Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 36
36 LAUGARDAGUR I0. JÚLÍ2004 Fréttir DV v Framarar léku sinn áttunda leik 1 röð án þess að vinna sigur í Landsbankadeild karla þegar þeir heimsóttu Keflvíkinga í fyrrakvöld. Liðin skildu jöfn, 1-1, en þremur dögum áður vann Keflavík bikarleik liðanna 1-0. Nýráðinn þjálfari, Ólafur H. Kristjánsson, á enn eftir að stjórna liðinu í leik en hann er erlendis að klára þjálfaragráðu en er þegar farinn að breyta hlutunum í Safamýrinni. Framarar að vinna með nýia leikaðferð Keflvíkingar og Framarar skfldu jafnir, 1-1, í Reykjanesbæ á fimmtudagskvöld í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í tví- skiptum leik. Fyrri hálfleikur var ágætlega spflaður af beggja hálfu en sá síðari var hundleiðinlegur þar sem afskaplega fátt bar tfl tíðinda. Undirritaður sá einnig leik liðanna í bikarkeppn- inni í vikunni, þar sem Keflvíkingar sigruðu, og hreinlega lá á bæn að þessi leikur yrði ekki endurtekning á þeirri hryflflegu hörmung. Það gekk eftir í fyrri hálfleik en ekki í þeim síðari - bæði liðin bættu sig samt sem áður mjög mikið. Það var sótt á báða bóga í fyrri hálfleik þótt heimamenn hefðu ver- ið öllu meira með boltann og skapað sér fleiri færi. Boltinn gekk ágætlega manna á milli og Keflvíkingar voru fljótari að uppskera. Mark Þórarins gladdi augu manna og gaf auknar vonir fyrir heimamenn. Þeir voru líka Iíklegri að bæta við * og það lá eiginlega keflvískt mark í loftinu og það hefði farið langt með að tryggja sigurinn. Þeim varð þó ekki kápan úr klæðinu því Framarar jöíhuðu mjög óvænt 17 mínútum eftir mark Þórarins. Eftir langt inn- kast Kristjáns Haukssonar skoraði Jón Gunnar Gunnarsson með lúmsku viðstöðulausu skoti sem Ólafur Gottskálksson, markvörður Bídastrákanna, átti litla sem enga möguleika á að verja. Því miður var allt annað uppi á teningnum í síðari hálfleik - bæði lið hættu að spila einhvern fótbolta af viti - slappleikinn tók við af hress- leikanum og það var engu líkara en leikmenn beggja liða hefðu í sam- einingu hlustað á slökunartónlist eftir Friðrik Karlsson í leikhléinu. Það eina sem gerðist fréttnæmt í hálfleiknum var brottrekstur Ragn- ars Árnasonar á 69. mínútu en þá fékk hann að líta sitt annað gula spjald. Keflvíkingar hresstust ekkert við brottreksturinn og sanngjarnt jafn- tefli staðreynd. Allt annað og miklu betra Ingvar Þór Olason, fyrirliði Safa- mýrarpilta, var nokkuð sáttur með uppskeruna og hafði þetta að segja í stuttu spjalli við DV Sport að leik loknum: „Þetta var allt annað og miklu betra en í síðasta leik, baráttan miklu meiri og bara allt annar brag- ur á þessu hjá okkur. Við erum að vinna með nýja leikaðferð og slíkt tekur alltaf sinn tíma og ég er bara mjög ánægður með hvað við vorum að gera í þessum leik. Eftir að við misstum Ragnar (Árnason) út af þá bökkuðum við töluvert og þetta áfall þjappaði okkur bara betur saman og þetta var fínt stig. Andinn í liðinu er fínn og menn líta á björtu hliðarnar - við vorum dottnir tals- vert mikið niður og það þurfti ein- faldlega að gera einhverja breyt- ingu og ég held að tímasetningin á þjálfaraskiptunum hafi verið góð og þessi leikur var, að ég held, góð byrjun á nýju tímabili," sagði bar- „Svo duttum við því miður niður á það plan í síðari hálfleik að fara að kýla alltofmikið fram og hætta að spila okkar bolta og þá gengur þetta ekkert hjá okkur. Það hentar okkur best að halda boltanum niðri." áttuhundurinn Ingvar Þór Ólason. Markaskorari Keflvíkinga, Þórarinn Brynjar Kristjánsson, oft nefndur bjargvætturinn, var ekki ánægður með leik sinna manna: Hundfúll „Ég er alveg hundfúll efdr þenn- an leik - við áttum að vinna þennan leik og ég tel okkur hafa verið miklu betri, aUavega í fyrri hálfleik. Svo duttum við því miður niður á það plan í síðari hálfleUc að fara að kýla alltof mikið fram og hætta að spUa okkar bolta og þá gengur þetta ekk- ert hjá okkur. Það hentar okkur best að halda boltanum niðri og spUa honum hratt