Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 10.JÚLÍ2004 Helgarblað DV "W" ón Sæmundur Auðarson er án i efa ein af helstu vonarstjörn- I um íslenskxar myndlistar um M þessar mundir. Frá því að Jón mskrifaðist úr myndlistarskóla hef- ur hann öðru hvoru komið með einstaka verk sem oftar en ekki hafa vakið gríðarlega athygli. Skemmst er að minnast innsetn- ingar hans á vetrarhátíðinni, „Ljós í myrkri" árið 2002 þar sem hann varpaði fossi á tjald sem hann hafði strengt á Morgunblaðshúsið í Aðal- stræti. Verkið er að margra áliti eitt tilkomumesta útiverk sem sett hef- ur verið upp í Reykjavik. Þar færði Jón á mjög sannfærandi hátt kraft- mikla náttúruna inn í hringiðu miðborgarinnar. Myndlist Jóns Sæ- mundar einkennist af sterkum, oft einföldum, hugmyndum sem ailar sameinast í hugmyndinnni um dauðann. Líf Jóns Sæmundar hefur verið ævintýri líkast þar sem dagleg ná- lægð hans við dauðann er sú upp- spretta þangað sem hann sækir sér vökva lífssins sem iist hans nærist á. Jón Sæmundur hefur aldrei verið eins sterkur í list sinni og nú. Við- brögðin láta ekki á sér standa, áhug- inn og orðstírinn hefur nú borist út fyrir landsteinana. Það verður þann- ig spennandi að fylgjast með ferli Jóns Sæmundar sem á fullt erindi í fremstu röð. Það eru komin rúm tíu ár síðan Jón Sæmundur Auðarson greindist með HlV-veiruna. Síðan þá hefur Jón látið mikið til sín taka á sviði myndlistarinnar og nú er svo komið að hann er talinn ein af vonarstjörnum okkar á því sviði. Jón opnaði búðina Dead þar sem hann selur föt og aðra muni undir merkinu Dead en það er á góðri leið með að verða heitasta tískuvörumerkið á landinu. Og reyndar víðar því erlendar poppstjörnur flykkjast í búðina og kaupa af eigandanum. Jón gefur ekki mikið fyrir þetta enda lítur hann á búðina og vörurnar sem innsetningu. Allt er líka í blóma í einkalífinu því Jón og unnusta hans eignuðust tvíbura ekki alls fyrir löngu sem erfðu ekki erfiðan sjúkdóm föður síns. Lélegur í íþróttum - myndlist- in kallaði „Ég hef aJJtaf verið að fikta við myndlist, pabbi var náttúrulega listmálari, Björn Björnholt, hann1 er hálfur Dani en af prússneskum aðalsættum í hina ættina. Hann fluttist til Svíþjóðar rétt áður en ég fæddist þannig að ég ólst upp föður- laus hjá móður minni. Við bjuggum á Brávallagötunni á svona hálfgerðu ættaróðali,“ segir Jón Sæmundur þegar við höfum komið okkur fyrir á vinnustofu hans. „Ég varð fyrst meðvitaður um listáhugann þegar ég var sjö eða átta ára. Þá er ég að þvælast uppi á háa- lofti þegar ég flnn pensla, eiginlega vinnu ___ _____ stofu föður míns sem hann hafði skilið eftir þarna átta árum áður. Ég fór að pæla helling í myndlist og þegar ég var tíu ára tók ég þátt í samkeppni um veggspjald fyrir „Hungraðan heim“, ég tók gamalt plakat frá þeim og gerði annað eins, svona efúrmynd af plakatinu þeirra. Flestum að óvörrnn vann ég keppn- ina og í kjölfarið skráir mamma mig í myndlistarskóla. Ég hafði alltaf teikn- að mikið og var settur með eldri krökkum sem meikuðu ekki smágutt- ann og lögðu mig eiginlega í einelti þannig að ég hætti og stundaði mína myndlist heima með sjálfum mér. Á unglingsárum þegar ég var svona 13 ára þá veikist mamma og var á spítala í langan tíma. Ég lenú á hálfgerðum