Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ2004 9 !- Breiður afbílum Innflutningur bifreiða í júnímánuði jókst um 20% ffá sama mánuði fyrra árs. Jafnframt hefur bifreiðainn- flutningur aukist um 21% fyrstu sex mánuði ársins miðað við sama tíma fyrra árs. Samkvæmt „Hálf fimm fréttum" greiningardeildar KB banka er bifreiðainn- flutningur nú því um þessar mundir sá mesti sést hefur í nær tvö ár. Skorturá hlutabréfum Að mati Greiningar fs- landsbanka era nú kjöraðstæður til að sækja fé á lilutafjármarkað. Mikið fé er í umferð og fjármögnun hlutabréfa gengur greiðlega fyrir sig. Spum er eftir nýjum kost- um á markaðinum en nýtt félag hefur ekki bæst í hópinn í Kauphöllhmi síðan Medcare Flaga var skráð síðasta haust. Þau félög sem hafa sagst vera að íhuga skráningu, svo sem Atlanta, Tölvumynd- ir og Norðurljós, virðast hins vegar vera stutt komin af stað í því ferli. Reyna mun á eftirspum markaðarins í lilutafjárút- boði KB banka í byijun ágúst sem verður stærsta hlutafjárútboð hérlendis. Fjárhæð útboðsins er 40 milljarðar kr. Þórdís Hauksdóttir, talsmaður Falun Gong á íslandi telur að útsendarar kín- verskra stjórnvalda hafi njósnað um sig hérlendis. Falun Gong mótmælti í gær heimsókn varaforseta kínverska þingsins, Wangs Zhaogu. Þórdís Hauksdóttir fór fyrir mótmælum fyrir utan Kínverska sendiráðið í tilefni heimsóknar varaforseta kínverska þingsins, Wangs Zhaoguo, í gær: „Það mætti kalla þetta friðsam- lega áskorun til yfirvalda í Kína í til- efni gestkomunnar. Okkur þykir sorglegt að í Kína fari fram ofsóknir og pyntingar á saklausu fólki og vilj- um nota þau tækifæri sem gefast til að koma því á framfæri. Fram til árs- ins 1999 beinlínis studdi kínverska stjómin iðkun Falun gong. En árið 1999 komust stjórnvöld að því að iðkendur voru orðnir 100 milljónir, tvöfalt fleiri en meðlimir kommún- istaflokksins. Þá gjörsamlega um- póluðust þau og hófu að ofsækja iðkendur." Þórdís segir að hún hafi sterkan grun um að njósnað hafi verið um sig: „Á tímabili heyrði ég klikkhljóð í símanum eins og verið væri að hlera hann. Þetta var á þeim tíma þegar Falun-fólkið kom til íslands til að fara fram á afsökunarbeiðni fyrir að hafa verið bannað að koma til lands- ins og gisti í íbúðinni minni. Eins hafa tölvupóstsendingar milli mín og iðkenda víða um heim aldrei komist á leiðar- enda. Mér er sagt að þetta sé mjög algengt." Dómur í Þýskalandi Þórdís segir Falun Gong- liða hafa kært það að hafa verið vísað af hóteli í Þýska- landi, rétt áður en Jiang Zemin heimsótti ísland, og fengið bætur og opinbera afsökunnarbeiðni þar sem dómarinn sagði að engar sannanir hefðu nokkurn tímann verið fyrir því að Falun Gong-iðkendur hafi nokkurn tímann beitt ofbeldi eða verið til trafala og því hafi ekki verið rök fýrir brottvikningu þeirra. „I yfirheyrslum í Þýskalandi kom það fram að yfirvöld á Islandi, rétt eins og þau þýsku, hefðu verið beitt Þórdís Hauksdóttir Segir útsendara kín- verskra stjórnvalda hafa njósnað um sig. „Á tímabili heyrði ég klikkhljóð í símanum eins og veríð værí að hlera hann." Mjög friðsamlegt Falun Gong iðkendur hengja upp mótmælaborða. þrýstingi af hálfu kínverskra stjórn- valda sem er skrítið þar sem þau sögðust hafa fengið listana sem not- aðir voru ffá Interpol en ekki stjórn- völdum í Kína. Þegar við höfðum samband við Interpol sögðust þeir ekki hafa komið nálægt neinum list- um yfir Falun Gong-Uða.“ Aðspurð hvort Falun Gong ætlaði að nota dóminn í Þýskalandi sem fordæmi gagnvart íslenskum stjórn- völdum sagði hún: „Nei, það er of seint." rapdpdv.is \/ * „Ý' ö'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.