Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2004, Blaðsíða 13
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR W.JÚLÍ2004 13
Ofbeldisfulli iðnaðarmaðurinn
Hákon Eydal var dæmdur í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengsl-
um við hvarf hans Sri Rahmawati, fyrrverandi konu hans. Hákon
er 45 ára gamall múrari sem hefur rekið gluggaþvotta- og hrein-
gerningaþjónustu frá heimili sínu að Stórholti 19 í Reykjavík.
Hann kynntist Sri í Indónesíu fyrir um sex árum og tók hana með
sér heim. Þar með hófst sambúð sem endaði með skelfingu.
Á þriðjudaginn í síðustu viku bar
lögreglan skotvopn út úr húsi Há-
konar. Tæknideildin var að störfúm í
garðinum og inni í íbúðinni. Blóð-
blettir sem fúndust urðu til þess að
Hákon var hnepptur í tveggja vikna
gæsluvarðhald.
Hákon kynntist Sri Rahmawati í
Indónesíu og tók hana með sér til
íslands. Hann er múrarameistari og
hefúr rekið eigið fyrirtækið, Múrara-
meistarann, um nokkurra ára skeið.
Einn af samstarfsmönnum hans er
Helgi Gunnlaugsson málarameist-
ari, sem rekur fyrirtækið Acryl.
Hvarf í Þýskalandi
„Við hittumst í meistaraskólan-
um í Þýskalandi. Þangað fara verka-
menn að afla tengsla," sagði Helgi
fyrr í vikunni en tók fram að sam-
band hans við Hákon hefði ein-
göngu verið viðskiptalegs eðlis.
„Hann var lítið með okkur. Eitt, tvö,
kvöld og svo hvarf hann."
Lítið hefur verið skrifað um Há-
kon Eydal í gegnum ú'ðina en þó
birtist viðtal við hann á vormánuð-
um í fyrra þegar hann var í ferðalagi
ásamt félögum sínum í Brasilíu. Það
viðtal gefur ákveðna innsýn í per-
sónu Hákonar. Hann segist meðal
annars hafa gert tilraun til að kaupa
kókalauf í Brasih'u en úr þannig lauf-
um er kókaín unnið.
Kókaín og melludólgar
„Það var búið að segja mér hvem-
ig ætti að hantera þau og mig langaði
að prófa. Ég reyndi alla staði sem
mér datt í hug, spurði leigubflstjóra
og melludólga en þeir hlógu bar að
mér, þannig að ég fékk engin lauf."
f viðtalinu kemur einnig fram
það sem kannski mætti kalla mottó
Hákonar. Hann hrósar fólkinu í
Brasilíu og segir: „Ef þú ert kurteis
þá er fólk kurteist á móti."
Ættingjar Sri segja Hákon hafa
verið allt annað en kurteisan. Þegar
hann komst að þvi að konan hans
Hákon Eydal Dæmduri
tveggja vikna gæsluvarð-
hald vegna hvarfs fyrr-
verandi konu hans.
„Efþú ert kurteis þá
er fólk kurteist á
móti."
var ólétt árið 2002 hafi hann byrjað
að beita hana ofbeldi. Barði hana
ítrekað og hótaði lífláti. Ofbeldið
ieiddi til þes að Sri flúði.
Hótaði lífláti
Ári síðar fékk Hákon á sig kæm
fyrir ofbeldisbrot gegn Sri. Málið fór
fýrir dómstóla en aðalvitnið hætti
skyndilega við að bera vimi í mál-
inu. Hákon var sýknaður og í einni
af ferðum sínum á lögreglustöðina
fékk hann sér byssuleyfi. Vinkonur
Sri segja að Hákon hafi oft ógnað
henni með byssunum sem lögregl-
verið auglýst eftir henni. Margir
spyrja sig hvort það séu eðlileg
vinnubrögð þegar leitað er að
týndri manneskju.
Ingibjörg sagðist ekki vita hvað
hefði gerst. Þær hafi farið í vikunni
áður en hún hvarf í sumarbú-
staðarferð til Hvítárbakka. Þar hafi
stúlkurnar í Kvennasmiðjunni
spjallað um lífið og tilveruna. „Við
kenndum Sri meira að segja Kana,“
sagði Ingibjörg þegar hún rifjaði
upp þessa síðustu ferð sem hún
fékk notið vinskapar Sri.
„Það var svo margt að gerast hjá
henni. Hún var nýbúin að kynnast
hollenskum strák sem er í Háskól-
anum og þau virtust ánægð sam-
an,“ sagði Ingibjörg og rifjar upp
síðasta Eurovision-kvöld þar sem
hún og Sri voru að skemmta sér á
Café Viktor með Hollendingnum.
„Mér skilst að Hákon hafi séð þau
inn á staðnum en ég sá hann ekki
sjálf."
