Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 10. JÚLf2004 Fréttir UV Fangaðirá Króknum Lögreglan á Sauð- árkróki segir Lands- / mót UMFI ganga nokkuð vel. „Fólk er að streyma hérna til okkar svona jafnt og þétt en þó hefur umferðin ekki náð neinu hámarki ennþá," sagði lögregluþjónn á Sauð- árkróki í samtaíi við DV. Það var rjómabh'ða á Króknum í gær og fór hitinn upp í 24 gráður. Tveir gistu fanga- geymslumar í gæmótt, báðir fyrir ölvun og ólæti á tjald- stæðinu. Lögreglan er með einhvem aukaviðbtinað vegna fjöldans en það er bú- ist við allt að 18.000 manns um helgina. Hasshundur er í stuttu kallfæri íf á Króknum en ekki hefur verið ákveðið hvort hann fái að þefa eitt- hvað um helgina. Innbrotí þrjá bústaði Lögreglan á Selfossi ramisakar nú innbrot í þrjá sumarbústaðiíMið- húsaskógi í Biskupstung- um. Tilkynnt var seint £ fyrrakvöld um innbrotin en þau em talin hafa ver- ið framin á milli sunnu- dags og fimmtudags. Að sögn lögreglunnar lá ekki ljóst fyrir hve miklu var stolið síðdegis í gær en eigendur bústaðanna vom þá að kanna skað- ann. Mikið hafði verið rótað til í öllum bústöð- unum. Sænska mell- an úrlandi Móna, 46 ára sænsk gleðikona, hefuryfirgefið landið. Hún ákvað að koma í sumarfn hingað til íslands og taka vinnuna með sér; auglýsti þjónustu sína á einkamál.is. Móna ætlaði að fara hringinn en sú áætlun hefur farið út um þúfur. Eftir að nafn hennar og síma- númer birtist í DV í gær hef- ur síminn hjá henni ekki stoppað. Vinkona hennar segir um 300 manns hafa hringt og forvitnast um „þjónustu" Mónu sem er þó væntanleg aftur til landsins eftir um tvær vikur. Slysvid Esjurætur Umferðarslys varð við Mógilsá á Vesturlands- vegi klukkan 18 í gær, rétt við bflastæðið við Esjurætur. Stórum sendi- bfl var ekið framan á fólksbfl, sem var að koma úr gagnstæðri átt. Ein- hver slys urðu á fólki, en ekki er ljóst þegar blaðið fór í prentun hversu al- varleg. Lögreglan var kölluð til og tók skýrslur af nemendum í Garðaskóla í Garðabæ vegna níðvísu sm þeir ortu um einn kennara sinn. Skólahljómsveitin bætti um betur, bjó til myndband með níðvísunni og setti á netið. Óhug sló á kennara sem stóðu ráðalausir gagnvart þessari nýju tækni sem á þennan hátt var beitt gegn kennurum skólans. Nemendur ortu níðvísu um kennare Kennurum í Garðaskóla í Garðabæ stóð ekki á sama og var í raun brugðið þegar þeir sáu að níðvísa um deildarstjóra í samfélags- fræðum var komin á netið í flutningi hljómsveitar sem í eru nemendur skólans. Var lögregla kölluð til og tók hún skýrslur af nemendum og stöðvaði frekari flutning lagsins á netinu. Kennarinn sem hér um ræðir heitir Rebekka Cordova og er af öll- um talin fær kennari. Hún mun hins vegar vilja halda uppi aga eins og góðra kennara er siður og hefur hún því af ýmsum nemendum verið talin helst til ströng. Mun það vera ástæð- an fyrir því að hagmæltir nemendur hennar tóku sig til og ortu mðvísuna sem er í nokkrum dálkum og þykir klámfengin á köflum. f sjálfu sér vita kennarar eins og aðrir að það er ekki nýlunda í sjálfu sér að ortar séu níðvísur um kennara af nemendum sem gaman hafa af því að henda stökur á lofti. Hitt þyk- ir alvarlegra þegar slfkt efni er kom- ið á veraldarvefinn, öllum sýnilegt og aðgengilegt á öllum tfmum sólar- hrings. Því þótti ekki annað fært en að kalla til lögreglu og sýna