út á vængina og gefa fyrirgjafir í lappirnar á framherjun- um. Þannig vorum við að spUa £ byrjun móts og þá gekk okkur vel og ég hreinlega veit ekki af hverju okk- ur hefur ekki tekist að halda því áfram. Það er aUavega eitthvað að hjá okkur og við verðum að fara að gíra okkur niður og láta boltann ganga betur. Ég hef fuUa trú á að við getum leyst úr okkar vanda en það þarf að fara að gerast fljótt," sagði Þórarinn Brynjar Kristjánsson í sam- taU við DV Sport í leikslok. KEFLAVÍK-FRAM 1-1 9. umferð - Keflavíkurvöllur - 8. júll Dómari: Jóhannes Valgeirsson (4). Ahorfandur: 646 Gæði leiks: 3. Gul spjöld: Keflavík: Magnús (60.), Þórarinn (66.), Ólafur (var (74.) - Fram: Andri Fannar(27.), Eggert (31.), Ragnar (34. og 69.), Gunnar (90.). Rauð spjöld: Ragnar (69., fyrir 2 gul). Mörk 1 -0 Þórarinn Kristjánsson 22. skotúrteig Magnús 1-1 Jón GunnarGunnarsson 39. skot úr teig Kristján innkast Leikmenn Keflavíkur: Ólafur Gottskálksson 3 Guðjón Antoníusson 3 Haraldur Guðmundsson 3 Ólafur (var Jónsson 4 Stefán Gíslason 3 Hólmar Örn Rúnarsson 2 Jónas Guðni Sævarsson 4 Zoran Daníel Ljubicic 3 Guðmundur Steinarsson 2 (63., Hörður Sveinsson 2) Magnús Þorsteinsson 2 (63., Scott Ramsey 2) Þórarinn Kristjánsson 4 Leikmenn Fram: Gunnar Sigurðsson 4 Andrés Jónsson 3 Eggert Stefánsson 3 Kristján Hauksson 3 Ragnar Árnason 4 Fróði Benjaminsen 3 Ingvar Þór Ólason 4 Jón Gunnar Gunnarsson 4 (52., Baldur Þór Bjarnason 3) Ómar Hákonarson 3 Andri Fannar Ottósson 2 (71., Daði Guðmundsson 2) Rikharður Daðason 4 Tölfræðin: Skot (á mark): 19-10 (5-4) Varin skot: Ólafur 3 - Gunnar 4. Horn: 7-4 Rangstöðun 6-5 Aukaspyrnur fengnar: 16-21. BESTUR Á VELLINUM: Jónas Guðni Sævarsson, Keflavík Fallegt mark Þórarinn Kristjánsson skoraði fallegt mark fyrir Keflavik gegn Fram en það dugði þó ekki til sigurs. DV-mynd E. Ól. sms@dv.is Otto Rehhagel ætlar að stjórna Evrópumeisturum Grikkja í undankeppni HM 2006 Otto vill ekki enda í hjólastól við hliðarlínuna Otto Rehhagel hefur ákveðið að halda áfram að þjálfa gríska landsliðið og efna þar með samning sinn við liðið sem var til loka heimsmeistarakeppn- innar 2006. Otto gerði eins og kunnugt er Grikki að Evrópumeisturum á dögunum. „Otto Rehhagel mun efria samning sinn við okkur," sagði Vassilis Gagatsis, formaður gríska knattspymusambandsins í gær. „Það kemur ekld annað tii greina. Við buðum honum reyndar að framlengja samninginn til 2008 en hann vildi það ekki þar sem hann vill ekki enda í hjólastól við hliðarlínuna,“ bætd Gagatsis við í léttum tón en Rehhagel er orðinn 65 ára og verður því 67 ára þegar samningur hans rennur út eftir heimsmeistarakeppnina 2006. Rehhagel framlengdi samning sinn við gríska sambandið skömmu fyrir Evrópumótíð sögulega í Portúgal þar sem Grikkir gerðu það sem enginn taldi mögulegt og unnu sitt fyrsta stórmót. Rehhagel er orðinn guð í Grikklandi og hefur meðal annars verið boðið að gerast grískur ríkisborgari. „Hann er einn af okkur. Hann trúði á gríska knattspymu og gaf liðinu vængi til að ná þessum frábæra árangri. Allir Grikkir þakka honum fyrir það sem hann gerði. Hann las andstæðingana betur en flestír og náði því allra besta út úr landsliðinu okkar,“ sagði Gagatsis við sama tækifæri. Otto er nú í fríi í heimalandi sínu Þýskalandi þar sem pressan er mikU á knattspyrnusambandinu að finna nýjan þjálfara fyrir landsliðið. Rudi Völler sagði af sér eftir að liðið sat eftir í riðlakeppni Evrópumótsins en næst á dagkrá er heimsmeistara- keppnin í Þýskalandi sem fram fer þar eftir tvö ár. Þýska sambandið hefur gefið það út að Otto Rehhagel sé einn af þjálfurunum sem koma til greina í starfið. Það er ljóst að það er örugglega freistandi fýrir hann að taka við þýska liðinu á þessarri stundu enda erfitt að sjá hann ná meira út úr gríska liðinu sem er í riðli með Tyrklandi, Danmörku, Úkraínu, Georgíu, Albam'u og Kazakhstan í undankeppni HM 2006. Enginn draumariðill þar á ferðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.