vergangi þangað til mér var komið í fóstur hjá frænda mínum í nokkra mánuði. Þetta voru mjög erf- iðir tímar, ég var mikið einn og bar þannig snemma ábyrgð á sjálfum mér. Það var svo einhvern veginn ekki til þess að bæta stöðuna að lenda í mjög brútal einelú í skólanum, bæði frá nemendum og kennurum. Ég var ffekar lítill og lélegur í íþróttum, svo- lítið seinþroska. Þetta varð úl þess að ég ákvað að drífa mig til Bandaríkj- anna til bróður míns sem var þar í námi. Það gjörbreytti lífinu og sjálfs- trausúð óx og ég kom tvíefldur aftur heim eftir dvölina ytra,“ segir Jón. Djammferð til LA - kom HIV- smitaður til baka „Ég fór fljóúega að vinna eftir að ég kom heim og var í raun lítið að spá í myndlist á þessum tíma, þangað til að ég og félagi minn Börkur Hrafn Víðisson sem nú er láúnn, ákváðum að fara og ferðast um Evrópu. Við enduðum svo í ísrael þar sem við settumst að um tíma, sennilega svona ár. Ég byrjaði aftur að teikna á fullu á þessu ferðalagi, var með skissubók og skissaði stöðugt. Þegar ég kom heim var ég orðinn heltekinn af myndlistarbakteríunni og fékk mér vinnustofu og fór að mála á fullu og hélt sýningu sem fékk þessa fínu dóma, þótú bara nokkuð efnilegur," segir Jón Sæmundur þegar hann rifj- ar upp ferðalagið í átt að toppnum, þótt oft hafi blásið hart á móú. „Ég hef alltaf haft þörf fyrir að breyta til og kynnast einhverju nýju, rannsaka heiminn, þannig kynnist maður sínu eigin landi best og lærir að meta uppsprettuna sem gefur óendanlega möguleika til sköpunar með innblæstri sínum. Ég fór til Los Angeles árið 1992. Fór aðallega úl að djamma og djúsa. Kynnast nýju um- hverfi og skemmta mér. Þessi gjörn- ingur hafði svo varanleg áhrif á tíf mitt þar sem ég smitaðist af HIV- veirunni meðan á dvölinni stóð þarna úti. Ég vissi þó ekki að ég væri smitað- ur fyrr en ári seinna þegar ég fór í tékk héma heima. Þetta gerist 1993 og á þeim tíma var þetta ekkert annað en dauðadóm- ur og mér var gerð grein fyrir því að ég myndi lifa svona 3-4 ár. Það breyttist náttúrlega allt við þetta og maður fór að gera sér grein fyrir verðmæú lífsins sem manni er gefið. Þrátt fyrir að fá þessar hræðilegur fréttir vom þessir tímar ekki alslæmir því ég eignaðist yndislegt bam, hana Jútíonu Kristínu, sem færði mér ljós inn í líf mitt að nýju. Hún var getin áður en þessi hræðilegi atburður kom upp og það var þess vegna aldrei spurning um það hvort hún væri smituð. Maður verður náttúrlega að taka ákvörðun þegar maður fær svona fréttir og ég ákvað að snúa óttanum við sjúkdóminn mér í hag og ^nýta óttann í listsköpun . minni. Ég var alltaf ákveðinn í því að lifa og sigra dauðann sem ég hef nú gert að listsköp- un minni. Ég sótti um 'að komast inn í for- námið í Mynd- og Handíðarskóla íslands, það tók tvær tilraunir og komst ég svo inn í fjöltæknideild sem ég 'sá strax að átú vel við rmig. Ég vildi vinna með . marga miðla og hef gert það alla tíð síðan." Listin og dauðinn Efúr að Jón Sæmundur útskrifað- ist úr Mynd- og Handíðaskólanum fór hann strax í framhaldsnám í Glas- gow í School of Art í Skoúandi. Hann útskrifaðist með MFA (Master of fine art) gráðu þaðan og var þá farinn að vinna nánast alfarið með dauðann,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.