nem- endum í eitt skipti fyrir öll að iðja sem þessi yrði ekki liðin af yfirvöld- um skólans. Atburðir þessir urðu skömmu fyrir skólalok í vor og settu blett á annars gott skólaár. Ekki náðist í Rebekku Cordova í gær né heldur Ragnar Gíslason skólastjóra sem lætur sér annt um orðstír skólans eins og sjá má á pistli sem hann sendi nemendum sínum fyrir skemmstu. Þar segir meðal annars: „Hvernig væri að nemendur tækju sig saman um að gera skólann enn notalegri með því að fá þá sem ganga illa um til að breyta siðum sínum? Hvað þarf til? Aðeins eitt: Að hver um sig gangi frá umbúðum sín- um og matarleifum í ruslafötu - strjúki af borði og skilji snyrtilega við það. Þetta er skólinn ykkar - hvernig frelsi fylgir ábyrgð. Ég hvet ykkur til að hugsa um þessi orð mín. Við í Garðaskóla erum ekki sóðar! Besta kveðja. Ragnar Gíslason, skóla- stjóri". viljið þið að hann líti út? - Að lok- um: Öllu Ragnar Gíslason skólastjóri Vill halda uppi aga og þolir ekki níðvísur um starfsfólk sitt. Hárið síðara og hipparnir Margra ára bið Svarthöfða er á enda. Reynt hefur á þolinmæði hans, en eftir að hann horfði á sýn- inguna Hárið í Austurbæjarbíói vaknaði von. Nú skal siglt inn í ann- að hippatímabil. Aðstæður nú eru ekki ólíkar þeim jarðvegi sem hippatímabilið spratt upp úr. Bandaríkin eru í umdeildu stríði, neyslusamfélagið tröllríður einstaklingunum og vaxandi óró- leika gætir hjá ungmennum. Nú þegar er stór hluti ungra manna á ís- landi með jafnsítt hár og konur. Það getur aðeins lengst með tímanum. Svarthöfði þráir ffelsi. Hann þrá- ir líka ást og frið. Hann þráir að eiga Svarthöfði samskipti við samborgara sína sem einkennast af ást, ffiðsemd, samhug og nálægð. Núna er raunveruleikinn öðruvísi. Hver kannast ekki við taugaveiklunina og dónaskapinn í umferðinni, ofbeldis- og yfir- gangstilburði ölvaðra íslendinga og almennt tillitsleysi þeirra? Erum við komin að þanmörkunum, brestur á hippaþjóð innan skamms? Þessu vill Svarthöfði halda fram. Aldrei fyrr hafa jafnmörg börn fæðst utan hjónabands, aldrei fyrr hefur hin sódómíska hlið landsins verið Hvernig hefur þú það hefþaö yndislegt enda er ég I sumarfríi" segir Dóra Þórhallsdóttir, móttökustjóri. er búin aö fara nokkrum nokkrum sinnum á Þingvelli þar sem ég bjó ll5árogá mín- ar rætur. Svo er ég líka búin að fara um mitt héraö til 30 ára, Árnessýsluna.“ greinilegri. Upplausn hins aldna sið- ferðis er yfirvofandi. Það þarf að plægja akurinn til að rækta kom. Fátt stendur í vegi fyrir kommúnu- samfélagi sem byggt er upp sam- kvæmt forskrift hugsjónar hins besta mannlífs. Ef Svarthöfði hefði ekki svona mikinn yfirdrátt hjá bankanum myndi hann sjálfur kasta af sér kufl- inum og hjálminum og hætta að vinna. Hann myndi gefa sig á vald frelsisins og slæpast með vinum sín- um Skakkhöfðu, Jónu og Haus. En hann getur það ekki, þvi' eins og flestir íslendingar þarf hann að borga af raðgreiðslunum til að lenda ekki í gjaldþroti og skuldafangelsi. Ráðsettir félagar Svarthöfða segja að hin bestu rök hm'gi til þess að hippati'minn sé endanlega fyrir bí. Þeir segja að einu hipparnir sem séu mögulegir núna séu þeir sem áður voru nefridir tölvunördar. Ungt fólk sem nennir ekki í klippingu, situr fyrir ffarnan sjónvarp eða tölvu og upplifir ffelsi, gegnsýrt og út úr heiminum. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.