Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1882, Blaðsíða 64
böggla er jafnt hvort heldur borgað er undir þá fyrir fram
eða eigi fyr en eptir á.
Um alla póstböggla á að vera traust og vandlega búið, og
þeim lokað svo vel, að ekki sje hætt við, að þeir verði opnaðir
á leiðinni af öðrum úti frá. Sjeu í þeim peningar eða peninga-
ígildi eða önnur fjemæt skjöl, á að vera innsigli fyrir, ög sjeu
það mótaðir peningar, þá umbúðirnar úr leðri, skinni, tvöföldu
Ijerepti eða vaxdúk, og reyrðar snæri, eða bundið fyrir, ef það er
poki, en peningunum áður hlaðið í ströngla, vafið um hvem ströngul
á alla vegu sterkum pappír og reyrt svo um.
Enginn póstböggull má vera meiri fyrirferðar en svo, að hann
sje 18 puml. á lengd og 9 á hina veguna hvorn um sig, nje
þyngri en 5 pd., nema það sjeu mótaðir peningar; þá má hann
vega 16 pd.
Lokuðum póstbögglum á jafnan að fylgja tilvísunarbrjef, sem
ekki má vera peningabrjef eða ábyrgðarbijef. Sje það ekk'i þyngra
en 3 kv., að frátöldum lykli að sendingunni, ef henni fylgir
lykill, er eigi tekinn neinn burðareyrir undir það. það má
vera hvort að vill lokað eða ólokað. það á að vera með greini-
legri utanáskript til þess, er við sendingunni á að taka; auk
þess á að standa utan á því, að því fylgi sending og hvers konar
sending það er (böggull, kassi, peningapoki o. s. frv.), merki á
sendingunni og hvers virði hún er, ef það er látið uppi. Jiað er
og góð regla, að sá, sem böggulinn sendir, riti aptan átilvisunar-
brjefið nafn sitt og heimili ásamt dagsetning, meðal annars til
þess að hann eigi hægt með að helga sjer hann, ef á þarf að halda.
J>að er tíðkanlegast að merkja póstböggla með upphafsstöfum
í nafiii viðtakanda. Yarlegast er að hafa á þeim fulla utanáskript.
Auk þess á jafnan að standa á bögglinum sjálfum fullum stöfum
póststöðvar þær, er næstar eru heimili viðtakanda þangað í leið;
og sje í bögglinum peningar, peningaígildi eða önnur fjemæt
skjöl, og sagt er til þeirra, á þar ennfremur að standa hin til-
greinda fjárupphæð. Merki og annað letur á bögglinum á að vera
vel trútt.
Lokuðum bögglum, sem vega meira en 2 pd., er eigi veitt
viðtaka á brjefhirðingarstöðum til flutnings með pósti, nema
peningar sjeu, þá 5 pdum mest, og nemi fje það ekki meiru en
300 kr., utan sá beiðist skriflega, erfjeð sendir, og ábyrgist sjálfur
til næsta póstafgreiðslustaðar.
Beri nauðsyn til að láta eitthvað verða eptir af pósti, eiga
lokaðir bögglar að verða fyrir því, og þeir helzt er síðast er
skilað til nutnings.
Lokuðum bögglum er eigi skilað viðtakanda nema gegn kvittun
hans í bók póstráðanda.
7. Fyrir innansveitarbqef og sendingar, þ. e. sendibrjef og aðrar
póstsendingar, sem ekki eiga að fara lengra en í bijefhirð-
ingarumdæmi þeirra póststöðva, er bijefið eða sendingin er
látin á, er póstgjaldið helmingi minna en ella, hvort heldur
eru lausabijef, þar á meðal ábyrgðarbrjef og krossbandssend-