með 313 atkv. gegn 115.
Marz 5. Heimkoma 300 útlaga frá Ný-Kaledóníu, þ. e. sökudólga
frá Parísarupphlaupinu 1871, er höfðu fengið uppgjöf saka.
— 6. Stjórnin lætur lausan mann, er grunaður var um morð-
ræðið við Rússakeisara 7» 79, Hartmann að nafni; hann fór
til Englands og lýsti þar verkinu á hendur sjer.
— 9. ÖMungadeildin hrindir lagagrein, sainþykktri af fulltrúa-
deildinni, um að banna Kristmunkum að fást við fræðslu
ungmenna.
— 29. Stjórnin býður að loka skólum og öðrum stofnunum
Kristmunka í landinu á 3 mánaða fresti, og að aðrar munk-
reglur megi því að eins vera við lýði, að þær beiðist stað-
festingar stjórnarinnar á lögum sínum og öðlist hana.
Mai 8. Andast Gustave Flaubert, frægur skáldsagnahöfundur,
um sextugt.
— 25. Léon Say, sendiherra í Lundúnum, kjörinn forseti í öld-
ungadeildinni; Martel hafði sagt af sjer.
Júní 21. Fulltrúadeildin samþykkir með 333 atkv. gegn 140 al-
menna uppgjöf saka við glæpamenn frá Parísarupphlaupinu
1871, fynr snilldarlegur fartölur Gambettu.
— 29. Pomare V, konungur yfir Ijelagseyjum í Miklahafi, selur
ríki sitt, 40 □ mílur, með 40,000 manna, í hendur Frakka-
stjórn, með fúsum vilja þegna sinna.
— 30. Framkvæmd boðorð stjórnarinnar frá 29. marz gegn
Kristmunkum.
Júlí 9. Andast Paul Broca, frægur læknir, þingm. í öldunga-
deildinni, 56 ára.
— 10. Lagafrumvarpið um uppgjöf saka við Parísarupphlaups-
mennina 1871 samþykkt af öldungadeildinni og staðfest af
ríkisforseta.
— 14. þjóðhátíð lialdin um land allt að fyrirlagi þings og
stjórnar, til minningar urn hrun Parísardýflissunnar miklu
(Bastillunnar) 14. júli 1789, og þar með um hrun hinnar fornu
einveldis- og ófrelsisaldar.
— 15. þiingi slitið.
Ágúst 1. Amtsráðskosningar um land allt, þjóðvaldsmönnum
mjög í vil: 902 amtsráðsmenn úr þeirra liði, 373 úr liði ein-
valdsmanna.
— 10. Herflotasýning mikil í Cherbourg, í viðurvist ríkisforseta
og þingforsetanna. Gambetta drepur á liefndir fyrir ófarirnar
fyrir þjóðverjum 1870—71.
Sept. 19. Freycinet selur af hendi stjórnarformennsku, en við