Blóðblettir á heimili Hákons
Þær vinkonur komu úr sumar-
bústaðnum síðasdiðinn fimmtu-
dag og á laugardaginn fór Sri út á
lífið. Eitt af því sem hún hafði talað
um í sumarbústaðarferðinni var
Hákon Eydal. Hún sagði fas hans
hafa breyst. Síðustu mánuði hefði
hann ofsótt hana. Hringt á nótt-
unni og elt í sund. Nú væri hann
skyndilega orðinn ljúfur sem lamb;
eins og hann vildi fá hana aftur.
„Hún sagði að börnin sín þyrftu
föður," sagði Ingibjörg sem fékk
símtal frá Sri seint á laugardags-
nóttinni. „Við spjölluðum saman
og ég held að þá hafi hún verið
búin að ákveða að fara heim til Há-
kons. Núna finnst mér að ef ég
hefði kannski farið þá... Æi, maður
getur ekki hugsað svona."
Vitað er að Sri heimsótti fyrrum
sambýlismann sinn á heimili hans
á sunnudaginn. Eftir það eru afdrif
hennar óljós. Lögreglan fann blóð-
bletti heima hjá Hákoni F.ydal og í
jeppabifreið hans. Hákon var
færður í gæsluvarðhald út frá því.
DV hafði samband við ættingja Sri
í gær. Þeir höfðu ekkert heyrt frá
Sri og biðu í ofvæni eftir upplýs-
ingum frá lögreglunni.
„Við söknum mömmu og viljum
fá hana aftur," sögðu börn Sri sem
bíða enn eftir fregnum af móður
sinni.
Aðstoð hjá Alþjóðahúsi
Alþjóðahúsið er samastaður fólks af erlend-
um uppruna á Islandi. Eitt af því sem þar er
boðið upp á er lögfræðileg ráðgjöf. Margrét
Steinarsdóttir, lögfræðingur hjá Alþjóðahús-
inu, segir alla útlendinga sem eru í erfiðri
stöðu geta leitað til þeirra. „Hér eru túlkar sern gera fólki kleyft að nálgast
upplýsingar og tjá sig á eigin móðurmáli. Það skiptir miklu máli,“ segir
Margrét. Mest er leitað til Alþjóðahússins vegna atvinnu- og dvalarleyfa.
Hakon Eydal hnepptur i
gæsluvarðhald Blóðblettir
fundust á heimili hans.
Blóðrannsókn í
útlöndum
Ilákon Eydal ætlar ekki að
áfrýja gæsluvarðhalds-úrskurö-
inum. Réttargæslumaður
ITákonar segir að í þessu felist
engin viðurkenning á sekt.
Senda þurl'ti blóð sem fannst á
heimili Hákonar Eydal í DNA-
rannsókn erlendis. Niðurstöðu
er að vænla í næstu viku.
Lögreglan er enn í sömu sporum
og þegar Hákon var handtekinn í
síðustu viku. Iieimildir DV
herma að þess sé beðið að I lá-
kon opni sig um það sem gerðist
örlaganóttina þegar Sri hvarf.
an bar út úr íbúð hans í Stórholtinu.
Hákon á einn son með fyrrver-
andi eiginkonu sinni Ástu Hjördísi
Georgsdóttur sem býr í Svíþjóð.
Ásta vildi ekkert tjá sig um fyrrum
eiginmann sinn. Sagði hræðilegt
hvernig hann hefði verið gerður að
sakamanni í þessu máli.
Lögreglan vinnur út frá þeirri til-
gátu að Sri hafi heimsótt Hákon á
sunnudagsmorgun. Mágkona Sri,
Nana Mardiana, staðfesti að hún
hefði skilið við Sri klukkan hálf sex
og þá hefði hún sagst ætla að hitta
Hákon. Hvað gerðist eftir það er
enn á huldu.
Síðustu mánuði hefur Iiákon
unnið við að steypa grunna við
Smárarima, á gömlu Landssímalóð-
inni til móts við Bónus.
Bzzzzzz bzzzzz bzzzz bzzz bzz bz
LÁTTU EKKISUDA IÞÉR!
VAPONA FLUGNA-
& GEITUNGAVÖRURNA
Söluaðilar:
OLÍS • ELUNGSEN • BYKO • HAGKAUP •
FJARÐARKAUP • SAMKAUP • NETTO •
10-11 BÚÐIRNAR • HÚSASMIÐJAN • SHELL•
ESSO • KB BORGARNESI • VALBERG
ÓLFSFIRÐI • SÖLUSKÁLINN SKAGASTRÖND •
VERSLUNIN KASSINN, ÓLAFSVÍK.
Dreifing: OLÍS Sími: 515-110C
simon@dv.is